Læknablaðið - nóv. 2018, Blaðsíða 39
LÆKNAblaðið 2018/104 519
Líknardrápum
fjölgar
í Hollandi
4,4% þeirra sem létust í
Hollandi 2017 fengu aðstoð
við að deyja
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Hin hollenska Jong fór yfir stöðu
mála í Hollandi þar sem læknar njóta
friðhelgi vilji þeir aðstoða fólk við
að deyja.
4,4% þeirra 150.000 sem létust árið 2017
í Hollandi fengu aðstoð við að deyja eða
6585 einstaklingar. Þeim fjölgaði um rétt
tæp 20% á tveggja ára tímabili, milli 2015
og 2017.
„Tilfellunum hefur fjölgað í gegnum
árin en nú teljum við að jafnvægi sé að
nást,“ sagði Antina de Jong, sem talaði
fyrir Konunglegu hollensku læknasam
tökin á þriðja degi ráðstefnu Læknafélags
Íslands og Alþjóðalæknafélagsins.
„Læknar í Hollandi mega aðstoða
við andlát, en reglurnar eru strangar.
Sjúklingar eiga ekki rétt á líknardrápi og
lækni ber aldrei skylda til að aðstoða við
líknardráp. Hann má hins vegar aðstoða
ef hann er sannfærður um að sjúklingur
uppfyllir skilyrði reglna og telur ekki
aðra lausn draga úr eða lina þjáningar
sjúklingsins,“ upplýsti Jong. „Enn er þó
glæpsamlegt að aðstoða einstakling við að
deyja hér í Hollandi en læknar hafa frið
helgi gegn refsingum fari þeir eftir þeim
reglum sem settar hafa verið.“
Grundvallarreglurnar eru: Frjáls og
vel íhuguð beiðni sjúklings, óbærilegar
þjáningar án möguleika á bættri líðan.
Sjúklingar séu upplýstir um stöðu sína
og líkur á bata og að sannarlega sé engin
önnur skynsamleg lausn í boði. Þá þarf
samráð við annan lækni og framkvæma
þarf líknardráp með aðgát.
Af þessum ríflega 6000 andlátum í
fyrra voru 12 skoðuð nánar af yfirvöldum.
„Tólf tilvik þóttu rannsóknarverð en fimm
þeirra eru nú í nánari skoðun opinbers
saksóknara,“ segir Jong. „Þetta eru mál
þar sem ekki var farið eftir grundvallar
reglunum.“
Sjá má á opinberum tölum á vefsíðu
Protection of Conscience Project að allt til
ársins 2007 fengu undir 2000 aðstoð en
frá árinu 2006 hefur talan meira en þre
faldast.
Jong segir hollenskan almenning upp
lýstan um líknardráp en að sjálfsögðu
séu skiptar skoðanir á því hvort þau séu
æskileg. „Sumir styðja málið á meðan
aðrir standa gegn því,“ sagði hún. „En það
er alltaf svo að líknardráp er síðasta hálm
stráið, ráð sem gripið er til eftir viðeigandi
meðferð og ef líknarmeðferð virkar ekki,
hjálpar ekki sjúklingnum og hann kvelst.“
Þróun líknardráps í Hollandi
2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017
Heimild: Alliance Vita, en síðasta árið, heimild Jong.
0
1000
2000
3000
4000
5000
6000
7000