Læknablaðið - des. 2019, Síða 58
594 LÆKNAblaðið 2019/105
L I P R I R P E N N A R
Undir miðnætti seint í nóvembermánuði
árið 1976 ek ég þjóðveg 15 í Connecticut
til suðurs í stormi og slagveðursrigningu.
Brátt ber mig að smábæ. Eftir nokkra leit
sé ég illa lýst skilti: Berwick Fun Home.
Einhver gárunginn hefur greinilega málað
yfir -eral. Já, þú ert náunginn frá Augn-
bankanum, segir maðurinn sem tekur á
móti mér. Hann vildi endilega gefa úr sér
augun ef þau gætu orðið einhverjum að
gagni. Stundarfjórðungi síðar bogra ég
yfir líki öldungs í opinni kistu. Á höfði
mannsins er gyðingahúfa. Á framhand-
legginn er flúruð tala: A-19745. Auschwitz,
segir næturvörðurinn. Þetta var talan
hans í Auschwitz. Átti hann fjölskyldu?
Hún dó öll í fangabúðunum en hann kom
hingað eftir stríð.
Ég tek til við að fjarlægja augun og
velti fyrir mér hvað þau hafi séð í útrým-
ingarbúðunum. Voru þau full af hatri eftir
þá reynslu? Eða bjó A-19745 yfir þroska
Dalai Lama sem eitt sinn var spurður
að því hvort hann hataði ekki kínversk
stjórnvöld? Þau hafa rænt okkur öllu, sagði
hann. Eigum við að láta þau ræna huga
okkar líka?
Þegar ég ek heimleiðis hefur stormur-
inn færst í aukana. Skyndilega kem ég
auga á tré sem fallið hefur á veginn
framundan. Ég næ að sveigja bílinn fram-
hjá trénu og hemla. Við þetta fer augn-
krukkan á hliðina og lokið hrekkur af. Í
sömu mund dregur frá tungli svo bíllinn
ljómar að innan. Eitt andartak horfumst
við í augu, ég og A-19745. Þetta augnablik
er fryst að eilífu fyrir sjónum mínum og í
hvert sinn sem ég leiði hugann að því sem
aflaga fer í þessum heimi af mannavöld-
um, birtast augu gyðingsins mér.
Helförin er eilífur minnisvarði um
ískalda, yfirvegaða illsku og átti að vera
það víti til varnaðar komandi kynslóðum
sem tryggði að aldrei gæti neitt í líkingu
við það gerst aftur. Öll vitum við hver
raunin hefur orðið. Við fáum reglulega
fréttir af voðaverkum af ýmsu tagi hér og
þar í heiminum og bregðumst við þeim
með votti af ógleði í fyrstu en síðan með
vaxandi fáleika þess sem stöðug endur-
tekning sínkhúðar smám saman gegn
hugarangri og meðlíðan. Þetta gerist held-
ur ekki í okkar eigin ranni, heldur hinu
megin á hnettinum. Við erum blessunar-
lega stikkfrí.
En við erum fráleitt stikkfrí gagnvart
nýrri ógn sem enginn getur látið sem ekki
sé til með því að líta undan eða afneita.
Ástæðan er auðvitað sú að þessa ógn eig-
um við öll þátt í að skapa, ekki bara hópur
siðblindingja. Aðförin að jörðinni í formi
rányrkju, mengunar og háskahlýnunar
andrúmsloftsins kallar, auk annars, á rót-
tæka endurskoðun þeirra gilda sem lengi
hafa verið leiðarljós okkar Vesturlandabúa.
Engu er líkara er en við höfum sammælst
um að tortíma okkur hægt en örugglega
undir gunnfána gróðahyggju og gervi-
þarfa og þykknandi hjúpi koltvísýrings,
metans og annarra gróðurhúsaloftegunda,
auk mengandi sóts.
Kemur þessi óheillaþróun okkur lækn-
um sérstaklega við? Svo sannarlega. Þegar
má merkja bein og óbein áhrif hennar á
heilsufar og að óbreyttu verða þau geig-
vænleg áður en yfir lýkur. Þegar leikskóla-
börn dagsins í dag hafa náð miðjum aldri
verður Norðurpóllinn horfinn. Á sama
tíma hafa stórir heimshlutar að óbreyttu
breyst í dystópíu, nær óbyggileg eymdar-
pláss.
Ein afleiðing loftslagsbreytinga er
stóraukin tíðni fjölmargra sjúkdóma. Út-
setning fyrir örsmáum sótögnum og öðru
svifryki er líklega veigamikill áhættu-
þáttur hjartasjúkdóma, mögulega gegnum
áhrif á endóþel og blóðstorknun. Þá eykur
loftmengun algengi og tíðni versnunar á
öndunarfæra- og ofnæmissjúkdómum og
verður í síauknum mæli hættuleg heilsu
eldra fólks, barna og þungaðra kvenna
með ýmsu móti. Smitsjúkdómar fylgja
auknum náttúruhamförum einsog skuggi,
oftar en ekki í mynd farsótta. Þannig
mætti lengi telja.
Önnur afleiðing eru fordæmalausir
fólksflutningar. Loftslagsflóttamenn frá
flestum heimshornum munu knýja dyra
á Vesturlöndum sem munu ekki telja sig
þess umkomin að taka við þeim. Ísland
verður þar ekki undantekning ef að líkum
lætur.
Margir óttast að of seint sé að snúa
þessari þróun við. Í því er fullmikil svart-
sýni fólgin. En skjótra og róttækra aðgerða
er þörf. Því miður er lítil ástæða til að ætla
að stjórnvöldum einum sé treystandi til að
draga vagninn. Lykillinn að árangri hlýtur
miklu frekar að felast í breiðri samstöðu
almennings sem þrátt fyrir þjónkun við
markaðsöfl og eigin skammsýni, getur
vonandi, við löngu tímabæra sjálfskoðun,
ekki hugsað sér að ógna lífsviðurværi af-
komenda sinna.
Við læknar getum lagt baráttunni lið
með því að fjalla sem fagmenn tæpitungu-
laust um heilsufarsafleiðingar loftslags-
breytinga en líka sem einstaklingar sem
er of annt um arfleifð okkar til þess að
fórna henni á altari stundarhagsmuna,
afkomendum okkar til óbætanlegs skaða.
Að óbreyttu er nefnilega hætt við því að
þegar þeir beina sjónum til baka að hegð-
un okkar verði lítil sátt í augum þeirra.
Nema við gyrðum okkur rækilega í brók
og göngum í lið með náttúrunni í stað
þess að murka úr henni lífið.
Upphafsljóðið í bókinni Splunkunýr
dagur (1973) eftir Pétur Gunnarsson hljóðar
svo:
af jarðarinnar hálfu
byrja allir dagar fallega
þolimóð snýst hún og snýst
með trén og höfin og vötnin
eyðimerkurnar og eldfjöllin
okkur tvö og ykkur hin
og öll dýrin
Þolinmæði jarðarinnar eru takmörk
sett. Og fallegir dagar gætu heyrt sögunni
til fyrr en okkur grunar. Miklu fyrr.
Augu
fortíðar og
framtíðar
Ari Jóhannesson
lyflæknir og rithöfundur