Skessuhorn


Skessuhorn - 05.06.2019, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 05.06.2019, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 5. júnÍ 20196 Ekið geyst í umdæminu Enn er töluvert um hraðakst- ur í umdæmi Lögreglunn- ar á Vesturlandi. Ökumaður var stöðvaður á 127 km/klst á Vesturlandsvegi 28. maí, þar sem hámarkshraði er 90 km/ klst. Þá var ökumaður í vik- unni kærður fyrir að aka á 81 km/klst. í Borgarnesi, til móts við Húsasmiðjuna, þar sem hámarkshraði er 50 km/klst. Lögregla beinir þeim tilmæl- um til ökumanna að hægja á sér og aka ekki hraðar en leyfilegt er, hvort sem er úti á þjóðveginum eða innanbæj- ar. Aðfaranótt sunnudags var ökumaður stöðvaður á 132 km/klst. á Borgarfjarðarbraut, þar sem hámarkshraði er 90 km/klst. Sá er einnig grunað- ur um ölvun við akstur. Mað- urinn var handtekinn og færð- ur á lögreglustöð. Málið er til rannsóknar. Ökumaður var stöðvaður fyrir of hraðan akst- ur í Skorradal 1. júní, einnig grunaður um ölvun við akstur. Þá var einn ökumaður stöðv- aður á Snæfellsnesi þriðjudag- inn 28. maí, grunaður um ölv- unarakstur. -kgk Ölvaður ók út af BORGARFJ: útafakst- ur varð við Kleppjárnsreyki í Reykholtsdal um miðjan dag á föstudag. Lögreglu var til- kynnt um bíl sem ekið hafði verið út af veginum. Talið er að ökumaðurinn hafi jafn- framt verið ölvaður. Ökumað- urinn kvaðst hafa misst bíl- inn út af vegna þess að hest- ur hefði verið á veginum og tekið síðan upp drykkju eftir að óhappið varð. Framburð- ur ökumanns stangast á við framburð vitna, sem sögðu hann hafa verið drukkinn og illa áttaðan. Málið er til rann- sóknar. -kgk Út af á húsbíl STYKKISH: Umferðar- slys varð á Stykkishólmsvegi á laugardagsmorgun. Ökumað- ur missti stjórn á húsbíl sín- um með þeim afleiðingum að hann fór út af veginum hægra megin. Ökumaðurinn náði að halda bílnum á hjólunum all- an tímann og staðnæmdist um 100 metra frá þeim stað sem hann fór út af veginum. Öku- maður taldi að hann hefði mögulega fengið aðsvif undir stýri, en farþegi kvaðst þó ekki hafa orðið þess var. Ökumað- urinn kvartaði jafnframt yfir eymslum í baki og var fluttur með sjúkrabíl á heilsugæslu- stöðina í Stykkishólmi til að- hlynningar. -kgk Blaðrað í bílnum VESTURLAND: Tveir öku- menn voru kærðir fyrir að nota síma undir stýri í umdæmi lögreglunnar á Vesturlandi í vikunni sem leið, annars veg- ar á laugardag og hins vegar á mánudag. Lögregla brýnir ökumenn að hafa hugann við aksturinn og minnir á að við- urlög við notkun síma undir stýri er 40 þúsund kr. fjársekt. -kgk Næturlokanir í göngunum HVALFJ: Hvalfjarðargöng verða lokuð fyrir umferð þrjár nætur í þessari viku, þ.e. að- fararnætur 5., 6. og 7. júní frá miðnætti og til klukkan 07:00 að morgni vegna þrifa og við- haldsvinnu. Umferð er vísað um Hvalfjörð á meðan. -mm Álagning skatta nú komin í ljós LANDIÐ: nú geta einstak- lingar nálgast niðurstöður álagningar sinnar á þjónustu- vefnum www.skattur.is með raf- rænum skilríkjum eða veflykli. Í tilkynningu frá Ríkisskattsjóra segir að seðlar verða bornir út nú í byrjun mánaðarins til þeirra sem ekki afþökkuðu álagning- arseðil á pappír. Kærufrestur vegna skattlagningar rennur út 2. september 2019. -mm Hundur beit konu AKRANES: Kona kom á lög- reglustöðina á Akranesi á föstu- dag og greindi lögreglu frá því að hún hefði verið bitin af hundi. Hún var að ganga framhjá húsi þar í bæ þegar hundurinn beit í lærið. Konan fór á heilsugæslu- stöðina á Akranesi og fékk stíf- krampasprautu þar sem bitið náði til blóðs. Einnig var hún með mar á lærinu. Lögregla rannsakaði málið, komst að því hver átti hundinn og gerði dýra- eftirlitsmanni viðvart. -kgk Datt af baki BORGARFJ: Maður féll af hestbaki og í stórgrýti eftir að trjágrein felldi hestinn við út- reiðar á Dragavegi síðastlið- inn föstudag. Knapinn var með hjálm en lenti illa á bakinu og kenndi sér eymsla í baki sem leiddu niður í fót. Var hann fluttur með sjúkrabíl til skoð- unar hjá lækni. -kgk HB Grandi hefur selt einn af þrem- ur nýlegum ferskfisktogurum sín- um, Engey RE-1, til Murmansk Trawl Fleet í Rússlandi. Verður skipið afhent nýjum eigendum á næstu dögum. Í tengslum við þessa sölu verður ísfisktogarinn Helga María AK-16, tekin aftur í rekstur, en henni var lagt í febrúar síðast- liðnum. Skipverjum í áhöfn Eng- eyjar verður boðið pláss á öðrum skipum félagsins. mm nokkuð er síðan lokið var við að setja upp nýjan Tetra fjarskiptasendi á Purkhól- um í Þjóðgarðinum Snæ- fellsjökli. Verkið er í um- sjón neyðarlínunnar og á að koma í veg fyrir að svoköll- uð dauð svæði verði í fjar- skiptum á utanverðu Snæ- fellsnesi, meðal annars á fjölförnum ferðamannastöð- um á borð við Djúpalóns- sand. Þá var nauðsynlegt að setja sendinn upp til að bæta öryggi sjófarenda en nokk- uð var um svokallaða dauða punkta meðfram ströndinni. Að sögn Magnúsar Hall- dórssonar rekstrarstjóra hjá neyðarlínunni tengdi stofn- unin sinn búnað í fyrrahaust. Bæði fjarskiptafyrirtækin Vodafone og Síminn muni á næstu dögum ljúka við að koma sendum sínum fyrir í mastrinu þannig að GSM samband á þá að stórbatna. mm Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar sam- þykkti á fundi sínum í liðinni viku breytingu á deiliskipulagi að Kirkju- braut 39 og hefur tillagan verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Engar athugasemdir bárust í skipu- lagsferlinu. Breytingin felst í að byggt verður hótel á lóð sem áður var skil- greind sem stofnanareitur. núverandi hús á lóðinni verður rifið. nýtingar- hlutfall lóðar er í skipulaginu aukið úr 0,4-0,6 í 1,56 og gert ráð fyrir að byggt verði fjögurra hæða hús í götu- línu. Það er fyrirtækið Uppbygging ehf. sem lagði inn umsókn um nýtt skipulag og hyggst byggja 55 her- bergja hótel á lóðinni. mm Samþykkja nýtt skipulag vegna hótelbyggingar Engey seld og Helga María tekin í notkun að nýju Nýr sendir á Purkhólum mun gjörbreyta fjarskiptum

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.