Læknablaðið - nov 2018, Qupperneq 50
530 LÆKNAblaðið 2018/104
Föstudaginn 19. október héldu Háskóli Íslands og Landspítali
málþing í Hringsal af því tilefni að Sigurður Guðmundsson er
kominn á tilhlýðilegan og löggiltan starfslokaaldur. Sigurður er
smitsjúkdómalæknir og prófessor við HÍ, og hans samstarfsmenn
hér heima komu saman til að rekja feril hans og hlýða á Alison
Holmes frá London og Amiee Zaas frá NorðurKarólínu fara yfir
sviðið. Helga Erlendsdóttir og Haraldur Briem ávörpuðu samkom
una, og Helga Ágústa Sigurjónsdóttir flutti kveðju og glaðning frá
samstarfsfólki.
Magnús Gottfreðsson stýrði þessum fundi og var yfirbragð
gesta nokkuð ólíkt því sem jafnan er í Hringsal þar sem alvaran er
oft ein við völd. Á öftustu bekkjum salarins gerði ungliðahreyfing
sig gildandi, greinilega lærisveinar Sigurðar, og öllum bar saman
um að þrátt fyrir ótvíræða leiðtogahæfileika hans, óyggjandi fræði
mennsku, góðmennsku hins klára læknis og vökult auga land
læknis þá væri kennslan hans fullkomna forte. Í viðtali í septem
berblaði Læknablaðsins kom líka fram að starfið er hans hugðarefni,
og hefur verið frá því hann sem læknanemi sá bakteríur í fyrsta
sinn í smásjá, þá varð hann alveg gagntekinn og hann hefur ekk
ert læknast af því.
Sigurður hefur gegnt flestum helstu lykilstöðum í íslensku
heilbrigðiskerfi, en þó ekki verið heilbrigðisráðherra. Hann sat í rit
stjórn Læknablaðsins árin 19871996, og blaðið lítur svo á að það eigi
í honum hvert bein og þakkar fyrir góða samvinnu fyrr og síðar.
VS
Málþing til heiðurs
Sigurði Guðmundssyni