Læknablaðið - nov 2018, Qupperneq 13
LÆKNAblaðið 2018/104 493
Nýgengi NSTEMI var 91,3 tilfelli/100.000 íbúa og nýgengi
STEMI var 55,9 tilfelli/100.000 íbúa. Meðaleftirfylgni var 4,9 ár/
tilfelli meðal NSTEMItilfella og 6,7 ár/tilfelli meðal STEMItil
fella. Alls létust 157 NSTEMI (56,1%) og 54 STEMIsjúklingar
(32,3%) á rannsóknartímabilinu. Tafla III sýnir klíníska enda
punkta dauðsfalla og endurinnlagna vegna kransæðastíflu. Hver
sjúklingur er flokkaður einu sinni. Alls voru 74 endurinnlagnir
vegna hjartadreps, þar af voru 55 (19,6%) endurinnlagnir meðal
NSTEMIsjúklinga og 19 (11,4%) endurinnlagnir meðal STEMI
sjúklinga (p<0,02). Alls voru 180 (64,3%) NSTEMIsjúklingar og 67
(40,1%) STEMI sjúklingar sem annaðhvort létust eða fengu aftur
kransæðastíflu á tímabilinu.
Mynd 1 sýnir aldursdreifingu fyrir NSTEMI og STEMI. Meðal
aldur NSTEMIsjúklinga var 73,0 ár en 65,3 ár hjá STEMIsjúkling
um. Meðalaldur í NSTEMIhópnum var 69,9 ár meðal karla og 78,3
ár meðal kvenna (p<0,01). Meðalaldur í STEMIhópnum var 63,1 ár
meðal karla og 70,4 ár meðal kvenna (p<0,01). Meðalaldur kvenna
var hærri í báðum hópum.
Að 5 árum liðnum frá greiningu NSTEMI voru 51% á lífi, eða
144 manns. Brottfall NSTEMIsjúklinga fyrstu 28 dagana eftir
greiningu var 12,1%. Miðgildi lifunar NSTEMI var 5,5 ár, 7 ár hjá
körlum og 3,7 ár hjá konum. Í töflu IV má sjá lifun NSTEMIsjúk
linga skipt eftir kyni. Á mynd 2a er sýnd langtímalifun NSTEMI
sjúklinga. Mynd 2b sýnir að konur höfðu hærri dánartíðni en
karlar (logrank: p=0,022). Áhættuhlutfallið var 1,44 (öryggisbil =
1,051,98) sem samsvarar því að dánartíðni kvenna hafi verið 44%
hærri en hjá körlum. Eftir leiðréttingu fyrir aldri var ekki mark
tækur munur á lifun milli kynja með NSTEMI þar sem konur voru
að meðaltali 8,4 árum eldri en karlar (p=0,24).
R A N N S Ó K N
Tafla III. Klínískir endapunktar, (%).
NSTEMI STEMI p-gildi
Fjöldi dauðsfalla 157 (56,1) 54 (32,3) <0,01
Fjöldi einstaklinga með endurinnlögn vegna
kransæðastíflu
55 (19,6) 19 (11,4) <0,02
Samsettur endapunktur 180 (64,3) 67 (40,1) <0,01
Mynd 1. Gröfin sýna aldursdreifingu kynja þeirra sem fengu NSTEMI (vinstra megin) og STEMI (hægra megin). Einstaklingum var skipt í 8 aldurshópa sem sjást á x-ás mynd-
anna.
Mynd 2. a. Kaplan-Meier graf sem sýnir hlutfall einstaklinga á lífi á ákveðnum tímapunkti. Rauða punktalínan sýnir þann tímapunkt sem 50% NSTEMI-sjúklinga eru á lífi eftir
5,5 ár. b. Lifun NSTEMI-sjúklinga skipt upp eftir kyni þar sem konur höfðu hærri dánartíðni (Logrank: p<0,02).
a b