Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - Apr 2019, Page 9

Læknablaðið - Apr 2019, Page 9
LÆKNAblaðið 2019/105 161 R I T S T J Ó R N A R G R E I N Íslendingur á fertugsaldri flaug frá Filippseyjum til Ís- lands og áfram til Austfjarða með áætlunarflugi í febr- úar 2019. Nokkrum dögum síðar veiktist hann með hita og flensulík einkenni. Var lagður inn á HSA á Norðfirði og síðar fluttur til Reykjavíkur með sjúkraflugi og lagð- ur inn á Landspítala. Greindur með mislinga. Á Filippseyjum er af fjölþættum ástæðum lítil þátttaka í bólusetningum. Heilbrigðisþjónusta er víða ófullnægjandi eða of dýr fyrir íbúana. Eftir almenna bólusetningu gegn beinbrunasótt (Dengue fever) (Dengvaxia®)1 er reyndist illa og olli meðal annars dauða nokkurra ungmenna varð hávær gagnrýni á lyf- jaframleiðendur og tiltrú á bólusetningum minnkaði enn frekar. Í dag eru mislingar algengur sjúkdómur á Filippseyjum og árið 2018 voru undir 70% barna bólu- sett.2 Árið 1998 birtist í Lancet grein um meinta skaðsemi bólusetningar gegn mislingum. Greinin var síðar dreg- in til baka enda byggð á fölskum gögnum, auk þess sem höfundur hafði sjálfur fjárhagslega hagsmuni af því að hindra notkun MMR-bóluefnis. Þetta þrennt, lítt tengt í tíma og rúmi, hafði mikil áhrif á Íslandi í febrúar 2019 en mislingar greindust síðast á Íslandi á árinu 2017 er þrír einstaklingar voru greindir. Á næstu vikum greindust fleiri og í dag hafa alls 7 mislingasmit verið staðfest. Sóttvarnalæknir talaði um lítinn mislingafaraldur þegar fimmti einstaklingur- inn greindist. Að morgni föstudagsins 8. mars var ákveðið, á símafundi sóttvarnalækna, að bjóða áhættu- hópum bólusetningu við mislingum. Í gang fór mikil skipulagning og markviss vinna til að tryggja aðgengi að bóluefni og upplýsingagjöf til almennings. Áherslan var á þau tvö landsvæði þar sem mislinga- smit hafði komið fram, Austurland og höfuðborgar- svæðið. 3000 skammtar af MMR-bóluefni komu til landsins þann dag, 1000 skammtar fóru á Austfirði og 2000 á höfuðborgarsvæðið. Í kjölfarið voru 10.000 skammtar fluttir til landsins. Á Austfjörðum var strax boðið upp á víðtæka bólusetningu, meðal annars öllum sem höfðu verið nálægt mislingasmituðum einstak- lingum. Á höfuðborgarsvæðinu var ákveðið að allar heilsugæslustöðvarnar, alls 19 stöðvar, væru með opið fyrir bólusetningar helgina sem framundan var. Á nokkrum klukkustundum voru allar stöðvar tilbúnar. Skipulögð var opin móttaka báða dagana milli kl. 12- 15, með lækni, hjúkrunarfræðingi og ritara hið minnsta. Bóluefninu skipt á stöðvar í samræmi við fjölda skjól- stæðinga og keyrt út samdægurs. Upplýsingar birtust og voru uppfærðar hjá Embætti landlæknis og á heima- síðum heilsugæslustöðva jafnóðum og fréttir bárust.3 Fyrri daginn var áherslan á að bólusetja óbólusett börn á aldrinum 6-18 mánaða og eldri óbólusett börn. Alls voru bólusett 1023 börn þennan dag, jafnvel börn sem bólusetning hafði áður verið afþökkuð fyrir. Seinni daginn var boðið upp á bólusetningu fyrir fullorðna, áherslan á óbólusetta eða þá sem ekki höfðu fengið mislinga. Aftur komu yfir 1000 manns. Alls voru bólusettir 3025 á 6 dögum á