Læknablaðið - Dec 2019, Page 9
LÆKNAblaðið 2019/105 545
R I T S T J Ó R N A R G R E I N
DOI: 10.17992/lbl.2019.12.259
Heilsa þjóðar í efnahagsmælingum
Measuring health and its
economic significance
Tinna Laufey Ásgeirsdóttir,
Ph.D. in Economics
Faculty of Economics,
University of Iceland
Tinna Laufey
Ásgeirsdóttir
Prófessor í hagfræði
við Háskóla Íslands
ta@hi.is
Mælikvarðar á borð við landsframleiðslu eru al-
gengir til að meta almenna velferð í samfélögum. Þó
ber að líta á slíka mælikvarða sem grófa leiðbeiningu
sem metur verðmæti þess sem í samfélaginu er fram-
leitt og neytt. Það sem fellur sjálfkrafa inn í þennan
tiltekna mælikvarða – landsframleiðslu – eru hlutir
sem við eigum formleg viðskipti með. Margvísleg
verðmæti sem geta skipt okkur töluverðu máli falla
utan þessa tiltekna kvarða sem og margra annara
sem nýttir eru til að átta sig á stærðum og verðmæt-
um í samfélaginu. Valið á aðferð skýrist oft af því
hversu aðgengilegar slíkar mælingar eru, frekar en
hversu nákvæmar þær eru. Það getur til dæmis ver-
ið svo að augljóslega óæskilegir þættir í samfélaginu
hafi jákvæð áhrif á landsframleiðslu. Klassískt dæmi
væri mikil eyðilegging á innviðum vegna náttúru-
hamfara sem í framhaldinu þarf að endurbyggja.
Uppbyggingin eykur landsframleiðslu, þó hverjum
manni sé ljóst að eyðileggingin var ekki til bóta.
Vegna þessa fer mikið púður innan hagfræðinnar í
að meta margvíslega þætti sem ekki hafa á sér aug-
ljósan verðmiða til að hægt sé að taka tillit til þeirra
þegar skoða á hvernig fólki farnast. Margvísleg
mælitæki eru til sem leiðrétta mælingar á þjóðarhag
(fyrir áhugasama má benda á GPI (Genuine Progress
Indicator) sem eitt dæmi um aðlagaða þjóðhags-
reikninga).
Nýlega stigu íslensk yfirvöld ákveðin skref í þá
átt að útbúa víðtækari mælikvarða fyrir velferð í
samfélaginu en þjóðarframleiðsla ein og sér veit-
ir okkur og skipuðu nefnd um þróun mælikvarða
um hagsæld og lífsgæði.1 Til að ná markmiðum um
aukna velsæld í víðu samhengi er þó ekki nóg að
mæla slíkt fyrir samfélagið í heild. Fyrst og fremst
þarf að huga að og meta fórnir og ávinning með
sama hætti þegar einstakar ákvarðanir eru teknar
af yfirvöldum. Í hvert skipti sem við veltum mögu-
legum ákvörðunum fyrir okkur er þannig gagnlegt
að meta og bera saman þann ávinning sem næst og
þær fórnir sem þarf að færa. Til að hámarka gæði,
verðum við að forðast að fórna meiri gæðum fyrir
minni. Með sama hætti og það er vandasamt að taka
óáþreifanleg gæði til greina í þjóðhagsreikningum
er slíkt einnig flókið þegar takast þarf á við mat á
einstökum ákvörðunum. Í báðum tilfellum er mæli-
vandinn töluverður þegar kemur að heilsu, enda
felst megnið af ávinningi af íhlutunum á því sviði í
bættri líðan og minni þjáningum. Vissulega skiptir
það máli ef einstaklingur hlýtur bót meina sinna að
framleiðslugeta hans eykst hugsanlega og að heil-
brigðiskostnaður til lengri tíma dregst saman. Þetta
eru þó oft smámunir miðað við virði þeirrar heilsu-
tengdu lífsgæða sem einstaklingurinn sjálfur öðl-
aðist. Þá er spurningin hvort og hvernig hægt sé að
meta virði heilsunnar og taka með í reikninginn við
hagkvæmnismat íhlutana. Heilsa er flestum mikil-
væg en er þó ekki það eina sem veitir fólki velferð.
Ekki er hægt að gera ráð fyrir því að markmiðið sé
einungis að samfélagsþegnarnir séu sem hraustastir
og ekki er alltaf víst að áunnin heilsa sé fórnanna
virði.
Ég stýri alþjóðlegu rannsóknarteymi sem hefur
það einmitt að markmiði að meta virði óáþreifan-
legra gæða og hefur heilsa verið ofarlega á dagskrá
hópsins. Við nýtum helst svokallaða tekjuuppbót-
araðferð (Compensating income variation) og ber
hópurinn yfirskriftina ConCIV (Consortium on
Compensating Income variation) eða „Teymi um
tekjuuppbót“ á íslensku.2 Nýjasta rannsókn hóps-
ins birtist til dæmis í tímaritinu Economics & Human
Biology og fjallar um virði þess að þurfa ekki að þola
sársauka.3 Áhugasömum um aðferðina er bent á vef-
síðu rannsóknarteymisins.2
Vissulega er allt mat á borð við það sem hér er
lýst flókið og vandasamt. En markmiðið hlýtur að
vera að reyna sem best við getum að mæla það sem
máli skiptir frekar en að nýta þær mælingar sem við
eigum vegna einfaldleika þeirra. Mikilvægi óáþreif-
anlegra gæða sem verða til í heilbrigðiskerfinu eru
svo afgerandi að sá vandi sem verður í hagkvæmn-
isútreikningum ef slíkt er ekki tekið til greina getur
verið gríðarlegur. Heilbrigðiskerfið er fyrirferðar-
mikill hluti hagkerfisins. Þar starfar fólk sem leggur
metnað sinn í að vinna í samræmi við bestu gagn-
reyndu þekkingu sem til er hverju sinni. Það skýtur
því skökku við ef ákvarðanir um hvert auðlindum
innan kerfisins er beint byggir ekki með sama hætti
á bestu upplýsingum, heldur með tilviljanakennd-
um hætti á brjóstvitinu, áhrifamætti hagsmunaafla
og getgátum. Þess vegna er mikilvægt að leita allra
leiða til að magnbinda þær fórnir og þann ávinning
sem íhlutanir innan kerfisins valda.
Heimildir
1. Stjórnarráð Íslands, stjornarradid.is/raduneyti/nefndir/nanar-um-
nefnd/?itemid=6e9595c5-88ee-11e8-942c-005056bc530c - nóvember 2019.
2. Háskóli Íslands, english.hi.is/faculty_of_economics/conciv - nóvember
2019.
3. Ólafsdóttir Þ, Ásgeirsdóttir TL, Norton EC. Valuing Pain using the
Subjective Well-being Method. Economics & Human Biology 2019;
100827.