Læknablaðið - nóv. 2019, Blaðsíða 49
LÆKNAblaðið 2019/105 521
„Ég var búinn að eiga þetta handrit í dálít-
inn tíma en svo tók ég það upp og skrifaði
upp á nýtt. Ég setti nýjan vinkil á söguna.
Þetta var handrit sem ég var kannski
aldrei búinn að klára almennilega. Svo
skrifaði ég þetta upp á nýtt og sendi á
útgefanda. Hann hringdi til baka og vildi
gefa bókina út. Ég er mjög glaður.“
Sæmundur, útgáfa Bjarna Harðarsonar
á Selfossi, gefur bókina út. „Okkur kemur
vel saman, okkur Bjarna.“ Hlynur segist
vona að með tímanum verði bækurnar
fleiri. Áhugamálin séu mörg. Veiðin ör-
ugglega númer eitt. Námið í læknisfræði
hafi í það minnsta ekki verið með því
skemmtilegasta og það leitt hann til að
taka meistarapróf í ensku og enskum bók-
menntum í Bandaríkjunum.
„Ég var alltaf með hausinn í því að
verða rithöfundur,“ segir hann en það hafi
ekki verið fyrr en hann losaði sig við þá
hugsun að vera ekki nógu góður texta-
smiður sem fyrsta bókin leit dagsins ljós
og nú önnur.
„Það tilheyrir að ef þú hefur ekki trú
á þér þá hefur það enginn. Maður verður
að hafa trú á sér og gera þetta. Ég trúi á
þetta. Mér finnst bókin góð. Ég er ánægð-
ur með hana. Maður verður að fylgja
sínu. Það er bara þannig,“ segir Hlynur
sem hefur sýnt í verki að það gerir hann.
Þannig að það er hægt að vera bæði, rit-
höfundur og læknir?
„Ég veit það nú ekki,“ segir Hlynur
hreinskilnislega. „Ég er ekki í Rithöfunda-
sambandinu og það er viljandi. Ég hef
ekki áhuga á því og að titla mig sem rit-
höfund. Ég er áhugapenni.“ Hlynur segir
þá nokkra í fjölskyldunni. Langafi hans,
Ebenezer, hafi verið slakur bóndi á Vatns-
nesi í Vestur-Húnavatnssýslu en ágætt
skáld og eftir ömmubróður hans Grím
liggi lausavísur og fleira.
„Þessir karlar í minni ætt hefðu ekki
kallað sig rithöfunda þótt þeir hafi getað
klambrað einhverju saman. Mér finnst ég
ekki getað kallað mig rithöfund,“ segir
Hlynur. Ófáar vísur eru í bókinni Veik-
indadögum.
GEGNUMLÝSING
Eftir aðgerðina horfði ég í spegilinn
og sá þegar þau komu aftan að mér
öllsömul
Ég sá það ekki
en ég hafði verið undir smásjánni, sögðu þau
öllsömul
Ég þurfti á lækni að halda
Eftir það brotnar myndin
Ég man eftir að hafa hengt upp sloppinn
gengið út
og mér var sýnt allt
í skerandi ljósi
Hlynur er ánægður með að hafa
ákveðið að bylta handritinu svo úr varð
bókin Veikindadagar. Hann hafði kennara í
bókmenntanáminu í Bandaríkjunum sem
lagði áherslu á að hann væri ekki writer
heldur rewriter.
„Það er mikið til í þessum orðum,
að vera ekki skrifari heldur endurskrif-
ari,“ segir Hlynur sem hefur nú ekki
aðeins endurskrifað sögu sína í bókstaf-
legum skilningi heldur einnig starfsvett-
vang sinn sem læknir, frá því að vera
krabbameinslæknir í það að verða heim-
ilislæknir.
Gefur út bókina
Veikindadaga
sem ég gat fyrir stofnunina, en stundum
verða leiðir að skilja. Þetta er eins og með
óhamingjusamt hjónaband, það er ekki
hægt að spóla í því í 30 ár,“ segir hann.
Yfirstjórnin eigi að segja stopp
En er yfirstjórninni ekki einfaldlega of
þröngt sniðinn stakkur? „Jú, jú en ein-
hvern tímann er nóg nóg. Ef búið er að
segja við þig 100 sinnum að það þurfi að
spara meira, þá hlýtur botninum á end-
anum að vera náð og þá er það á ábyrgð
stjórnenda að segja það upphátt. Þeirra
ábyrgð er fyrst og fremst að styðja við
starfsfólkið sitt og starfsemina en ekki
stjórnvöld eða fjárveitingavaldið, Alþingi
eða velferðarnefnd,“ segir hann.
Hann segir samstöðu læknastéttar-
innar litla. „Þetta er tætt stétt. Þetta eru
margir hópar með mikla sérhagsmuni.
Þótt við heitum Læknafélag Íslands og
séum undir einni regnhlíf finnst mér það
oft hreinlega vera að nafninu til,“ segir
hann.
„Mér finnast læknasamtökin almennt
hafa lítinn slagkraft. Það sést best á tillög-
um um ný heilbrigðislög sem liggja fyrir
Alþingi. Þar er gert ráð fyrir að læknaráð
leggist af. Það sýnir bara hvað við höfum
sem stétt lítið að segja.“
Er sjálfur sáttur við sitt
En sérðu lausnir? „Nei, ég hef engar töfra-
lausnir. Ég er ekki einn Know-it-all. Ég er
einfaldlega að segja að það er alltaf verið
að tala um sömu hlutina. Það eru alltaf
sömu hlutirnir athugaverðir og alltaf það
sama að en við spólum í sama farinu ár
eftir ár og það finnst mér ekki eðlilegt.“
Hann hafi einfaldlega ekki getað sætt
sig við ástandið og ekki séð leiðir fyrir
sig að breyta því, en lausn í að breyta sér.
„Eins og ég segi. Ég er þannig gerður að
ég lít ekki mikið til baka yfirleitt og reyni
að taka daginn í dag eins og hann er. Ég
vakna á morgnana og er sáttur með lífið,“
segir hann. „Ég er sáttari við mig.“
Hlustið á viðtalið
á hlaðvarpi
Læknablaðsins