heilsugæslu- stöðvum á höfuðborgarsvæðinu. Mikið álag var á heilsugæslustöðvar, sérstaklega á þeim svæðum þar sem smit kom upp en í samráði við sóttvarnalækni var strax byrjað að bólusetja þá sem höfðu verið í nálægð við smitaða einstaklinga. Mislingar eru mjög smitandi og því var áherslan á að takmarka smit og halda hugs- anlega veikum frá fjölmenni. Símaþjónusta og ráðgjöf var efld til muna og kynnt, bæði ráðgjafasími Lækna- vaktarinnar 1700 og símaþjónusta heilsugæslustöðva. Vitjanaþjónusta var skipulögð, heilsugæslulæknir, bíll og bílstjóri til taks alla daga til að meta hugsanlega smitaða. Auk víðtækrar bólusetningar var lögð áhersla á einangrun sýktra einstaklinga og sóttkví útsettra. Margt hefur lærst á þessum vikum. Símanúmerið 1700 er nú vel þekkt svo og símaráðgjöf á heilsugæslu- stöðvum. Á nokkrum dögum margfaldaðist notkunin á heilsuveru. Mikið var um fyrirspurnir, spjallrásin notuð, jafnvel sendar myndir af bólusetningaskírteinum til úr- lestrar og einstaka myndir af útbrotum. Nú var augljós kosturinn við að kynna sér og nota þennan fjölþætta þjónustuvef. Aðgengi er að bólusetningagrunni sóttvarnalækn- is í heilsuveru en eldri bólusetningar vantar. Þegar al- menn bólusetning hófst við mislingum árið 1976 var farið hægt af stað. Fyrstu árgangarnir fengu aðeins eina bólusetningu, aðrir tvær, byrjað var með eingilt bóluefni, svo kom þrígilt bóluefni. Stór hópur fólks var því óviss með sínar bólusetningar og óöruggt. Bólu- setningaskírteini eru týnd, minni ættingja ekki gott og ungbarnaskýrslur í geymslum. Undanfarnar vikur hafa sýnt okkur enn og aftur mikilvægi góðrar skráningar í sjúkraskrár og gagna- vörslu. Vistun gagna, svo sem ungbarnaskýrslur, var ekki samræmd milli stöðva. Margar stöðvar eru með eigin skjalageymslur, aðrar eru með gögn í geymslum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins eða í gagnavörslu og nokkrir árgangar af ungbarnaskýrslum eru á Borg- arskjalasafni. Öll þessi gögn er hægt að nálgast en það er tafsamt og oft kostnaðarsamt. Í þessu ferli öllu reyndi mikið á samhæfingu og gott samstarf allra aðila. Gott upplýsingaflæði var lykillinn. Starfsfólk upplifði al- menna ánægju fólks við skjótum og góðum viðbrögð- um heilbrigðiskerfisins. Heimildir 1. Fatima K, Syed NI. Dengvaxia controversy: impact on vaccine hesit- ancy. J Glob Health 2018; 8: 020312. 2. Questions and answers on the measles outbreak in the Philippines. who.int/philippines/news/feature-stories/detail/questions-andanswers- on-the-measles-outbreak-in-the-philippines – mars 2019. 3. Mislingar - staða mála og fræðsla. - landlaeknir.is/um-embaettid/grein- ar/grein/item36775/Mislingarstada-mala-og-fraeds – mars 2019. Mislingar á Íslandi árið 2019, viðbrögð og lærdómur doi.org/10.17992/lbl.2019.04.224 Measles in Iceland 2019 Sigríður Dóra Magnúsdóttir GP Chief medical officer Primary Health Care of the Capital Area Sigríður Dóra Magnúsdóttir sérfræðingur í heimilislækningum settur framkvæmdastjóri lækninga við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins Sigridur.D.Magnusdottir @heilsugaeslan.is

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.