Læknablaðið - dec 2019, Qupperneq 44
580 LÆKNAblaðið 2019/105
Tíðni ofþyngdar og offitu barna er vax-
andi um allan heim.1,2 Samkvæmt nýlegum
upplýsingum um þyngd íslenskra barna
hafa þau einnig verið að þyngjast og er nú
um fjórðungur barna á Íslandi í ofþyngd
og 6% þeirra með offitu.3 Börn sem fá
offitu í æsku eru líklegri til að þróa með
sér sjúkdóma tengda offitu í framtíðinni
og er þessi þróun því mikið áhyggjuefni.
Í umræðunni um vandann og hlutverk
forvarna til að sporna við þessari þróun er
mikilvægt að hugað sé að öllum þeim þátt-
um sem þekkt er að geti stuðlað að góðri
heilsu og æskilegri þyngdarstjórnun.4
Í nýlegri umfjöllun fréttaskýringaþátt-
arins Kompáss3 þar sem fjallað var um
vaxandi ofþyngd og offitu íslenskra barna
og rætt var við fagaðila frá Embætti land-
læknis, Heilsuvernd skólabarna og Heilsu-
skóla Barnaspítala Hringsins, vakti athygli
að ekkert var minnst á svefn eða hversu
mikilvægur heilbrigður svefn og góðar
svefnvenjur eru í þyngdarstjórnun.
Góður nætursvefn er nauðsynlegur.
Meðan við sofum vinnur heilinn úr þeim
upplýsingum sem safnast yfir daginn og
ákveður hvað á að leggja á minnið og hvað
ekki og hefur svefn þannig áhrif á getu til
að leysa verkefni, aðgerðaminni, tilfinn-
ingagreind og félagshegðun.
Ónógur svefn hjá börnum kemur ekki
alltaf fram með dæmigerðum einkennum,
svo sem þreytu og dagsyfju, en kemur
gjarnan frekar fram sem hegðunarvanda-
mál og einkenni geta þannig líkst ein-
kennum sjúkdóma á borð við athyglisbrest
og ofvirkni. Þannig eru börn sem sofa lítið
eða illa líklegri til að eiga erfiðara með
nám, eiga oft erfitt með að einbeita sér
og eru einnig líklegri til að líða verr and-
lega en þau börn sem fá nægan og góðan
svefn. Svefn gegnir einnig stóru hlutverki
í hormónastjórnun líkamans og stjórnar
meðal annars losun vaxtarhormóna sem
eru nauðsynleg frumum líkamans til eðli-
legrar endurnýjunar og vaxtar. Ónógur
svefn getur því haft neikvæð áhrif bæði á
líkamlegan og andlegan þroska barna.5-7
Að sofa vel
Fjöldi rannsókna hefur sýnt fram á að
börn sem ekki fá nægan svefn eru líklegri
til að þyngjast og þróa með sér offitu,
jafnvel þegar þættir sem geta haft áhrif
á offitu, svo sem offita foreldra, tími
fyrir framan sjónvarp eða tölvuskjá og
hreyfing, hafa verið teknir til greina.8-12
Sem dæmi má nefna breska rannsókn
sem fylgdi eftir 8000 börnum frá fæðingu
og sýndi fram á að þau þriggja ára börn
sem sváfu skemur en 10,5 klukkustundir
á nóttu voru 45% líklegri til að vera of
þung við 7 ára aldur þegar þau voru borin
saman við börn sem sváfu meira en 12
klukkustundir á nóttu.13
Svefn hefur áhrif á losun hormónanna
leptin og ghrelin sem stjórna svengd. Hjá
börnum sem sofa skemur, eða þar sem
svefngæði eru takmörkuð og lítið er um
djúpsvefn, eru lægri gildi af leptini, sem
veldur seddutilfinningu en hærri gildi af
hormóninu ghrelin sem veldur svengdar-
tilfinningu.14,15 Einnig kemur í ljós að
börnin verða síður södd af því sem þau
borða og að löngun í hitaeiningaríkan og
gjarnan óhollan mat verður meiri.16-18
Svefngæði
Léleg svefngæði hafa einnig áhrif á syk-
ur- og fituefnaskipti sem kemur fram í því
að börn sem eru í kjörþyngd en hafa léleg
svefngæði eru með skert insúlínnæmi,
hærri fastandi blóðsykur og óhagstæða
samsetningu á blóðfitum þegar þau eru
borin saman við jafnaldra í kjörþyngd sem
sofa vel.19 Svefngæði og hversu lengi börn-
in sofa er ekki það eina sem skiptir máli.
Einnig skiptir máli hvenær börn fara að
sofa og hversu reglulegur svefninn er, því
óreglulegar svefnvenjur geta einnig haft
neikvæð áhrif á þyngd og þroska barns-
ins.20 Lengi býr að fyrstu gerð og eru þau
börn sem eru með offitu í æsku líklegri til
að glíma við offitu á fullorðinsárum og eru
líklegri til að þróa með sér hjarta- og æða-
sjúkdóma.4,12,19
Góður svefn og svefnvenjur hafa
þannig jákvæð áhrif bæði á líkamlega og
andlega heilsu barna og bætir líðan þeirra
og lífsgæði almennt. Leggja þarf áherslu á
mikilvægt þess að miðla upplýsingum til
foreldra um hlutverk svefns í bæði þroska
og þyngdarstjórnun barna og ungmenna
B R É F T I L B L A Ð S I N S
Mikilvægi svefns
í þyngdarstjórnun barna
Erla Gerður
Sveinsdóttir1
Sólveig
Magnúsdóttir2
erla@heilsuborg.is
Höfundar eru læknar
1Heilsuborg, Reykjavík,
2MyCardio LLC, Denver, Colorado, Bandaríkjunum.