Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - des. 2019, Blaðsíða 7

Læknablaðið - des. 2019, Blaðsíða 7
LÆKNAblaðið 2019/105 543 Unnur Anna Valdimarsdóttir faraldsfræðingur Prófessor við læknadeild Háskóla Íslands, gesta- prófessor við deild lækn- isfræðilegrar faraldsfræði og líftölfræði, Karolinska Institutet og faraldsfræði- deild Harvard TH Chan School of Public Health unnurav@hi.is 10.17992/lbl.2019.12.258 Áfalla- og streituraskanir – ein megin- áskorun lýðheilsuvísinda 21. aldar Á seinni hluta 20. aldar náðist mikill árangur í forvörn- um gegn ýmsum skæðum sjúkdómum og lífslíkur manna á heimsvísu jukust á þessu tímabili um rúmlega 30 ár.1 Dæmi um áfanga sem áttu þátt í að skila þess- um ávinningi eru uppgötvanir sýklalyfja og bóluefna gegn úrbreiðslu smitsjúkdóma en einnig hagnýting þekkingar á vægi lífsstílsþátta, þar á meðal reykinga og blóðfitu, í þróun hjarta- og æðasjúkdóma. Hér ber líklega hæst verulegan árangur í reykingaforvörnum en samkvæmt samantekt Embættis landlæknis hefur algengi daglegra reykinga meðal fullorðinna Íslendinga minnkað úr 50% árið 1970 í 11,5% árið 2015.2 En eru í sjónmáli nýjar áskoranir og landvinningar að bættri lýðheilsu? Sterk rök eru fyrir því að ein mik- ilvægasta áskorun 21. aldar um bætt lífsgæði og jafn- framt lífslengd manna felist í aukinni þekkingu á heilsufarslegum afleiðingum langvinnrar streitu, áfalla og áfallatengdum röskunum ásamt forvörnum og með- ferð á því sviði. Tæplega þriðjungur manna mun þróa með sér geð- röskun af einhverju tagi einhvern tímann á lífsleiðinni3 en nýgengið eykst verulega í kjölfar áfalla og þungbærr- ar lífsreynslu á borð við ofbeldi, náttúruhamfarir, tekju- eða atvinnumissi, greiningu lífshættulegra sjúkdóma innan fjölskyldu og ástvinamissi. Þessir atburðir eru algengir í okkar samfélagi – til dæmis má gera ráð fyrir því að þriðjungur kvenna verði fyrir kynferðislegu eða líkamlegu ofbeldi og flest okkar upplifa alvarleg veik- indi og/eða ástvinamissi einhvern tímann á lífsleiðinni. Til viðbótar við aukna hættu á geðröskunum í kjölfar áfalla hafa rannsóknir á síðustu árum rennt styrkum stoðum undir tengsl áfalla og áfallatengdra raskana við þróun líkamlegra sjúkdóma. Áhugi vísindamanna á þætti áfalla og streitu í þró- un líkamlegra sjúkdóma er ekki nýr af nálinni en fyrstu rannsóknir á þessu viðfangsefni voru flestar smáar í sniðum og oft með verulegum aðferðafræðilegum annmörkum. Þó komu fram vísbendingar um tengsl streitu við þróun kvefpesta sem og áhrif samfélagslegra áfalla, til dæmis náttúruhamfara, á dánartíðni af völd- um hjarta- og æðasjúkdóma. Upp úr aldamótum hafa einnig bæst við sterkar vísbendingar úr dýramódelum og klínískum rannsóknum á mönnum um sál-lífeðl- isfræðilega ferla streitu um undirstúku-heiladinguls- nýrnahettu-öxulinn og sympatíska taugakerfið og nei- kvæð áhrif þeirra á hjarta-, æða- og ónæmiskerfi. Eftir nær 20 ára vísindastarf á þessu sviði hlaut rannsóknarhópur minn fyrir nokkru veglega styrki frá Evrópska rannsóknarráðinu og Rannsóknasjóði Íslands sem gefa starfi okkar verulega innspýtingu. Hluti rannsóknanna er unninn hér á Íslandi, meðal annars rannsóknin Áfallasaga kvenna í samstarfi við Íslenska erfðagreiningu, en hluti er unninn í Svíþjóð. Markmið rannsóknanna er að varpa ljósi á breytileika í