Læknablaðið - Nov 2019, Page 42
514 LÆKNAblaðið 2019/105
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
„Leysirinn er enn eitt vopnið í vopna-
búrinu gegn heilaæxlum,“ segir Margrét
Jensdóttir, heila- og taugaskurðlæknir,
sem gerði þessa fyrstu aðgerð með leysi
á Norðurlöndunum ásamt Jiri Bartek,
sérnámslækni. Þau nutu aðstoðar tauga-
lækningateymis Karólínska háskóla-
sjúkrahússins. Margrét hefur starfað sem
skurðlæknir á sjúkrahúsinu í Stokkhólmi
í 7 og hálft ár. „Karólínska er nú orðið
alhliða taugalækningasetur, því auk ljós-
leysisins, höfum við gammahnífinn.“
Spurð hvort læknar á Karólínska séu
ekki stoltir af þessu framfaraskrefi seg-
ir Margrét aðgerðina hafa fengið mikla
athygli enda Karólínska meðal þeirra allra
fyrstu í Evrópu til að setja upp tæknina og
hefja meðferð.
Lengi haft augastað á leysi
„Óneitanlega er alltaf gaman að standa í
framvarðarsveit tækninýjunga og koma á
laggirnar nýjum meðferðum, sérstaklega
á svona sviði eins og gagnvart heilaæxlum
sem eru ennþá mjög illviðráðanleg. Þetta
er sjúkdómur þar sem við þurfum að leita
allra leiða til að bæta meðferðina,“ segir
hún.
Margrét útskrifaðist úr læknadeild hér
á landi árið 2002 og varði kandídatsárinu á
Landspítala í grunnsérnámi á heilaskurð-
deild áður en hún fór til Kaupmannahafn-
ar í sérnám. Hún er heila- og taugaskurð-
læknir með heilaæxli sem undirsérgrein.
Hún segir þau Bartek og Karólínska lengi
hafa haft augastað á leysi-meðferðinni sem
hafi verið aðgengileg í Bandaríkjunum
um árabil. Þau hafi verið í góðu samstarfi
við einn þann fremsta í tækninni, Dr.
Clark Chen, prófessor við Háskólann í
Minnesota í Bandaríkjunum.
„Leyfið [fyrir tækninni í Evrópu] fékkst
í fyrra og síðan hefur tekið svolítinn tíma
að vinna að því að koma henni hingað til
stofnunarinnar. Sérstaklega að setja hana
upp á segulómuninni og para saman við
hana,“ segir hún. Læknar og hjúkrunar-
fræðingar sem vinni við segulómunina
hafi þurft að tileinka sér nýtt vinnulag
og tryggja að upplýsingar úr MRI-tækj-
unum (magnetic resonance imaging) væru
réttar. Eðlisfræðingar og verkfræðingar
á segulómdeildinni hafi unnið með þeim
að því.
„Það má segja að leysirinn sem slíkur
sé ekki nýr af nálinni og hefur verið reynt
að beita tækninni í heila áður. Vanda-
málin hafa verið þau að ekki hefur tekist
að stjórna hitamynduninni, sem hefur
gert tæknina óörugga. En á síðastliðnum
áratug hefur tekist að þróa kælibúnað til
að kæla niður ljósgjafann annars vegar
og hins vegar að para við segulómun-
ina. Þannig er hægt að gera meðferðina í
segul ómtæki og vera með raunmynd allan
tímann af þeim hitabreytingum sem verða
í heilanum.“
Sjúklingurinn með 3,2 mm sár
Margrét segir sjúklinginn hafa komið
mjög vel út úr þessari fyrstu leysi-aðgerð á
heila á Norðurlöndunum. Sjúklingurinn sé
svæfður. Teknar séu röntgenmyndir inni á
skurðstofu, festur á hann rammi og hita-
kerfi lagt yfir höfuð og heila til að koma
ljósgjafanum fyrir. GPS-tækni sé nýtt til
Íslenskur læknir
sá fyrsti á Norður-
löndunum til að
ráðast á heilaæxli
með leysi
Tímamót urðu um miðjan september þegar skurðlæknirinn Margrét Jensdóttir notaði fyrst
lækna á Norðurlöndum leysi í baráttu við heilaæxli á Karólínska háskólasjúkrahúsinu í
Stokkhólmi í Svíþjóð. Hún segir stefnt á að gera eina til tvær slíkar aðgerðir á mánuði.
Margrét Jensdóttir við fyrstu leysi-aðgerðina á heila
sjúklings sem gerð er á Norðurlöndunum 17. september
síðastliðinn. Mynd/Ljósmyndadeild Karólínska
háskólasjúkrahússins
Í S L E N S K U R L Æ K N I R Á K A R Ó L Í N S K A