Læknablaðið - nóv. 2019, Blaðsíða 11
LÆKNAblaðið 2019/105 483
R A N N S Ó K N
Inngangur
Sjálfsvíg eru í 16. sæti yfir dánarorsakir í veröldinni.1 Á heims-
vísu er tíðni sjálfsvíga 11,4/100.000, hæst í aldurshópnum 15-29 ára.
Beinar orsakir eru ekki alltaf þekktar, en helstu áhættuþættir eru
þunglyndi, fíknsjúkdómar og áföll. Kynjahlutfallið er 3:1, körlum í
óhag, áhætta er mest hjá körlum yfir sjötugt.2 Á Norðurlöndunum
er tíðni hæst meðal Finna, 23,5/100.000, síðan kemur Svíþjóð með
16,0, en Noregur, Ísland og Danmörk eru með lægstu tíðnina, 13,5-
14,7/100.000. Þessar tölur er reiknaðar út frá íbúafjölda 15 ára og
eldri.3
Í yfirlitsgrein Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) kemur
fram að dregið hefur úr tíðni sjálfsvíga á heimsvísu undanfarna
tvo áratugi. Um 1990 var tíðni 15/100.000, en 25 árum seinna um
10/100.000.4 Bandaríkin skera sig þó úr, en þar hefur sjálfsvígum
fjölgað um 30% frá aldamótum.5 Hafa ber í huga í samanburði
milli einstakra landa að margir menningartengdir skekkjuvaldar
geta haft áhrif á skráningu gagna og þar með torveldað saman-
burð.
Áhugavert er að vísa til framtíðarspár WHO um þróun sjálfs-
víga.6 Höfundar spáðu fyrir um 40% fjölgun sjálfsvíga frá 1995 til
2020. Sú spá hefur ekki ræst enda aðferðafræðilegir gallar í spánni.
Í viðamikilli samantekt um áhrif efnahagshrunsins á heims-
vísu eru borin saman árin 2000-2007 annars vegar og hins vegar
árið 2009.7 Helstu niðurstöður voru að aukning sjálfsvíga árið 2009
var að finna meðal karlmanna. Taka ber fram að ekki var að finna
aukningu sjálfsvíga í öllum þeim löndum sem rannsóknin náði til.
Vísbendingar eru um meiri aukningu í löndum með lítið atvinnu-
leysi fyrir hrun en í þeim löndum þar sem hátt stig atvinnuleysis
Efnahagskreppur og tíðni sjálfsvíga
á Íslandi 1911-2017
Á G R I P
INNGANGUR
Sjálfsvíg eru í 16. sæti yfir dánarorsakir í veröldinni. Beinar orsakir
eru ekki alltaf þekktar, en tengjast oft þunglyndi og ytri áföllum.
Dregið hefur úr tíðni sjálfsvíga á heimsvísu undanfarna áratugi.
Efnahagshrunið 2008 jók víða tíðni sjálfsvíga. Margir skekkjuvaldar
hafa áhrif á samanburð milli landa. Markmið rannsóknarinnar er að
kanna áhrif efnahagskreppna á sjálfsvíg á Íslandi.
EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR
Stuðst er við sjálfsvígstölur frá 1911 til 2017 og möguleg áhrif 6
efnahagskreppna á tíðni sjálfsvíga. Ísland hefur farið í gegnum 6
efnahagskreppur: 1918, 1931, 1948, 1968, 1991 og 2008. Reiknað
er nýgengi 5 og 10 ár fyrir og eftir upphafsár hverrar kreppu. Til
að reikna áhrif kreppna á öllu tímabilinu er stuðst við Poisson-
líkan fyrir talningargögn. Tekið er tillit til þess að breytileiki geti
verið umfram það sem Poisson-líkanið segir til um og er því
umframdreifni metin. Þróun breytileika yfir tímabili er lýst með
uppsafnaðri summu staðlaðra kvaðratfrávika (CUSUMSQ).
NIÐURSTÖÐUR
Tíðni sjálfsvíga jókst fram eftir síðustu öld en tók að lækka um
1990. Miklar sveiflur eru í tíðni, þó reiknuð séu meðaltöl 5 ára
tímabila. Aukningu sjálfsvíga má sjá 1931 og 1948, litlar breytingar
1968 og 2008, og lækkun 1918 og 1991. Uppsveiflur koma líka utan
krepputímabilanna. Sveiflur á tímabilinu eru í samræmi við það sem
vænta má samkvæmt Poisson-líkani.
ÁLYKTUN
Samkvæmt niðurstöðunum er ekki samband milli sjálfsvígstíðni og
sveiflna í efnahagslífi Íslands, samanber tölfræðilegar niðurstöður.
Þess ber að geta að niðurstaðan byggir á tíðni þjóðar og útilokar
ekki að efnahagsleg áföll hafi áhrif á einstaklinga.
Högni Óskarsson læknir1
Kristinn Tómasson læknir2
Sigurður Páll Pálsson læknir3
Helgi Tómasson tölfræðingur4
1Humus ehf., 2Lækning, 3réttar- og öryggisdeild geðsviðs Landspítala,
4hagfræðideild Háskóla Íslands.
Fyrirspurnum svarar Högni Óskarsson, hogni@humus.is
hefur verið til lengri tíma. Í Bandaríkjunum verður breyting eftir
efnahagshrunið 2008 til aukningar á sjálfsvígum í samfélögum
utan stærri borga, sem hafa verið viðkvæm fyrir efnahagssveifl-
um.8
Greina má ýmsa áhættuþætti fyrir aukningu sjálfsvíga.
Norström og Grönqvist gerðu úttekt á tengslum atvinnuleysis og
sjálfsvíga í 30 löndum á árabilinu 1960-2012.9 Var löndunum skipt
niður í 5 flokka eftir því hversu sterk velferðarkerfi landanna eru,
sérstaklega þegar kemur að stuðningi við atvinnulausa. Slíkur
stuðningur er minnstur í Austur- og Suður-Evrópu. Reyndust
áhrif atvinnuleysis í kreppunni í og eftir 2008 vera mun meiri þar.
Norðurlöndin, utan Íslands, komu best út. Rannsókn á Spáni dró
fram sterkar vísbendingar um tengsl atvinnuleysis og sjálfsvíga,