Læknablaðið - Dec 2019, Page 19
R A N N S Ó K N
Inngangur
Meðgöngusykursýki er vaxandi vandamál á heimsvísu og benda
erlendar rannsóknir til þess að algengi sé frá <1-28%.1 Á Íslandi hef-
ur tíðnin aukist umtalsvert á síðustu árum og árið 2018 greindust
613 konur, eða samtals 16% kvenna sem voru í mæðravernd hjá
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH), með meðgöngusykur-
sýki.
Til samanburðar voru greiningarnar einungis 209 árið 2014,
sem sýnir að fjöldi kvenna í mæðravernd hjá HH sem greindust
með meðgöngusykursýki þrefaldaðist á árunum 2014-2018. Sam-
bærilegar tölur sjást úr gagnagrunni Landspítala þar sem 18,5%
kvenna sem fæddu á spítalanum árið 2018 höfðu þessa greiningu.
Ný og strangari greiningarskilmerki fyrir meðgöngusykursýki
voru tekin upp á Íslandi árið 2012 í samræmi við alþjóðlegar leið-
beiningar. Leiðbeiningarnar byggja á niðurstöðum HAPÓ-rann-
sóknarinnar sem gerð var á yfir 23.000 hraustum konum í með-
göngu og sýndi að bein tengsl eru á milli hækkandi blóðsykurs
móður á meðgöngu og aukinnar tíðni fylgikvilla hjá bæði móður
og barni.2 Konur sem fá meðgöngusykursýki eru í verulega auk-
inni hættu á að fá hana aftur á síðari meðgöngum auk þess sem
þær eru í aukinni hættu á að þróa með sér sykursýki tegund 2 (SS2)
síðar á lífsleiðinni.3,4 Afturskyggnar rannsóknir hafa sýnt að þrátt
fyrir strangari greiningarskilmerki er þessi áhætta áfram umtals-
verð og sýndu Lowe og félagar fram á að konur sem greindust
Meðferð með hreyfiseðli
í kjölfar meðgöngusykursýki
Þórunn Jóhanna Júlíusdóttir1,2 læknir
Hannes Hrafnkelsson1,2 læknir
Ragnheiður I. Bjarnadóttir1,2,3 læknir
Sesselja Guðmundsdóttir 3 hjúkrunarfræðingur
Ragnheiður Bachmann1,3 ljósmóðir
Karitas Ívarsdóttir1,3 ljósmóðir
Jón Steinar Jónsson1,2,3 læknir
1Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, 2Háskóla Íslands,
3Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu.
Fyrirspurnum svarar Þórunn J. Júlíusdóttir
thorunn.johanna.juliusdottir@heilsugaeslan.is
með meðgöngusykursýki voru meira en þrisvar sinnum líklegri
en konur án sögu um meðgöngusykursýki (OR 3,44), til að þróa
með sér SS2 innan 11 ára.5
Ofþyngd og hreyfingarleysi eru sterkir áhættuþættir fyrir með-
göngusykursýki6-8 og benda rannsóknir til þess að stór hluti íbúa
á Vesturlöndum hreyfi sig minna en æskilegt er.9 Algengi offitu
og ofþyngdar hefur verið vaxandi á Íslandi á síðustu áratugum
eins og á öðrum Vesturlöndum10 og með vaxandi tíðni offitu má
búast við að tíðni meðgöngusykursýki og SS2 muni halda áfram
að aukast.11,12 Niðurstöður erlendra rannsókna hafa sýnt að aukin
hreyfing eftir fæðingu hjá konum sem hafa greinst með meðgöngu-
sykursýki dregur úr líkum á að þær þrói með sér efnaskiptavillu
(metabolic syndrome), SS2 og meðgöngusykursýki á síðari meðgöng-
um.13-16 Þrátt fyrir að áhættuþættir meðgöngusykursýki og SS2
Á G R I P
TILGANGUR
Algengi meðgöngusykursýki fer hratt vaxandi og tæplega 19% kvenna
sem fæddu á Landspítala á árinu 2018 höfðu þessa greiningu. Þær
konur sem fá meðgöngusykursýki eru í aukinni hættu að fá hana
aftur á síðari meðgöngum og einnig í aukinni áhættu á að þróa sykur-
sýki tegund 2 síðar á ævinni. Ofþyngd og hreyfingarleysi eru sterkir
áhættuþættir. Hreyfiseðill er meðferðarúrræði sem stendur til boða á
öllum heilbrigðisstofnunum. Markmið rannsóknarinnar var að kanna
áhrif meðferðar með hreyfiseðli eftir fæðingu hjá konum sem höfðu
meðgöngusykursýki, á virkni þeirra, líðan og þætti sem tengjast efna-
skiptavillu.
EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR
Konur sem fæddu börn frá 1. janúar 2016 til 30. júní 2017, voru í
mæðravernd hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og greindust
með meðgöngusykursýki var boðin þátttaka. Þátttakendum var skipt
tilviljanakennt í tvo hópa þar sem annar hópurinn fékk meðferð með
hreyfiseðli í 5 mánuði en viðmiðunarhópurinn hefðbundna meðferð.
Mælingar á blóðgildum, hæð, þyngd, virkni og líðan voru gerðar þrem-
ur mánuðum og 8 mánuðum eftir fæðingu.
NIÐURSTÖÐUR
Áttatíu og fjórar konur tóku þátt, 45 í íhlutunarhópi og 39 í viðmiðun-
arhópi. Virkni jókst marktækt í íhlutunarhópi en ekki urðu marktækar
breytingar á blóðmælingum. Viss áhrif en ekki marktæk mældust á
þyngd, líkamsþyngdarstuðli og lífsgæðum. Þær konur sem voru með
barn sitt á brjósti voru með marktækt lægra insúlín en þær konur sem
ekki voru með barn sitt á brjósti. Sterkari fylgni var á milli þyngdar og
insúlíns en á milli fastandi blóðsykurs og insúlíns.
ÁLYKTUN
Meðferð með hreyfiseðli eftir fæðingu jók marktækt virkni kvenna sem
höfðu meðgöngusykursýki. Brjóstagjöf hefur mögulega áhrif til lækk-
unar insúlíns.
LÆKNAblaðið 2019/105 555