Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1983, Blaðsíða 6

Hugur og hönd - 01.06.1983, Blaðsíða 6
ragnhildur pétursdóttir I I júnílok sumarið 1938 var undirrituð að ljúka námi sem vefnaðarkennari við Den Kvinnelige Industriskole í Oslo nú Statens læreskole i forming. Fjárráð þeirra tíma nem- enda voru ekki upp á marga fiska og þóttist hver sá hólp- inn sem átti fyrir næstu máltíð; í hópi þeirra er ekki áttu það var, greinarhöfundur. Eina góðviðrishelgi var ég sem oftar stödd á heimili föðursystur minnar Guðrúnar Brunborg, er búsett var skammt frá Oslo. Fleiri gestir voru. Þeirra á meðal Lára Sigurbjörnsdóttir frá Ási í Reykjavík, hún hafði kennt mér á Ftúsmæðraskólanum á Hallormsstað. Kjör mín bárust í tal og sagði Lára þá: „Skrifaðu til Ragnhildar Pétursdóttur í Háteigi, hún er í stjórn Sambands íslenskra heimilisiðnaðarfélaga, það kostar ekkert að reyna.” Eg fór að ráðum Láru og sendi bréf með greinargerð um stöðu mína og beiðni um aðstoð. Ekki leið langur tími þar til kom svar og fjárstyrkur, svo ég gat greitt þær skuldir er stofnað hafði verið til. Um sumarið vann ég svo hjá norsku konunni er ég hafði búið hjá, passaði örvasa móður hennar. Kaupið í Noregi var lágt á þessum árum og sá ég ekki fram á að eiga fyrir fargjaldi heim um haustið. Mest langaði mig þó að halda áfram nárni, en á því voru engin tök að sinni. En viti menn, seinni hlutann í ágúst kemur til mín bréf frá Ragnhildi og boð um vinnu á vegum Sambands íslenskra heimilisiðnaðarfélaga, laun þau sömu og barnakennara og farmiði heim til Islands, sem ég gæti greitt þegar ég fengi kaup. Auðvitað tók ég þessu tilboði fegins hendi, fór með norsku skipi til Reykjavíkur og gerði síðan fljótlega vart við mig í Há- teigi. Frá þeim tíma eignaðist ég þar mitt annað heimili og fæ það aldrei fullþakkað. II Ragnhildur Pétursdóttir fæddist í Engey hinn 10. febrúar 1880, ein af fjórum dætrum þeirra hjóna Ragnhildar Ol- afsdóttur frá Lundum í Stafholtstungum og Péturs Krist- inssonar í Engey. Sambúð þeirra Ragnhildar og Péturs varð ekki löng. Pétur andaðist eftir erfiðan sjúkdóm árið 1887, þá aðeins 35 ára að aldri. Löngu seinna giftist Ragnhildur Ólafsdóttir húsfreyja í Engey Bjarna Magn- Ragnhildur í Háteigi. ússyni skipstjóra, miklum sæmdarmanni og eignuðust þau eina dóttur svo þær Engeyjarsystur voru fimm talsins. Árið 1905 hleypti Ragnhildur Pétursdóttir heimdragan- um og fór til Noregs í nám í húsmæðrafræðum og dvaldi þar til ársins 1907. Þá bjó í Noregi Halldóra Bjarnadóttir ásamt móður sinni; var Halldóra kennari við barnaskóla Mossbæjar á Austfold. Ragnhildur bjó hjá þeim mæðgum á meðan hún beið eftir skólavist. Voru þetta þeirra fyrstu kynni en áttu eftir að verða að órjúfandi vináttu sem ent- ist þeim alla æfi. Mörg urðu þjóðþrifamálin sem þær störfuðu að í sameiningu. Eftir heimkomuna kenndi Ragnhildur á vegum Búnað- arfélags íslands matreiðslu á ýmsum stöðum á Suður- landi. Þessi námskeið munu hafa verið þau fyrstu sinnar tegundar sunnanlands. Um skeið kenndi hún við hús- stjórnardeild Kvennaskólans í Reykjavík. 6 HUGUR OG HÖND
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.