Læknablaðið - nov. 2018, Side 27
LÆKNAblaðið 2018/104 507
Í pistlunum Úr penna
stjórnarmanna LÍ birta þeir sínar
eigin skoðanir en ekki félagsins.
Reynir Arngrímsson
formaður
Magdalena Ásgeirsdóttir
ritari
Björn Gunnarsson
gjaldkeri
Guðrún Ása Björnsdóttir
Hjalti Már Þórisson
Jóhanna Ósk Jensdóttir
María Soffía Gottfreðsdóttir
Ólafur Ó. Guðmundsson
Stjórn
Læknafélags
Íslands
Magdalena
Ásgeirsdóttir
lungnalæknir á Reykjalundi
masgeirsdottir@mac.com
Konur í íslenskri læknastétt í 101 ár
Læknafélag Íslands var stofnað 14. janúar 1918
og er því 100 ára. Háskóli Íslands var stofnaður
17. júní 1911 og fyrsta konan til að ljúka prófi frá
læknadeild var Kristín Ólafsdóttir árið 1917, fyrir
101 ári. Fyrstu 50 ár læknadeildar útskrifuðust 427
læknar, 405 karlar og 22 konur. Ég hef oft velt fyrir
mér hvernig starfsævi þessara brautryðjenda var og
hvaða viðmót þær fengu bæði í leik og starfi.
Þegar ég lít um öxl eru þær konur í læknastétt
sem komu að menntun minni í raun teljandi á
fingrum annarrar handar. Sú sem stendur upp
úr í minningunni er prófessor Margrét Guðna
dóttir heitin. Hún kenndi af eldmóði og eftir situr
óbilandi trú mín á bólusetningum til bættrar lýð
heilsu.
Árið 1993 urðu tímamót í sögu læknadeildar,
þá brautskráðust 45 læknakandídatar, 18 karlar og
27 konur, og við útskrift var hópurinn búinn að
eignast 30 börn. Þetta var í fyrsta sinn sem konur
voru í meirihluta. Þetta er útskriftarárgangurinn
minn. Við létum ýmislegt yfir okkur ganga á náms
árunum. Þegar við byrjuðum í klínísku námi inni
á sjúkrahúsunum (þau voru þrjú í þá daga) voru
í sumum verknámshópunum eingöngu konur og
nær undantekningarlaust tóku karlkyns lærifeður
á móti okkur með þessum orðum: „Hva bara stelp
ur?” og bættu svo við: „Nú eiga launin aldeilis eftir
að hrynja.“ Þetta þóttu og þykja okkur enn kaldar
kveðjur.
Hver er hlutur kvenna í læknastétt nú?
Af 80 yfirlæknum Landspítala 2. mars 2017 eru
20 konur, það er fjórðungur.
Við konur eigum ennþá undir högg að sækja
eins og fram hefur komið í MeToobyltingu ís
lenskra lækna, þar sem konur í læknastétt sendu frá
sér yfirlýsingu vegna kynbundinnar mismununar,
kynferðislegrar áreitni og ofbeldis. Jafnréttið er
meira í orði en á borði og sorglega lítið hefur gerst
svo að konur í læknastétt njóti sömu möguleika til
starfs og karlar.
Þann 17. september 2018 úrskurðaði kærunefnd
jafnréttismála í máli nr.6/2018 gegn Landspítala.
(Þar sem búið er að úrskurða í málinu er það í raun
orðið opinbert en þegar þetta er ritað er úrskurður
inn ekki enn kominn inn á www.stjornarradid.is).
Kærði (Landspítali) braut gegn 26. gr laga nr.
10/2008 um jafna stöðu kvenna og karla við ráðn
ingu í stöðu sérfræðings í meltingarlækningum í
febrúar 2018. Kröfu kærða um að kæranda verði
gert að greiða honum málskostnað er hafnað, svo
hljóma úrskurðarorðin.
Staðreyndir málsins í stuttu máli: kærandi
(kona) hefur starfað í rúm 14 ár sem lyflæknir, tæp
12 ár sem meltingarlæknir og er með doktorsgráðu
frá 2008. Karlinn sem fékk stöðuna hefur starfað
sem lyflæknir í rúm fjögur ár en ekki starfað sem
meltingarlæknir fyrir lok umsóknarfrests.
Landspítali taldi að kæran væri á röngum rökum
reist og að hæfasti umsækjandinn hefði verið ráð
inn og krafðist þess að sjónarmiðum kæranda væri
hafnað og honum gert að greiða málskostnað.
Ég er búin að fylgjast með þessu máli frá upp
hafi og finnst mjög athyglisvert hvernig hægt var
að komast að þessari niðurstöðu varðandi hæfi
umsækjenda. Öllu verra og grafalvarlegt er að op
inber stofnun skuli setja fram málskostnaðarkröfu
sem er til þess eins fallin að draga kjark úr fólki
sem er að láta reyna á rétt sinn hjá kærunefndum.
Það má heldur ekki líta fram hjá því að með þessari
túlkun Landspítala á hæfi konunnar og sjónarmið
um hennar er verið að vega að æru hennar, hennar
langa reynsla og menntun er einskis metin.
Ef ég væri að reka fyrirtæki og starfsfólk mitt
sverti orðspor míns fyrirtækis á þennan hátt, léti ég
það ekki ámælislaust. Báðir þessir læknar, konan og
karlinn, eru fórnarlömb slæmra vinnubragða.
Það setur að mér ugg ef áform sumra pólistíkra
afla ná fram að ganga og svo að segja öll heilbrigð
isþjónusta landsins fari undir sama hatt, það er rík
isbáknið. Landspítali og íslenska ríkið fara fremst
í flokki að brjóta á rétti kvenna, samanber hér að
ofan og nýlegan dóm Hæstaréttar þar sem íslenska
ríkið var dæmt til að greiða ljósmæðrum vangoldin
laun.
Frá aldamótum hefur fjöldi kvenna í lækna
deild aukist og þær hafa verið í meirihluta allra
útskriftarárganga frá árinu 2006 að undanskildu
árinu 2017, þá 26 karlar og 24 konur.
Við konur í læknastétt ætlum ekki að bíða að
gerðarlausar í önnur 100 ár eftir því að við
og menntun okkar verði metin að verðleikum.
Heimildir
• Læknar á Íslandi, IIII. Þjóðsaga, Reykjavík 2000.
• www.hi.is
• Árnadóttir ÓS. #MeToobylting íslenskra lækna. Ritstjórnargrein.
Læknablaðið 2018; 104: 67.
Ú R P E N N A S T J Ó R N A R M A N N A L Í