Læknablaðið - dec 2019, Qupperneq 50
586 LÆKNAblaðið 2019/105
Pétur Heimisson
heimilislæknir
framkvæmdastjóri lækninga
Heilbrigðisstofnun Austurlands
petur@hsa.is
Í umræðu um heilbrigðisþjónustu er oftast skýr
áhersla á að hún skuli vera aðgengileg, óháð til
dæmis efnahag, menntun, starfi og búsetu og al-
menn sátt virðist um að hún greiðist af skattfé að
stærstum hluta. Fólk gerir því ekki bara kröfu um
mestu gæði, heldur líka jöfnuð og réttlæti eins og
mögulegt er.
Mér finnast lög um heilbrigðisþjónustu og lög
um réttindi sjúklinga fanga þetta að miklu leyti og
nýsamþykkt heilbrigðisstefna bæta um betur. Um
margt hefur tekist vel og við eigum gott heilbrigð-
iskerfi en samt er það og verður margt sem þarf að
bæta. Það er meðal annars og ekki síst vegna nýrra
aðstæðna og þarfa þeirra sem kerfið á að þjóna,
einstaklinga og samfélags, og líka sífelldra áskorana
við að fá fagfólk til starfa. Lýðheilsuvísar landlækn-
is sýna að eitt af því sem þarf að bæta er einmitt það
sem við viljum væntanlega öll tryggja: sem best,
jafnast og réttlátast aðgengi allra landsmanna að
heilbrigðisþjónustu.
Að laga heilbrigðisþjónustuna að þörfum
einstaklinga og samfélags hlýtur að vera fyrsta og
æðsta skylda, ekki bara þjóðkjörinna fulltrúa, held-
ur okkar allra og ekki síst okkar sem störfum við
þjónustuna. Talsverð heilbrigðispólitísk umræða er
innan einstakra fagstétta, sem er jákvætt, en þar er
hún stundum í lokuðum hópum skoðanasystkina og
því er hætta á að hún litist af stéttlægum forsend-
um og í versta falli hagsmunagæslu. Að skoða mál
ekki bara af sjónarhóli einnar stéttar, heldur margra
samtímis (þverfaglega), eykur líkur á að fram komi
sjónarmið allra í þjónustuteyminu, hinu virka afli
nútíma heilbrigðisþjónustu. Það stuðlar að víðsýni
og er því líklegt til að hafa jákvæð áhrif á þróun
þjónustu og ekki síst að hún veitist á forsendum
þeirra sem hana þurfa og eru í raun eigendur henn-
ar, okkar, fólksins í landinu.
Með nýrri heilbrigðisstefnu til 2030 færi vel á því
að fag- og stéttarfélög heilbrigðisstarfsfólks tækju
upp reglulegt samráð og samvinnu sín á milli. Það
væri sterkt svar við þeirri áherslu sem stefnan legg-
ur á samstarf og þverfaglega teymisvinnu, til að
tryggja gæði og samfellu í þjónustu. Með slíku sam-
ráði félaganna yrði til breiður samræðuvettvang-
ur fagfólks sem á það sameiginlegt að vilja veita
aðgengilega og sjúklingamiðaða gæðaþjónustu.
Það væri líka í takt við hið mikla samráð fagfólks á
mörgum stofnunum og á milli stofnana sem þegar
á sér stað og byggir á gagnkvæmri virðingu og
þverfaglegri nálgun. Það yrði þessu fagfólki styrkur
ef félögin að baki því ættu í hliðstæðu samtali og
um leið þarft innlegg í heilbrigðispólitíska umræðu
og ákvarðanatöku. Í besta falli yrði til þverfaglegur
akademískur vettvangur, samhliða nauðsynlegri
kjarabaráttu hverrar stéttar fyrir sig, trúverðug rödd
við mótun heilbrigðiskerfis og þjónustu.
Hvað finnst þér?
B R É F T I L B L A Ð S I N S
Við þurfum aukið samtal fagfélaga!
ÁRSHÁTÍÐ
LÆKNAFÉLAGS
ÍSLANDS 2020
Gullhömrum, laugardaginn 25. janúar!
Takið daginn frá
nefndin
LÆKNAFÉLAG ÍSLANDS - MAIN LOGO + 100 YEARS ANNIVERSARY LOGO