Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - dec 2019, Qupperneq 3

Læknablaðið - dec 2019, Qupperneq 3
„Við vinnufélagarnir hittumst fyrir tilviljun á fyrirlestri um háfjallagöngu í Hörpu. Síðan höf- um við ekki talað um annað en að fara í göngu á Everest. Það tók okkur tvö ár að láta drauminn verða að veruleika,” segir Helga Kristín Magnús- dóttir svæfingalæknir en þau Guðmundur Dan- íelsson æðaskurðlæknir stóðu í grunnbúðunum um miðjan októbermánuð. Þau hafa síðasta áratug verið samstarfsfélagar í Domus Medica. Helga vinnur bróðurpartinn fyrir norðan á Akureyri en kemur reglulega suð- ur. Þau eru sammála um að reynslan frá Everest hafi verið ævintýraleg. Þau gengu í 5600 metra hæð í Himalaja-fjall- garðinum. Ferðin tók 9 daga upp í búðirnar en aðeins fjóra daga niður. „Ég hafði áður náð 4500 metra hæð í Perú,“ segir Helga sem einnig hefur gengið í Jórdaníu, Víetnam og í kringum Mont Blanc. „Það reyndi mun meira á að fara í 5600 metra,“ segir Helga sem er alvön vetrargöngum og fer á rjúpu. Guð- mundur segir kuldann hafa verið meiri áskorun en hæðina, sem fæstir búist við enda festist kuldinn ekki á filmu. „Við erfiðustu aðstæður taka fæstir myndir,“ segir hann og hlær. „Þetta er hrjóstrugt land, getur orðið mjög kalt á nóttunni. Húsin eru ekki upphituð nema að hluta en með góðum svefn- poka er þetta ekkert mál. Klósettaðstaðan oft á tíðum ekki góð, en matur og allur aðbúnaður að öðru leyti góður.“ Þau eru samtaka í lýsingum á stórbrotinni náttúru. „Maður er á einstigi í fjallasölum,“ segir Guðmundur. „Umhverfið svo ólíkt okkar sem og lifnaðarhættir í Nepal.“ Þrátt fyrir að hafa borðað mikið af kolvetnum, pasta og kart- öflur, hafi hópurinn lést og líklega misst einnig vöðvamassa, sem sýni erfiðið. „Ætli flestir hafi ekki misst um tvö, þrjú kíló,“ segir hann. Helga hafði áður gengið í Nepal, í Anna- purna-þjóðgarðinum. Upplifunin hafi verið önn- ur. „Allt annað landslag. Það er gróðurhérað en Everest auðn,“ segir hún og reynir að lýsa þessu enn betur. „Fjöllin á Íslandi eru eins og smáhólar eftir að hafa verið í þessum fjallasölum.“ Þau voru í hópi Vilborgar Örnu Gissurar- dóttur pólfara og fyrstu íslensku konunnar til að klífa Everest. „Reynsla hennar smitar úr frá sér. Maður fyllist eldmóði, trausti og upplifði öryggi að hafa hana hana sér við hlið,“ segir Guðmund- ur. „Svo er hún með úrvalslið með sér sem gerði ferðina ógleymanlega,“ segir Helga. Guðmundur segir að gönguferð sem þessi sé einkar áhugaverð fyrir lækna og læknanema. „Maður finnur fyrir önduninni, meltingarfær- unum og hjartanu. Öll líffærakerfin tengjast, þau verða fyrir breytingum á leiðinni og það finnst svo vel á göngunni,“ segir hann. En hvað gera þau nú þegar þessu markmiði er náð? „Ég held við tökum því rólega og förum á Hvannadalshnjúk í vor. Svo getur verið að við spjöllum um í vinnunni hver næsta áskorun verður.” Hlíðasmára 8 201 Kópavogi sími 564 4104 Útgefandi Læknafélag Íslands Ritstjórn Magnús Gottfreðsson, ritstjóri og ábyrgðarmaður Elsa B. Valsdóttir Gerður Gröndal Hannes Hrafnkelsson Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir Magnús Haraldsson Sigurbergur Kárason Tölfræðilegur ráðgjafi Thor Aspelund Ritstjórnarfulltrúi Védís Skarphéðinsdóttir vedis@lis.is Blaðamaður Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@lis.is Auglýsingastjóri og ritari Esther Ingólfsdóttir esther@lis.is Umbrot Sævar Guðbjörnsson saevar@lis.is Upplag 1850 Prentun og bókband Prenttækni ehf. Vesturvör 11 200 Kópavogi Áskrift 16.900,- m. vsk. Lausasala 1690,- m. vsk. © Læknablaðið Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu. Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki að hluta né í heild, án leyfis. Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar (höfundar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna: Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Science Edition, Scopus og Hirsluna, gagnagrunn Landspítala. The scientific contents of the Icelandic Medical Journal are indexed and abstracted in Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSe- arch), Journal Citation Reports/Science Edition and Scopus. ISSN: 0023-7213 LÆKNAblaðið 2019/105 539 Læknablaðið THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Guðmundur og Helga í Himalaja-fjallgarðinum. Þau segja að samstarfsfólk þeirra í Domus Medica hafi tekið virkan þátt í upplifuninni í gegnum myndir sem þau sendu heim. Myndir/Guðmundur/Helga. Læknar á Everest Helga Kristín Magnúsdóttir og Guðmundur Daníelsson létu draum um að ganga í grunnbúðir Everest í Himalaja- fjallgarði Nepals rætast

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.