Skessuhorn - 05.06.2019, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 5. júnÍ 2019 9
17. júní hátíðarhöld í
Borgarbyggð 2019
SK
ES
SU
HO
RN
2
01
9
Borgarnes
Kl. 10:00 Sautjánda júní íþróttahátíð á Skallagrímsvelli
Íþróttahátíð fyrir fólk á öllum aldri á Skallagrímsvelli
Bubbleboltar á svæðinu
Kl. 10:00 – 13:00 Sund og veitingar
Sundlaugin opin, enginn aðgangseyrir í tilefni dagsins
Pylsusala í Skallagrímsgarði
Kl. 11:00 Guðsþjónusta í Borgarneskirkju
Séra Þorbjörn Hlynur Árnason messar
Kirkjukórinn syngur undir stjórn Steinunnar Árnadóttur organista
Akstur fornbíla og bifhjóla fyrir og á meðan á dagskrá stendur
Fornbílaklúbburinn og bifhjólaklúbburinn Raftarnir keyra um bæinn
og stilla bílum sínum og bifhjólum upp hjá sundlauginni í Borgarnesi
Kl. 13:00 Andlitsmálning í Óðali
Andlitsmálning og hitað upp fyrir skrúðgöngu
Kl. 14:00 Skrúðganga
Gengið er frá Borgarneskirkju í Skallagrímsgarð
Fánaborg á vegum Skátafélags Borgarness
Trommusláttur á vegum Tónlistarskóla Borgarfjarðar
Kl. 14:20 Hátíðar- og skemmtidagskrá í Skallagrímsgarði
Kynnar: Emma Sól Andersdóttir og Bjartur Daði Einarsson
Hátíðarræða sveitarstjóra, Gunnlaugs A. Júlíussonar
Ávarp fjallkonunnar
Tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Borgarfjarðar
Söngatriði frá hæfileikakeppni félagsmiðstöðvarinnar Óðals
Hljómlistarfélagið heldur uppi fjöri ásamt Húlladúllu – skemmtiatriði,
bubbleboltar og fjör fyrir fjölskylduna
Kl. 14:00 – 17:00 Á hátíðarsvæðinu í Skallagrímsgarði
Hoppukastalar
Andlitsmálning
Góðgæti til sölu
Kl. 14:00 – 17:00 Kaffisala í Skallagrímsgarði
Kaffisala kvenfélagsins
Kl. 13:00 – 17:00 Safnahús
Í Safnahúsi eru fimm sýningar og aðgangur er ókeypis þennan dag í
boði sveitarfélagsins
Börn í 100 ár – grunnsýning•
Ævintýri fuglanna – grunnsýning•
HVAR – HVER - HVERJAR – sýning á íslenskri myndlist•
Pourquoi pas – strandið við Mýrar 1936•
Útgerðarsaga Borgarness og björgun Grímshúss – • veggspjalda-
sýning
Sundlaugarnar á Varmalandi og á Kleppjárnsreykjum verða
opnar frá kl. 9:00 – 18:00. Engin aðgangseyrir
Hvanneyri
UMF Íslendingur stendur fyrir hátíðarhöldum á Hvanneyri
Lagt verður af stað frá Sverrisvelli í skrúðgöngu að skjólbeltunum
kl. 11:30. Grill á staðnum og hver grillar fyrir sig og sína. Leikir,
skemmtun, gleði og gaman.
Reykholtsdalur
Ungmennafélag Reykdæla stendur fyrir hátíðarhöldum. Riðið
verður til hátíðarmessu í Reykholti sem hefst kl. 11:00. Farið verður
frá Gróf kl. 10:00 og frá Hofsstöðum kl. 10:15. Hangikjötsveisla og
hátíðardagskrá í Logalandi kl. 13:00. Hátíðarræða, fjallkonan, leikir
og karamelluflugvél. Veittar verða viðurkenningar til barna sem
stunda íþróttir.
