Læknablaðið - dec 2019, Qupperneq 21
LÆKNAblaðið 2019/105 557
R A N N S Ó K N
fæðingu) og lok rannsóknar (8 mánuðum eftir fæðingu) þyngdist
viðmiðunarhópurinn að meðaltali um 1,2 kg og líkamsþyngdar-
stuðull hækkaði um 0,6 kg/m en íhlutunarhópurinn léttist að
meðaltali um 0,25 kg og líkamsþyngdarstuðull lækkaði um 0,1 kg/
m2. Þótt konur í íhlutunarhópnum hafi lést en í viðmiðunarhópn-
um þyngst var munurinn ekki tölfræðilega marktækur (p=0,11).
Engar marktækar breytingar urðu á fastandi blóðsykri, lang-
tímasykri, blóðfitum eða s-insúlíni, hvorki innan hópa né á milli
hópanna.
Fylgni milli s-insúlíns og líkamsþyngdarstuðuls (r=0,69 p<0,01)
var sterkari en fylgni milli s-insúlíns og fastandi blóðsykurs
(r=0,44 p<0,01) þegar allur rannsóknarhópurinn var skoðaður í
upphafi rannsóknartímabilsins (mynd 1).
Alls höfðu 86,2% þátttakenda barn sitt á brjósti þremur mánuð-
um eftir fæðingu. Þær konur sem ekki gáfu brjóst á þessum tíma-
punkti voru marktækt þyngri en konur sem gáfu brjóst og einnig
höfðu þær marktækt hærra s-insúlín 20,9 mU/L (6,6) en þær kon-
ur sem gáfu barni sínu brjóst 8,9 mU/L (4,7), p<0,01. Þrátt fyrir að
leiðrétt væri fyrir þyngd voru þær konur sem gáfu brjóst þrem-
ur mánuðum eftir fæðingu með marktækt lægra s-insúlín, bæði
þremur og 8 mánuðum eftir fæðinguna (p<0,01).
Lífsgæði þeirra kvenna sem voru í íhlutunarhópi bötnuðu sam-
anborið við viðmiðunarhóp, en munurinn náði ekki marktækni
(p=0,20).
Tafla I. Fjöldi þátttakenda (n), meðalgildi (M), staðalfrávik (SD) og p-gildi (p) mælinga, í upphafi og lok rannsóknartímabils. P-gildi miðast við þær mælingar þar sem
bæði fengust mælingar í upphafi og lok rannsóknartímabilsins*.
Íhlutunarhópur (n=45) Viðmiðunarhópur (n=39)
Upphaf Lok Upphaf Lok
n M(SD) n M(SD) p n M(SD) n M(SD) p
Virkni (stig *) 35 4,5(4,2) 26 7,5(3,8) 0,048 30 4,7(3,7) 23 5,3(3,6) 0,272
Þyngd (kg) 38 84,9(15,2) 29 83,2(15,6) 0,789 32 88,5(19,1) 23 92,5(20,6) 0,331
LÞS (kg/m2) 35 31,1(5,3) 29 30,4(5,2) 0,789 31 31,8(6,1) 22 33,1(6,7) 0,317
Slagbilþrýstingur (mmHg) 40 114,8(12,4) 30 111,8(13,3) 0,550 32 116,3(14,0) 24 117,0(15,9) 0,855
Þanbilsþrýstingur (mmHg) 40 77,5(9,8) 29 75,5(7,3) 0,432 32 80,0(9,4) 23 79,9(7,4) 0,809
Blóðsykur (mmól/L) 42 5,1(0,5) 24 5,1(0,4) 0,650 36 5,2(0,5) 22 5,2(0,6) 0,781
HbA1c (%) 39 5,1(0,3) 23 5,2(0,2) 0,375 33 4,9(0,3) 22 5,1(0,2) 0,031
Insúlín (mU/L) 41 9,2(6,5) 24 10,1(5,3) 0,218 32 12,0(6,8) 22 13,9(7,6) 0,084
Kólesteról (mmól/L) 42 5,3(0,9) 24 5.0(1.0) 0,026 35 5,2(0,7) 22 4,6(0,8) 0,102
Háþéttnifituprótein (mmól/L) 42 1,7(0,4) 24 1,7(0,4) 0,068 36 1,5(0,4) 22 1,4(0,4) 0,034
Þríglýseríðar (mmól/L) 42 0,9(0,4) 24 0,9(0,4) 0,752 36 1,1(0,6) 22 0,9(0,4) 0,211
Lífsgæði (16-112 stig) 26 88,7(10,4) 26 90,6(10,4) 0,283 24 87,8(10.3) 24 86,8(11,6) 0,321
Brjóstagjöf (%) 88 83
Reykingar (n) 0 1
LÞS = líkamsþyngdarstuðull. *Sjá viðauka.
Mynd 1. Fylgni milli s-insúlíns og líkamsþyngdarstuðuls (r=0,69) og milli s-insúlíns og fastandi blóðsykurs (r=0,44) hjá öllum þátttakendum í upphafi rannsóknartímabils.