Læknablaðið - apr. 2019, Blaðsíða 40
192 LÆKNAblaðið 2019/105
Laugardaginn 9. mars síðastliðinn hitt-
ust 50 læknanemar á slökkvistöðinni í
Hafnarfirði eins og vaninn er annað hvert
ár. Tilgangurinn var að setja á svið fjölda-
slys og æfa viðbrögð við því. Atburðarás
slyssins var ekki alveg skýr en greinilegt
var að strætó og nokkrir smærri bílar
höfðu lent í árekstri með óskaplegum
afleiðingum. Þátttakendur í æfingunni
voru á öllum stigum læknanámsins.
Fyrsta árið sá um að útvega leikarana sem
mættu fyrr til að láta mála á sig alls kon-
ar krambúleringar sem gætu hafa skapast í
slysinu. Annað árið hjálpaði til við leikinn
en þeirra aðal hlutverk var, ásamt þriðja
árinu, að flytja slasaða af vettvangi og á
söfnunarsvæði slasaðra. Áður en flutnings-
menn gátu athafnað sig fór fjórða árið á
vettvang og framkvæmdi bráðamat á þeim
slösuðu sem segir til um hverjir þurfa að
komast fyrst undir læknishendur. Inni á
söfnunarsvæði slasaðra biðu svo nemar
fimmta og sjötta árs í hlutverki þess sem
þeir hafa séð í hillingum undanfarin 5-6
ár, læknisins.
Sjúklingar reyndu að strjúka
Ýmsar uppákomur urðu á æfingunni sem
hafði töluvert skemmtanagildi því þeir
sem lágu ekki meðvitundarlausir uppi á
borðum gátu leikið sér mikið með túlk-
un sína á þeirri geðshræringu sem fylgir
því að lenda í slysi. Sem dæmi má nefna
einstakling sem var farinn að stunda lækn-
ingar við hlið eldri nemanna og aðra tvo
sem stöðugt voru að reyna að strjúka af
svæðinu. Þessu þurftu læknanemarnir að
bregðast við eins og öðru. „Maður reiknar
nú ekki með því að lenda í svona atburði
sjálfur á lífsleiðinni þó maður hafi sett sig
í vissan áhættuhóp með starfsvali. Þá held
ég að mesti ávinningurinn af æfingunni
sé að þekkja viðbragðsformið og koma
ekki af fjöllum ef í harðbakkann slær,”
segir Jón Erlingur Stefánsson, læknanemi
á þriðja ári og einn af skipuleggjendum
æfingarinnar. Það vita samt flestir að það
eru ekki læknar sem hlaupa fyrstir til
þegar slys ber að heldur eru það björgunar-
sveitirnar. „Björgunarsveitin Ársæll kom
að öllum stigum skipulagsins. Þeir tóku
að sér að fræða nema, bæði eldri og yngri,
á sér stökum undirbúningskvöldum sem
haldin voru í vikunni áður. Einnig mætti
fólk frá þeim á æfinguna sjálfa sem málaði
leikarana og veitti svo fagleg ráð á meðan
á æfingunni stóð. Án þeirra hefði æfingin
ekki tekist sem skyldi. Í lokin viljum við
þakka Ársæli og slökkviliðinu í Hafnar-
firði fyrir hjálpina við að gera æfinguna að
veruleika,” bætir Jón Erlingur við.
Meðfylgjandi myndir á æfingunni tóku
Hjalti Már Björnsson og Jón Erlingur.
Vel heppnuð stór slysa æfing læknanema
Æfingin tókst einstaklega vel og voru læknanemarnir og aðrir sem stóðu að henni mjög ánægðir með afrakstur dagsins.
Leikarar æfingarinnar voru vel farðaðir og stóðu sig vel í
sínum hlutverkum.
Hluti af þeim læknanemum sem tóku þátt í stórslysaæfingunni.
■ ■ ■ Magnús Hlynur Hreiðarsson