heilsufarsþróun í kjölfar áfalla. Fyrstu niðurstöður úr sænska hluta verkefnis okkar hafa birst á síðastliðnu ári í þremur vísindagreinum í tveimur af fremstu al- þjóðlegu vísindatímaritunum í læknisfræði. Í þessum rannsóknum fylgdum við eftir á bilinu 106-145.000 einstaklingum með áfalla- og streitutengdar raskanir, þar á meðal áfallastreituröskun, áfallastreituviðbrögð, aðlögunarröskun og önnur streitutengd viðbrögð, og bárum sjúkdómsáhættu þeirra saman við alsystkini þeirra og óskylda einstaklinga (kyn- og aldursparað) án slíkra raskana. Í rannsóknarsniði og tölfræðilegri úrvinnslu lögðum við okkur fram um að taka tillit til fé- lags- og hagfræðilegrar stöðu, sögu um fyrri sjúkdóma (geðrænna og líkamlegra) og annarra blöndunarþátta. Niðurstöður sýna ótvírætt að fólk með áðurnefndar áfallatengdar raskanir er í um 30% aukinni áhættu á fjölmörgum sjálfsofnæmissjúkdómum,4 30-60% auk- inni áhættu á hjarta- og æðasjúkdómum5 og um 50% aukinni áhættu á ýmsum lífshættulegum sýkingum á borð við heilahimnubólgu, hjartaþelsbólgu og blóðsýk- ingum.6 Yngri einstaklingar með áfallatengdar raskanir voru í meiri áhættu á ofangreindum sjúkdómum sem og einstaklingar með svæsnari áfallatengdar raskanir. Á hinn bóginn virtist áhætta á þessum illvígu sjúkdóm- um vera minni meðal fólks sem tók SSRI-lyf fyrsta árið eftir greiningu áfallatengdu röskunarinnar, sem gefur ákveðna vísbendingu um gagnsemi slíkra íhlutana. Starfi okkar er hvergi nærri lokið en í deiglunni eru meðal annars rannsóknir á áhrifum slíkra raskana á þróun taugasjúkdóma og krabbameina, og erfðarann- sóknir á breytileika heilsufars í kjölfar áfalla. Þessi nýja þekking á brýnt erindi við lækna og annað heilbrigðisstarfsfólk með skjólstæðinga og aðstandend- ur þeirra sem eru að ganga í gegnum mjög þungbæra lífsreynslu. Hér getur fræðsla, aukið eftirlit, skimun og, eftir atvikum, tilvísun í geðheilbrigðisþjónustu skipt máli til að minnka líkur á frekari heilsubresti hjá þess- um viðkvæmu hópum. Heimildir 1. Rosling H, Rosling O AR. R. Factfulness. Flatiron Books, New York 2018. 2. Jónsdóttir LS, Jensson V. Þróun tóbaksneyslu á Íslandi. Embætti land- læknis, Reykjavík 2016. 3. Steel Z, Marnane C, Iranpour C, Chey T, Jackson JW, Patel V, et al. The global prevalence of common mental disorders: a systematic review and meta-analysis 1980-2013. Int J Epidemiol 2014; 43: 476-93. 4. Song H, Fang F, Tomasson G, Arnberg FK, Mataix-Cols D, Fernández de la Cruz L, et al. Association of Stress-Related Disorders With Subsequent Autoimmune Disease. JAMA 2018; 319: 2388-400. 5. Song H, Fang F, Arnberg FK, Mataix-Cols D, Fernández de la Cruz L, Almqvist C, et al. Stress related disorders and risk of cardiovascular disease: population based, sibling controlled cohort study. BMJ 2019; 365: l1255. 6. Song H, Fall K, Fang F, Erlendsdóttir H, Lu D, Mataix-Cols D, et al. Stress related disorders and subsequent risk of life threatening infect- ions: population based sibling controlled cohort study. BMJ 2019; 367: l5784. Stress-related disorders – a major challenge of 21st century medical sciences Unnur Anna Valdimarsdóttir PhD Clinical Epidemiology, Professor of Epidemiology, Faculty of Medicine, University of Iceland. R I T S T J Ó R N A R G R E I N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.