Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - Apr 2019, Page 11

Læknablaðið - Apr 2019, Page 11
LÆKNAblaðið 2019/105 163 R A N N S Ó K N Inngangur Gláka er alvarlegur augnsjúkdómur sem getur leitt til blindu. Í byrjun síðustu aldar var blindutíðni á Íslandi vegna gláku með því hæsta sem gerðist í Evrópu og var gláka talin orsök blindu í allt að 80% tilfella.1 Miklar framfarir hafa átt sér stað í greiningu og meðferð sjúklinga með gláku á síðustu áratugum. Tíðni blindu vegna gláku hefur lækkað mikið og er nú orsök 5-8% blindu á Ís- landi.2 Þetta má skýra með bættu aðgengi að augnlæknum, betri greiningartækni, nýjungum í lyfja- og lasermeðferð ásamt gláku- skurðaðgerðum. Tíðni gláku fer hækkandi með aldri og árið 2003 var algengi gláku á Íslandi 5,4% hjá aldurshópnum 65-74 ára sam- kvæmt Reykjavíkur-augnrannsókninni.3 Gláku er hægt að skipta í tvo flokka eftir meingerð sjúkdóms- ins. Annars vegar er þrönghornsgláka (narrow angle glaucoma) þar sem frárennsli vökva úr forhólfi í gegnum síuvef (trabecular meshwork) er hamlað vegna fyrirstöðu frá lithimnu.4 Hins vegar er gleiðhornsgláka (primary open angle glaucoma) sem er mun al- gengara form gláku á Íslandi.3 Þar er augnþrýstingur hár þrátt fyrir að rennsli vökva að síuvef sé greitt. Hár augnþrýstingur er talinn eiga þátt í hrörnun á taugavef í afturhluta augans en það lýsir sér með skerðingu á sjónsviði.4 Langvinn gleiðhornsgláka er að miklu leyti sjúkdómur eldra fólks og meðferð glákusjúklinga getur því oft verið flókin þar sem sjúklingarnir nota mörg lyf, bæði augnlyf og lyf við öðrum sjúk- dómum. Augnlæknar eru því ekki einungis ábyrgir fyrir því að meðhöndla augnsjúkdóminn, lækka augnþrýsting og koma í veg fyrir blindu, heldur verða þeir einnig að taka tillit til hugsanlegra áhrifa lyfja til inntöku á glákusjúkdóminn. Einnig er mikilvægt að læknar séu meðvitaðir um hugsanlegar milliverkanir augn- þrýstingslækkandi meðferðar á aðra sjúkdóma. Tilgangur þessarar rannsóknar var að skoða heildarlyfjameð- ferð íslenskra glákusjúklinga sem eru með sjúkdóm á alvarlegu Lyfjameðferð gláku og hugsanlegar milli- verkanir við meðferð annarra sjúkdóma Valgerður Dóra Traustadóttir1 læknir Elín Björk Tryggvadóttir2 læknir Ólöf Birna Ólafsdóttir1,3 lífeðlisfræðingur Aðalsteinn Guðmundsson3,4 læknir María Soffía Gottfreðsdóttir1,3 læknir 1Augndeild Landspítala, 2Háskólasjúkrahúsið í Malmö/Lundi, 3Háskóla Íslands 4öldrunarlækningadeild Landspítala. Fyrirspurnum svarar Valgerður Dóra Traustadóttir, valadorat@gmail.com stigi og þarfnast hjáveituaðgerðar (trabeculectomy), einnig að setja meðferð glákusjúklinga í samhengi við aukaverkanir glákulyfja og hugsanlegar milliverkanir lyfja til inntöku við glákusjúkdóm- inn. Aðferðir Leyfi voru fengin fyrir rannsókninni hjá siðanefnd heilbrigðisvís- inda á Landspítala og framkvæmdastjóra lækninga. Rannsóknin var afturskyggn. Sjúklingar voru fundnir með leit að ICD-10 númeri hjáveituaðgerða í augum (CHSD15) í gagna- grunni Landspítala. Leitað var aftur í tímann að samtals 100 einstaklingum sem gengust undir hjáveituaðgerð við gleiðhorns- Á G R I P Inngangur Gláka er alvarlegur augnsjúkdómur og var algengasti blinduvaldur á Íslandi fram á miðja síðustu öld. Þar sem tíðni gláku hækkar með aldri eru sjúklingar með gláku oft einnig með aðra sjúkdóma og á margs konar lyfjum. Mikilvægt er að hafa gláku í huga þegar lyfjameðferð þessara sjúklinga er ákveðin þar sem augndropameðferð og lyf til inntöku geta haft milliverkanir og aukaverkanir sem skipta sköpum fyrir öryggi og líðan. Markmið rannsóknarinnar var að kanna lyfjameðferð sjúklinga með langt gengna gláku. Aðferðir Fram fór afturskyggn rannsókn þar sem skoðuð voru gögn 100 einstaklinga sem gengust undir fyrstu hjáveituaðgerð við gláku á Landspítala árin 2013-2017. Skráð voru lyf til inntöku á 6 mánaða tímabili fyrir og eftir aðgerð, glákumeðferð fyrir aðgerð, helstu sjúk- dómsgreiningar ásamt aldri og kyni. Niðurstöður Meðalaldur við aðgerð var 75 ár og voru 53 konur í hópnum. Af 100 sjúklingum voru 87 á lyfjum við öðrum sjúkdómum og meðalfjöldi lyfja til inntöku var 5,3 lyf á mann. Meðalfjöldi augnþrýstingslækk- andi lyfja var 3,0 á mann. Prostaglandín-hliðstæður voru algengasta augnþrýstingslækkandi lyfið. Algengasti lyfjaflokkurinn vegna annarra sjúkdóma var blóðþrýstingslækkandi lyf sem 57 sjúklingar tóku að staðaldri, þar af voru 30 sjúklingar á beta-blokkum. Zópíklón var algengasta einstaka lyfið, 29 sjúklingar tóku það. Ályktun Sjúklingar með gláku taka ýmis lyf vegna annarra sjúkdóma sem geta haft áhrif á glákuna og milliverkanir við glákulyf. Þegar lyfjameðferð er ákveðin fyrir einstakling með gláku þarf að hafa í huga hugsanlegar milliverkanir annarra lyfja við gláku og hins vegar milliverkanir gláku- lyfja við aðra sjúkdóma. https://doi.org/10.17992/lbl.2019.04.225

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.