Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - apr. 2019, Qupperneq 42

Læknablaðið - apr. 2019, Qupperneq 42
194 LÆKNAblaðið 2019/105 ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir „Svona er ég nú bara,“ sagði Ýr Sigurðar- dóttir barnalæknir þegar hún hafði lokið við fyrirlestur fyrir læknaráð einn sól- ríkan en kaldan föstudag í marsmánuði í húsakynnum Barnaspítalans. Það var á alþjóð legum baráttudegi kvenna 8. mars og nokkuð vel mætt, salurinn hálffullur. Umræðuefnið var áhugavert. Hún sagði sagði frá eigin samskiptabresti og hvernig hún tók á málinu eftir að hafa sent beinskeyttan tölvupóst um óánægju með breytingar á deildinni sinni á 40 sam- starfsmenn ytra. Í póstinum hafi hún farið yfir það sem hafði egnt hana til reiði. Á föstudagsfundinum fór hún yfir hver áhrif og afleiðingar neikvæðra samskipta eru samkvæmt ýmsum rannsóknum. Ýr er nýflutt heim eftir um 7 ára dvöl í Banda- ríkjunum þar sem hún starfaði sem barna- taugalæknir á Nemours-barnaspítalanum í Orlando og var umsjónarlæknir fyrir þjónustu við flogaveik börn og unglinga. Betur ígrunduð samskipti „Það hjálpar mér að segja það upphátt og opinberlega að ég ætli mér að gera betur. Það hjálpar mér að ná árangri,“ sagði hún við Læknablaðið að loknum fyrirlestrin- um. Hún hafi fundið mun á viðbrögðum fólks eftir að hún tók samskiptamáta sinn í gegn, samskiptamáta sem mörgum er tamur. Tölvupósturinn olli titringi og hún var kölluð á fund ytra til að ræða samskipti. „Teppinu var kippt undan mér,“ sagði hún. Í kjölfarið hafi hún horft í eigin barm. „Oft eru það pínulitlir hlutir sem gera það að verkum að fólki líður ekki vel og erfiðara verður að ganga að sama mark- miði. Það er ekki þín hegðun sem skiptir máli heldur áhrif hennar á aðra,“ lýsti hún. Í tölvupóstinum sem hún svaraði er henni tilkynnt án nokkurs samráðs að lykil-hjúkrunarfræðingur hennar yrði færður til taugaskurðlæknis sem hafði misst sérhæfðan aðstoðarmann sinn. „Mér fannst ég hafa komist óvenju vel að orði, þar sem ég kvarta yfir þessu,“ lýsir Ýr. Hún hafi fengið samstarfsmann sinn til að lesa yfir póstinn áður en hún sendi. „Hann les yfir póstinn og lítur svo á mig og segir: Ef þú sendir þetta lendir þú í vandræðum. Ég horfði á hann og ýtti á send,“ segir Ýr. Í póstinum hafi hún notað þann frasa að sér fyndist að verið væri að taka hjúkrunar fræðinginn sinn til að friðþægja taugaskurðlækninn. „Mér fannst það Áhrif orða þinna á aðra skiptir máli Ýr Sigurðardóttir, barnalæknir og fyrrum yfirlæknir á Nemours-barnaspítalanum í Orlando, er komin heim reynslunni ríkari. Ekki þó aðeins á sínu fagsviði heldur einnig í mannlegum samskiptum utfall 37 000 studenter och 6 000 medarbetare gör Göteborgs universitet till en stor och inspirerande arbetsplats. Stark forskning och attraktiva utbildningar lockar forskare och studenter från hela världen. Med ny kunskap och nya perspektiv bidrar vi till en bättre framtid. Institutionen för kliniska vetenskaper, Sahlgrenska akademin, Göteborgs universitet, söker: PROFESSOR I DERMATOLOGI OCH VENEREOLOGI förenad med befattning som överläkare i hud- och könssjukdomar vid Sahlgrenska Universitetssjukhuset Ref nr: PAR 2018/817 PROFESSOR I HANDKIRURGI förenad med befattning som överläkare i handkirurgi vid Sahlgrenska Universitetssjukhuset Ref nr: PAR 2018/1444 PROFESSOR I ANESTESIOLOGI OCH INTENSIVVÅRD förenad med befattning som överläkare i anestesi och intensivvård vid Sahlgrenska Universitetssjukhuset Ref nr: PAR 2018/1809 UNIVERSITETSLEKTOR I DERMATOLOGI OCH VENEREOLOGI förenad med befattning som överläkare i hud- och könssjukdomar vid Sahlgrenska Universitetssjukhuset Ref nr: PAR 2018/1810 Sista ansökningsdag för ovanstående anställningar är: 2019-05-23 För mer information se Göteborgs universitets hemsida: gu.se/omuniversitetet/aktuellt/lediga-jobb

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.