Læknablaðið - nóv. 2018, Blaðsíða 21
LÆKNAblaðið 2018/104 501
1. de Werra C, di Filippo G, Tramontano R, Aloia S, di Micco
R, Del Giudice R. Giant lipoma in the thigh A case report.
Ann Ital Chir 2016; 87.
2. Silistreli OK, Durmus EU, Ulusal BG, Oztan Y, Gorgu M.
What should be the treatment modality in giant cutaneous
lipomas? Review of the literature and report of 4 cases. Br
J Plast Surg 2005; 58: 3948.
3. Guler O, Mutlu S, Mahirogullari M. Giant lipoma of the
back affecting quality of life. Ann Med Surg 2015; 4: 279
82.
4. Nakamura Y, Teramoto Y, Sato S, Yamada K, Nakamura
Y, Fujisawa Y, et al. Axillary giant lipoma: a report of two
cases and published work review. J Dermatol 2014; 41:
8414.
5. Gungor M, Sir E, Aksoy A, Agirbas S. Giant lipoma
extending into two thigh canals: A case report. Acta
Orthop Traumatol Turc 2017; 51: 2702.
6. Jain G, Tyagi I, Pant L, Nargotra N. Giant Anterior Neck
Lipoma with Bleeding Pressure Ulcer in an Elderly Man:
A Rare Entity. W J Plast Surg 2017; 6: 3658.
7. Virk JS, Verkerk M, Patel H, Ghufoor K. Massive lipoma of
the posterior neck. BMJ Case Rep 2016.
8. Abdulsalam T, Osuafor CN, Barrett M, Daly T. A giant
lipoma. BMJ Case Rep 2015.
9. Rubenstein R, Roenigk HH Jr, Garden JM, Goldberg NS,
Pinski JB. Liposuction for lipomas. J Dermatol Surg Oncol
1985; 11: 10704.
10. Enzinger F, Weiss. S. Soft tissue tumors 6th edition.
Mosby, St. Louis 1983.
Heimildir
Barst til blaðsins 16. maí 2018, samþykkt til birtingar 7. ágúst 2018.
Bryndís Ester Ólafsdóttir1
Halla Fróðadóttir1
Rebekka Rúnarsdóttir2
Elsa B. Valsdóttir1,3
Lipomas are slow-growing, benign soft tissue
tumors that are typically asymptomatic. We
describe the case of a 52 year old female, sever-
ely overweight who presented with an 8 month
history of slowly progressive large lower abdomi-
nal mass. Clinical workup gave an indication of
a subcutaneous lipoma. The patient underwent
open surgery where the mass was removed.
Pathology results revealed a lipoma without
malignancy. Lipomas only require treatment
when they are symptomatic or to rule out malig-
nancy. Giant lipomas are defined as a lesion that
are over 10 cm in length or weigh more than 1000
grams.
Abdominal giant lipoma
ENGLISH SUMMARY
1Surgical department, Landspítali University Hospital, 2Pathology department, Landspítali University Hospital,
3Faculty of Medicine, Landspítali University Hospital.
Key words: lipoma, giant, large, abdominal.
Correspondence: Bryndís Ester Ólafsdóttir, bryndeo@landspitali.is
S J Ú K R A T I L F E L L I
gæf. Þeim hefur verið lýst á upphandleggjum, lærum og á búk.5,7,10
Ástæður fyrir því að sum fituæxli verða að risafituæxlum eru ekki
að fullu þekktar, en áverkar á húð eru taldir geta haft áhrif á vöxt
og hrint af stað vexti.7
Fituæxli hafa í mörgum tilfellum engin sértæk einkenni og
þarfnast sjaldan meðhöndlunar.3 Risafituæxli geta aftur á móti
vegna stærðar sinnar valdið ýmsum einkennum eins og bjúgsöfn
un, taugaertingu, þrýstingseinkennum og skertri hreyfigetu.3,5,7,10
Það er sambærilegt því sem lýst er í okkar tilfelli, mikill bjúgur í
húð og skert hreyfigeta sem var aðalvandi sjúklingsins.
Greining risafituæxla er oft klínísk en þó eru notaðar mismun
andi myndrannsóknir, til dæmis ómun, segulómun eða tölvusneið
myndir í sumum tilfellum.5 Sýnataka er ekki talin fullnægjandi til
greiningar vegna stærðar æxlanna.8
Hraður vöxtur, stærð æxla og hár aldur sjúklinga eru áhættu
þættir fyrir illkynja vexti.6 Einnig hefur staðsetning æxlis áhrif
því talið er að ef risafituæxli eru innan vöðva séu auknar líkur
á illkynja vexti.2 Meginástæða brottnáms á æxli sjúklings í þessu
tilfelli var stærð þess og vegna mikillar hreyfiskerðingar sem það
olli sjúklingnum. Útlit æxlisins við ómskoðun benti fyrst og fremst
til fituæxlis. Í þessu tilfelli var æxlið aðskilið frá kviðveggnum.
Aðgerðin var fyrst og fremst framkvæmd til að draga úr ein
kennum. Velta má fyrir sér hvort hreyfiskerðingin sem risafitu
æxlið olli þessum sjúklingi hafi ýtt undir hættu á að fá segarek
til lungna.
Mismunandi aðferðir við brottnám fituæxla hafa verið skoðað
ar.5 Sýnt hefur verið fram á að með því að nota fitusog í stað opinn
ar skurðaðgerðar er hægt að draga úr lýti sjúklings þar sem ör eru
minni og dánartíðni lægri samanborið við opna skurðaðgerð.2,5,9
Með fitusogi er endurkomutíðnin hærri þar sem ekki næst að fjar
lægja risafituæxlið að fullu og bandvefshimnan skilin eftir. Í þeim
tilfellum þar sem bandvefshimna risafituæxlanna er mjög þykk
er fitusog því óhentugri kostur.2,5 Í okkar tilfelli var ekki hægt að
notast við aðrar myndgreiningarrannsóknir en ómskoðun og því
ekki að fullu vitað hvernig útlit æxlisins var. Einnig var húðin yfir
aðgerðarsvæðinu mjög gróf og möguleiki á staðbundinni sýkingu
töluverður. Því kom ekki annað til greina en að framkvæma opna
skurðaðgerð og fjarlægja samhliða yfirliggjandi húð.
Það er okkar niðurstaða að opin skurðaðgerð hafi verið réttur
valkostur fyrir sjúklinginn til að draga úr einkennum og koma í
veg fyrir áframhaldandi hreyfiskerðingu. Mikilvægt er að vanda
uppvinnslu risafituæxla og bregðast við svo vöxtur þeirra verði
ekki ótæpilegur og við missum ekki af illkynja vexti ef hann er til
staðar.