Læknablaðið - Nov 2019, Page 46
518 LÆKNAblaðið 2019/105
„Vert er að skoða hvort hægt sé að fara
nýstárlegar leiðir í styrkveitingu lyfja- og
læknistækjaframleiðenda til símenntun-
ar lækna,“ sagði Runólfur Pálsson, yfir-
læknir á lyflækningasviði Landspítala,
við umræðu um símenntun lækna á að-
alfundinum. Hann tók þar undir áhyggj-
ur Þórarins Guðnasonar hjartalæknis
um að snúið væri að halda utan um siða-
reglur vegna símenntunar og aðkomu
lyfja- og læknistækjaframleiðenda til
hennar. Vont sé þegar styrkir fyrirtækja
til menntunar lækna séu skilyrtir.
„Á hinn bóginn er erfitt ef algerlega
er klippt á þetta samband,“ sagði Run-
ólfur og benti á hvernig Frakkar leystu
málið. „Eins og til dæmis í Frakklandi,
þar greiða fyrirtæki í lyfjaiðnaði og þau
sem framleiða tækjabúnað til lækninga
og heilbrigðisþjónustu 1,5% til skatts
sem fer til símenntunar. Kosturinn við
þetta er að þá stýra fyrirtækin ekki sjálf
hvaða þing og annað þau styrkja,“ sagði
hann og benti á að eins og læknar vissu
væri misjafnt hver áhugi fyrirtækjanna
væri eftir því hvaða sérgrein ætti í hlut.
Fyrirtækin væru til að mynda almennt
áhugasamari að styðja sérgreinar sem
ávísi miklum lyfjum. „Þess vegna væri
vert að íhuga þetta,“ sagði Runólfur.
Skýrar leikreglur um styrkveitingar
A Ð A L F U N D U R L Í 2 0 1 9
fagmennsku og siðferði. Ég tel að
það verði æ mikilvægari þáttur í sí-
menntun lækna.“
Reynir sagði stjórn LÍ þurfa stuðn-
ing aðalfundarins til að taka málið
upp. „Það þarf að vera ljóst að það
sé vilji félagsmanna að það sé gert,“
segir Reynir. „Mér heyrist stemningin
í salnum vera þannig að það sé vilji.“
Hann vilji því láta reyna á þetta í
samningaviðræðum við ríkið.
Bent var á að í Skandinavíu væri
lögð aukin áhersla á fræðslu innan-
lands. Í Noregi sé stefnt á að fækka
flugferðum heilbrigðisstarfsfólks um
30%.
Pallborðið var spurt hvern ætti að
taka til bæna ef símenntun væri ekki
sinnt. Runólfur tók til máls og sagði
hægt að finna ýmsar leiðir. „Aðrar
þjóðir hafa refsað þeim sem engu til-
tali taka,“ sagði hann að dæmi væri
um. Símenntun væri forsenda þess að
læknaleyfi væru endurnýjuð. „Með
því að gera þetta að sjálfsögðum hlut í
samfélaginu, þá held ég að þeim fækki
verulega sem þurfi að tala við.“
Alma sagði of snemmt að hugleiða
afleiðingar kjósi læknar að hunsa
símenntun. „Við þurfum að gera
stefnumótun, gera aðgerðaáætlun og
hefja skráningu og svo gera kröfur
um hvernig þetta sé metið og hver
viðurlögin verða.“
Katrín Fjeldsted og Reynir Arngrímsson formaður Læknafélags
Íslands.
Guðrún Ása Björnsdóttir formaður Félags almennra lækna hefur hemil á pallborði á málþingi um símenntun lækna. Frá vinstri: Þórarinn Guðnason formaður Læknafélags Reykja-
víkur, Alma Möller landlæknir, Friðbjörn Sigurðsson læknir, Runólfur Pálsson læknir, María I. Gunnbjörnsdóttir formaður Félags sjúkrahúslækna og Salóme formaður FÍH.