Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - nov. 2019, Síða 42

Læknablaðið - nov. 2019, Síða 42
514 LÆKNAblaðið 2019/105 ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir „Leysirinn er enn eitt vopnið í vopna- búrinu gegn heilaæxlum,“ segir Margrét Jensdóttir, heila- og taugaskurðlæknir, sem gerði þessa fyrstu aðgerð með leysi á Norðurlöndunum ásamt Jiri Bartek, sérnámslækni. Þau nutu aðstoðar tauga- lækningateymis Karólínska háskóla- sjúkrahússins. Margrét hefur starfað sem skurðlæknir á sjúkrahúsinu í Stokkhólmi í 7 og hálft ár. „Karólínska er nú orðið alhliða taugalækningasetur, því auk ljós- leysisins, höfum við gammahnífinn.“ Spurð hvort læknar á Karólínska séu ekki stoltir af þessu framfaraskrefi seg- ir Margrét aðgerðina hafa fengið mikla athygli enda Karólínska meðal þeirra allra fyrstu í Evrópu til að setja upp tæknina og hefja meðferð. Lengi haft augastað á leysi „Óneitanlega er alltaf gaman að standa í framvarðarsveit tækninýjunga og koma á laggirnar nýjum meðferðum, sérstaklega á svona sviði eins og gagnvart heilaæxlum sem eru ennþá mjög illviðráðanleg. Þetta er sjúkdómur þar sem við þurfum að leita allra leiða til að bæta meðferðina,“ segir hún. Margrét útskrifaðist úr læknadeild hér á landi árið 2002 og varði kandídatsárinu á Landspítala í grunnsérnámi á heilaskurð- deild áður en hún fór til Kaupmannahafn- ar í sérnám. Hún er heila- og taugaskurð- læknir með heilaæxli sem undirsérgrein. Hún segir þau Bartek og Karólínska lengi hafa haft augastað á leysi-meðferðinni sem hafi verið aðgengileg í Bandaríkjunum um árabil. Þau hafi verið í góðu samstarfi við einn þann fremsta í tækninni, Dr. Clark Chen, prófessor við Háskólann í Minnesota í Bandaríkjunum. „Leyfið [fyrir tækninni í Evrópu] fékkst í fyrra og síðan hefur tekið svolítinn tíma að vinna að því að koma henni hingað til stofnunarinnar. Sérstaklega að setja hana upp á segulómuninni og para saman við hana,“ segir hún. Læknar og hjúkrunar- fræðingar sem vinni við segulómunina hafi þurft að tileinka sér nýtt vinnulag og tryggja að upplýsingar úr MRI-tækj- unum (magnetic resonance imaging) væru réttar. Eðlisfræðingar og verkfræðingar á segulómdeildinni hafi unnið með þeim að því. „Það má segja að leysirinn sem slíkur sé ekki nýr af nálinni og hefur verið reynt að beita tækninni í heila áður. Vanda- málin hafa verið þau að ekki hefur tekist að stjórna hitamynduninni, sem hefur gert tæknina óörugga. En á síðastliðnum áratug hefur tekist að þróa kælibúnað til að kæla niður ljósgjafann annars vegar og hins vegar að para við segulómun- ina. Þannig er hægt að gera meðferðina í segul ómtæki og vera með raunmynd allan tímann af þeim hitabreytingum sem verða í heilanum.“ Sjúklingurinn með 3,2 mm sár Margrét segir sjúklinginn hafa komið mjög vel út úr þessari fyrstu leysi-aðgerð á heila á Norðurlöndunum. Sjúklingurinn sé svæfður. Teknar séu röntgenmyndir inni á skurðstofu, festur á hann rammi og hita- kerfi lagt yfir höfuð og heila til að koma ljósgjafanum fyrir. GPS-tækni sé nýtt til Íslenskur læknir sá fyrsti á Norður- löndunum til að ráðast á heilaæxli með leysi Tímamót urðu um miðjan september þegar skurðlæknirinn Margrét Jensdóttir notaði fyrst lækna á Norðurlöndum leysi í baráttu við heilaæxli á Karólínska háskólasjúkrahúsinu í Stokkhólmi í Svíþjóð. Hún segir stefnt á að gera eina til tvær slíkar aðgerðir á mánuði. Margrét Jensdóttir við fyrstu leysi-aðgerðina á heila sjúklings sem gerð er á Norðurlöndunum 17. september síðastliðinn. Mynd/Ljósmyndadeild Karólínska háskólasjúkrahússins Í S L E N S K U R L Æ K N I R Á K A R Ó L Í N S K A

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.