Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - des. 2019, Blaðsíða 58

Læknablaðið - des. 2019, Blaðsíða 58
594 LÆKNAblaðið 2019/105 L I P R I R P E N N A R Undir miðnætti seint í nóvembermánuði árið 1976 ek ég þjóðveg 15 í Connecticut til suðurs í stormi og slagveðursrigningu. Brátt ber mig að smábæ. Eftir nokkra leit sé ég illa lýst skilti: Berwick Fun Home. Einhver gárunginn hefur greinilega málað yfir -eral. Já, þú ert náunginn frá Augn- bankanum, segir maðurinn sem tekur á móti mér. Hann vildi endilega gefa úr sér augun ef þau gætu orðið einhverjum að gagni. Stundarfjórðungi síðar bogra ég yfir líki öldungs í opinni kistu. Á höfði mannsins er gyðingahúfa. Á framhand- legginn er flúruð tala: A-19745. Auschwitz, segir næturvörðurinn. Þetta var talan hans í Auschwitz. Átti hann fjölskyldu? Hún dó öll í fangabúðunum en hann kom hingað eftir stríð. Ég tek til við að fjarlægja augun og velti fyrir mér hvað þau hafi séð í útrým- ingarbúðunum. Voru þau full af hatri eftir þá reynslu? Eða bjó A-19745 yfir þroska Dalai Lama sem eitt sinn var spurður að því hvort hann hataði ekki kínversk stjórnvöld? Þau hafa rænt okkur öllu, sagði hann. Eigum við að láta þau ræna huga okkar líka? Þegar ég ek heimleiðis hefur stormur- inn færst í aukana. Skyndilega kem ég auga á tré sem fallið hefur á veginn framundan. Ég næ að sveigja bílinn fram- hjá trénu og hemla. Við þetta fer augn- krukkan á hliðina og lokið hrekkur af. Í sömu mund dregur frá tungli svo bíllinn ljómar að innan. Eitt andartak horfumst við í augu, ég og A-19745. Þetta augnablik er fryst að eilífu fyrir sjónum mínum og í hvert sinn sem ég leiði hugann að því sem aflaga fer í þessum heimi af mannavöld- um, birtast augu gyðingsins mér. Helförin er eilífur minnisvarði um ískalda, yfirvegaða illsku og átti að vera það víti til varnaðar komandi kynslóðum sem tryggði að aldrei gæti neitt í líkingu við það gerst aftur. Öll vitum við hver raunin hefur orðið. Við fáum reglulega fréttir af voðaverkum af ýmsu tagi hér og þar í heiminum og bregðumst við þeim með votti af ógleði í fyrstu en síðan með vaxandi fáleika þess sem stöðug endur- tekning sínkhúðar smám saman gegn hugarangri og meðlíðan. Þetta gerist held- ur ekki í okkar eigin ranni, heldur hinu megin á hnettinum. Við erum blessunar- lega stikkfrí. En við erum fráleitt stikkfrí gagnvart nýrri ógn sem enginn getur látið sem ekki sé til með því að líta undan eða afneita. Ástæðan er auðvitað sú að þessa ógn eig- um við öll þátt í að skapa, ekki bara hópur siðblindingja. Aðförin að jörðinni í formi rányrkju, mengunar og háskahlýnunar andrúmsloftsins kallar, auk annars, á rót- tæka endurskoðun þeirra gilda sem lengi hafa verið leiðarljós okkar Vesturlandabúa. Engu er líkara er en við höfum sammælst um að tortíma okkur hægt en örugglega undir gunnfána gróðahyggju og gervi- þarfa og þykknandi hjúpi koltvísýrings, metans og annarra gróðurhúsaloftegunda, auk mengandi sóts. Kemur þessi óheillaþróun okkur lækn- um sérstaklega við? Svo sannarlega. Þegar má merkja bein og óbein áhrif hennar á heilsufar og að óbreyttu verða þau geig- vænleg áður en yfir lýkur. Þegar leikskóla- börn dagsins í dag hafa náð miðjum aldri verður Norðurpóllinn horfinn. Á sama tíma hafa stórir heimshlutar að óbreyttu breyst í dystópíu, nær óbyggileg eymdar- pláss. Ein afleiðing loftslagsbreytinga er stóraukin tíðni fjölmargra sjúkdóma. Út- setning fyrir örsmáum sótögnum og öðru svifryki er líklega veigamikill áhættu- þáttur hjartasjúkdóma, mögulega gegnum áhrif á endóþel og blóðstorknun. Þá eykur loftmengun algengi og tíðni versnunar á öndunarfæra- og ofnæmissjúkdómum og verður í síauknum mæli hættuleg heilsu eldra fólks, barna og þungaðra kvenna með ýmsu móti. Smitsjúkdómar fylgja auknum náttúruhamförum einsog skuggi, oftar en ekki í mynd farsótta. Þannig mætti lengi telja. Önnur afleiðing eru fordæmalausir fólksflutningar. Loftslagsflóttamenn frá flestum heimshornum munu knýja dyra á Vesturlöndum sem munu ekki telja sig þess umkomin að taka við þeim. Ísland verður þar ekki undantekning ef að líkum lætur. Margir óttast að of seint sé að snúa þessari þróun við. Í því er fullmikil svart- sýni fólgin. En skjótra og róttækra aðgerða er þörf. Því miður er lítil ástæða til að ætla að stjórnvöldum einum sé treystandi til að draga vagninn. Lykillinn að árangri hlýtur miklu frekar að felast í breiðri samstöðu almennings sem þrátt fyrir þjónkun við markaðsöfl og eigin skammsýni, getur vonandi, við löngu tímabæra sjálfskoðun, ekki hugsað sér að ógna lífsviðurværi af- komenda sinna. Við læknar getum lagt baráttunni lið með því að fjalla sem fagmenn tæpitungu- laust um heilsufarsafleiðingar loftslags- breytinga en líka sem einstaklingar sem er of annt um arfleifð okkar til þess að fórna henni á altari stundarhagsmuna, afkomendum okkar til óbætanlegs skaða. Að óbreyttu er nefnilega hætt við því að þegar þeir beina sjónum til baka að hegð- un okkar verði lítil sátt í augum þeirra. Nema við gyrðum okkur rækilega í brók og göngum í lið með náttúrunni í stað þess að murka úr henni lífið. Upphafsljóðið í bókinni Splunkunýr dagur (1973) eftir Pétur Gunnarsson hljóðar svo: af jarðarinnar hálfu byrja allir dagar fallega þolimóð snýst hún og snýst með trén og höfin og vötnin eyðimerkurnar og eldfjöllin okkur tvö og ykkur hin og öll dýrin Þolinmæði jarðarinnar eru takmörk sett. Og fallegir dagar gætu heyrt sögunni til fyrr en okkur grunar. Miklu fyrr. Augu fortíðar og framtíðar Ari Jóhannesson lyflæknir og rithöfundur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.