Læknablaðið - nov. 2018, Side 37
LÆKNAblaðið 2018/104 517
„Sumir tala um réttinn til að deyja. Hver
hefur ekki þennan rétt? Við deyjum öll.
Það sem fólk er að biðja um er rétturinn til
að vera tekinn af lífi,“ sagði Ilora Finlay,
velskur læknir og prófessor í líknandi
meðferð í læknaháskóla í Cardiff. Hún
situr í lávarðadeild breska þingsins.
Umræða um líknardráp litaði þriðja og
síðasta dag ráðstefnunnar. Svanur Sigur
björnsson, formaður siðfræðiráðs Lækna
félagsins, stýrði umræðum. Margir tóku til
máls og ljóst að engin skýr merki eru um
hvar draga eigi línuna. „Hvert og eitt okk
ar kom hingað inn með ákveðnar skoðanir
á líknardrápi og hvert og eitt okkar fer út
án breyttrar skoðunar,“ sagði Jeff Black
mer, formaður siðfræðinefndar kanadíska
læknafélagsins. „Það verða alltaf félagar
innan samtaka sem eru á móti en við höf
um lagt okkur fram um að kynna afstöðu
þeirra sem standa með líknardrápi.“
Kanadabúar deildu um samstöðuna
Blackmer hafði áður farið í gegnum
hvernig 91% atkvæða innan kanadísku
læknasamtakanna hefðu fallið með aðstoð
við að deyja. Hiti var í nokkrum kanadísk
um læknum undir kynningu Blackmer
og því haldið fram að litið væri fram
hjá þeim læknum sem væru andstæðir
líknardrápi – hitinn var svo mikill að einn
ráðstefnugesta stóð upp og bað þá um að
heyja baráttu sína heima fyrir.
Jeff Blackmer hafði lýst því hvernig
læknasamtökin hefðu ekki lagt í að mæla
skoðun kanadískra lækna á líknardrápi
fyrirfram heldur haldið lokaða fundi þar
sem rætt hafi verið um málið utan sviðs
ljóssins. Fólk hafi fagnað tækifærinu til að
fá að ræða málin opinskátt.
Ilora Finlay stóð gegn líknardrápi.
Hún sagði í erindi sínu fyrr um daginn að
helsta áhyggjuefni Alþjóðalæknasamtak
anna, WMA, ætti ekki að vera líknardráp
heldur líknandi meðferð. Réttur fólks ætti
að vera að fá rétt lyf til að lina þjáningar
sínar.
„Þegar við ræðum um að hætta með
ferð er það eftir að hafa metið kosti og
galla þess. Oft er þetta mjög einstaklings
bundið og ef við hættum hefur það áhrif á
löngun til að deyja,“ sagði hún.
Líknardráp líklegra án líknandi meðferð
Oft kom upp í umræðunni hver sé ástæða
þess að fólk biðji um líknardráp og fór Fin
lay yfir helstu þætti: Að missa sjálfsstjórn.
Minni geta til að taka þátt í ánægjulegum
athöfnum og viðburðum og í þriðja lagi;
skortur á reisn. Þá að missa stjórn á lík
amlegri virkni sinni eða að vera byrði á
fjölskyldu sinni.
„Engin er eyland. Við lifum og
hrærumst í samfélagi við aðra og ákvarð
anir okkar hafa áhrif á annað fólk,“ sagði
hún. Hafa verði í huga hvernig fólk deyi
og verði að minningu þeirra sem lifa. Þá
sagði hún að læknar gætu ekki séð dauð
ann fyrir. „Innan daga eða klukkustunda
er nákvæmnin nokkur en mánaðadómar
geta teygst í ár.“
Fleiri stóðu gegn líknardrápi. Miguel
Jorge, frá brasilíska læknafélaginu, hafði
áhyggjur af því að félagsleg staða og erf
iðar efnahagsaðstæður gætu leitt til meiri
pressu á að fólk kysi líknardráp. „Það er
óhugsandi að læknir sem áður reyndi að
bjarga taki líf einstaklings.“
Þau tvö voru sammála um að líknar
meðferð tæki pressuna af líknardrápi.
„Löggjafarvaldið í heiminum horfir nú
til þess hvað læknar gera. Við verðum að
horfa til afleiðinganna og þess að lönd
sem bjóða litla sem enga líknandi meðferð
gætu litið svo á að vestræn lönd hafi gefist
upp á líknandi meðferð og að líknardráp
sé lausnin. Ég er að tala um stjórnmála
menn og hagfræðinga, ég er ekki að tala
um lækna, en vandinn er hvernig skilaboð
frá læknum eru túlkuð,“ sagði Finlay.
„Við
deyjum öll“
Umræðan um líknardráp hleypti
lífi í ráðstefnuna á þriðja degi
hennar
Þétt var setið í salnum og heitar umræður sköpuðust þegar
umræðan um líknardráp fór fram. Í pallborði þau Ilora
Finlay, Kati Myllimäki, Jeff Blackmer og Antina de Jong.
Mynd/gag
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
„Löggjafarvaldið í heiminum
horfir nú til þess hvað læknar
gera. Við verðum að horfa
til afleiðinganna og þess
að lönd sem bjóða litla sem
enga líknandi meðferð, gætu
litið svo á að vestræn lönd
hafi gefist upp á líknandi
meðferð og að líknardráp sé
lausnin.“