Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - apr 2019, Qupperneq 33

Læknablaðið - apr 2019, Qupperneq 33
LÆKNAblaðið 2019/105 185 Það er ljóst að áskoranir norrænu læknafélaganna eru margar. Þau nefna vanda af ólíkum toga. En danska, norska og finnska félagið nefna öll bága stöðu upplýs- ingatækni innan sjúkrahúsa, þar skorti samhæfingu. Norska læknafélagið gengur svo langt að telja það ógna öryggi sjúklinga. Danska félagið segir lækna hátæknisjúkrahúsanna í Kaupmannahöfn og á Sjá- landi neydda til að eyða meiri tíma í skráningarvinnu en áður vegna lélegs kerfis. Staða þessara sjúkrahúsa sé hörmuleg. Félagið nefnir líka skort á fókus innan geirans. Íslenska læknafélagið hefur áhyggjur af heilsu lækna, en þær áhyggjur eru víðar. Danir segja álagið hafa aukist meðal lækna. Þeir séu margir að- framkomnir. „Æ fleiri skipta um kúrs. Nýjasta dæmið er 42ja ára hjartaskurðlæknir sem hefur ákveðið að yfirgefa sjúkrahúsið og verða heimilislæknir,“ segir í svari danska félagsins. Danskir kjósendur setja heilbrigðismál í ann- að sæti mikilvægasta málefnisins í komandi kosningum, en Danir, rétt eins og Finnar, fá nýtt þing í sumar. Innflytjendamál víkja nú í fyrsta sinn í áratugi úr efsta sæti áhugasviðs landsmanna fyrir umhverfis- og heilbrigðismálum. Þetta kemur fram í svörum Danska læknafélagsins sem segir kosningaloforðin vera uppblásnar helíumblöðrur þegar komi að heilbrigðisgeiran- um. Danskir stjórnmálamenn yfirbjóði nú sjálfa sig. Félagið segir áralangan sparnað í heilbrigðiskerfinu hafa leitt til þess að nú þyki eðlilegt að læknar vinni yfirvinnu á yfirfull- um spítölum. Það valdi læknum sívaxandi gremju. Þeir vilji fá að forgangsraða en stjórnmálamenn hindri það. „Mörg mál eru í skoðun en fá í framkvæmd,“ segir í svari danska félagsins við spurningum norrænu læknablaðanna um breytingar í farvatninu. Félagið segir að sett hafi verið bæði skammtíma- og langtíma- markmið að umbótum, sem eigi að styrkja grunnþjónustuna svo langveikir geti sótt þjónustu utan stóru spítalanna. Enda sé stað- an sú að á meðan hátæknisjúkrahúsin stækki og sérhæfing þeirra verði meiri, aukist þörf fyrir sérhæfðari þjónustu í nærumhverfi fólks. Því sé stefnt að því að heimilislæknar vinni í teymum sem teygi sig til sveitarfélaganna. Félagið gagnrýnir þó stöðu sveitarfélaganna. Þau séu mis- burðug og standi ólíkt þegar komi að því að reka slíka þjónustu. Fæst séu hæf til þess. „Þau hafa enga þekkingu á málinu,“ segir félagið. Danska læknafélagið segir vanda danska heilbrigðiskerfis- ins ekki liggja í formi þess heldur innviðum: „Við þurfum fleiri lækna. Við þurfum betri aðbúnað og við þurfum að efla forvarn- ir.“ Verið sé að taka á skorti á heimilislæknum en ekki annarra. Danska læknafélagið gagnrýnir stefnuleysi stjórn- valda. Tóbak sé til að mynda svo ódýrt að reykingar hafi aukist milli ára í fyrsta sinn í áraraðir. Unga fólkið sé farið að reykja. „Verð á bæði alkóhóli og tóbaki er afar lágt og enginn vilji meðal stjórnmála- manna að breyta því.“ Áskoranir DANSKA LÆKNAFÉLAGIÐ Heilbrigðismál á oddinn hjá dönsku þjóðinni

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.