Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - Apr 2019, Page 39

Læknablaðið - Apr 2019, Page 39
sagt með vissu hversu mikil áhrif stoppið hafði. „Maður er aldrei samur maður 27 ára og 15 ára.“ Hugsaði mikið um dauðann Hann segist hafa hugsað mikið um dauð- ann. „Ég var í námi í listaháskólanum, á sviðshöfundabraut, þar sem ég vann verk um hjartað og dauðann. Ég gerði sviðs- listaverk sem hét Gangverk lífsins og var einhvers konar forveri þessarar bókar.“ Hann hafi farið sem nemi inn á Landspít- alann með hjartalækninum sínum, Hirti Oddssyni. „Ég fékk að fylgjast með nokkrum hjartaaðgerðum, sem var magnað. Þá fór ég að gera þessa rannsókn um hjartað, um þessar tvær hliðar þess, líffærið og það hugmyndafræðilega, sem ég nýti áfram í bókinni,“ segir hann. Lokaverkefnið hans hafi verið um dauðann. „Ég hafði hugsað um hvað dauðinn þýddi og gerði sviðslistaverk sem fjallaði um það,“ segir Þorvaldur. Þátttakendur hafi verið settir í spor þess sem væri að deyja. „Þeir fengu að einhverju leyti að upplifa það að deyja.“ Læknar í návígi við dauðann Þorvaldur segir öllum hollt að velta eig- in dauðleika fyrir sér. „Allir deyja. Við missum öll fólk sem er okkur náið og svo munum við öll á endanum deyja.“ Hver og einn hafi gott af því að velta eigin afstöðu fyrir sér. „Því dauðinn kemur manni í opna skjöldu en það getur hjálpað okkur mikið að skilja og velta því fyrir okkur hvaða merkingu það hefur.“ En er eitthvað eftir dauðann? „Já, í mínu tilfelli var það,“ segir Þorvaldur og brosir. Líf. Áframhaldandi líf. „Þegar mað- ur talar við fólk sem vinnur í miklu návígi við dauðann, eins og lækna og presta, fær maður annað sjónarhorn á dauðann,“ segir hann. „Þá sér maður að þetta fólk ber ákveðna virðingu og lotningu fyrir dauðanum. Burtséð frá trúarskoðunum viðurkenna flestir að dauðinn sé eitthvað sem þeir skilja ekki fullkomlega. Við sem erum lifandi getum aldrei skilið hvað það er að vera dáinn eða hvernig upplifun það er því í 99% tilvika er það óafturkræf upplifun.“ En óttast hann að verða ekki gamall? „Nei, ég pæli ekki mikið í því. Ég er þakk- látur fyrir þann tíma sem ég hef og þann sem ég hef fengið. Það sem framtíðin ber í skauti sér tilheyrir framtíðinni.“ LÆKNAblaðið 2019/105 191 Þorvaldur les ljóð á yfirfullu kaffihúsinu Te og kaffi í miðbæ Reykjavíkur á marsmorgni. Mynd/gag Þorvaldur Sigurbjörn Helgason hefur skrifað ljóðabókina Gangverk eftir reynslu sína af hjartastoppi. Mynd/gag

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.