Lundarreykjadalur
Ungmennafélagið Dagrenning sér um hátíðardagskrá sem hefst
kl. 14:00 með bátakeppni við ármót Grímsár og Tunguár. Kaffistund í
Brautartungu, leikir og víðavangshlaup. Kvöldgrill, spil o.fl. skemmti-
legt. Hver og einn leggur eitthvað til á kökuhlaðborðið og grillið.
Íslandsmótið í eldsmíði var haldið
á Safnasvæðinu í Görðum á Akra-
nesi á sunnudaginn. Hefð er fyrir
því að íslenskir eldmiðir komi sam-
an langa helgi en þeir hófu dag-
skrána á örnámskeiði í eldsmíði á
fimmtudaginn. Til úrslita á mótinu
kepptu síðan sjö. Var verkefnið tví-
þætt. Annars vegar áttu þátttak-
endur að smíða mataráhöld og hins
vegr nytjahlut þar sem að minnsta
kosti ein samsuða var í smíðisgripn-
um. Tveggja manna dómnefnd
skipuð þeim Bjarna Þór Kristjáns-
syni og Simon Beyeler mat síðan
smíðisgripina út frá ýmsum þátt-
um m.a. fagurfræði, hönnun og
nytsemi. Verðlaun voru veitt fyr-
ir þrjú efstu sætin. Það kom ekki á
á óvart að Beate Stormo frá Krist-
nesi í Eyjafirði bar sigur úr býtum.
Hún er ríkjandi norðurlandameist-
ari og margfaldur Íslandsmeist-
ari í eldsmíði. Verðlaunagripurinn
sem hún hlaut að launum var geld-
ingatöng. Í öðru sæti varð Róbert
Daníel Kristjánsson frá Þingeyri og
heimamaðurinn Ingvar Matthías-
son varð í þriðja sæti.
Óhætt er að segja að á Akranesi
sé fullkomnasta aðstaða landsins til
eldsmíða. Í sérbyggðu húsi á Safn-
asvæðinu er aðstaða til smíðanna
sífellt að batna og smiðjan með-
al annars komin með kyndingu.
Guðmundur Sigurðsson og Ingvar
Matthíasson segjast stoltir af að-
stöðunni og ánægjulegt að Íslands-
mótið er nú haldið á Akranesi ár
eftir ár. Þar er nú góð aðstaða til
kennslu og eldsmíða þar sem járn
er glóðhitað og mótað í ýmsa nytja-
hluti.
mm
Íslandsmeistaramót eld-
smiða haldið á Akranesi
Verðlaunahafar. F.v. Beate Stormo, Róbert Daníel og Ingvar.
Að launum fékk Beate forláta geldingatöng. Það var Bjarni Þór Kristjánsson for-
maður dómnefndar sem lýsti úrslitum og afhenti verðlaunin.
Hér má sjá gripina sem þátttakendur framleiddu í keppninni.
www.ruv.is
RÚV leitar að fréttamönnum með reynslu af fréttaskrifum og vinnslu frétta fyrir
ljósvakamiðla og vef. Við leitum að metnaðarfullum, kra�tmiklum og sjálfstæðum
einstaklingum sem eiga auðvelt með að vinna í hópi, hafa góða framsögn og eru vel ritfærir.
• Fréttamaður í fullt starf á Akureyri.
• Fréttamaður í a�leysingar til eins árs á Vesturlandi
og Vestfjörðum.
• Fréttamaður í fullt starf í Útvarpshúsið við Efstaleiti.
RÚV starfar í almannaþágu og hefur það hlutverk að vekja, virkja og efla.
Öflugt og samhent starfsfólk RÚV skoðar samfélagið með gagnrýnum
hætti, segir mikilvægar sögur og þróar nýjar leiðir til miðlunar.
Hvað er að frétta?
Umsóknarfrestur er til 10. júní.
Skil umsókna og nánari upplýsingar eru
á umsokn.ruv.is.
Við hvetjum áhugasama til að sækja
um, óháð kyni og uppruna.