Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1983, Blaðsíða 11

Hugur og hönd - 01.06.1983, Blaðsíða 11
heimilisiðnaðarfélag íslands 70 ára, 12. júlí 1983. Heimilisiðnaðarfélag íslands var stofnað 12. júlí 1913 og er félagið því sjötugt á þessu ári. Forsaga stofnunar þess átti eflaust rót sína að rekja um 50 ár aftur í tímann eða til ársins 1862. Þá fékk Sigurður Guðmundsson málari þá hugmynd, að nauðsynlegt væri að koma upp forngripasafni, til að safna þangað og varð- veita þar íslenzka gripi og menningarverðmæti frá 1000 ára tilveru íslenzkrar þjóðar í landinu. Ástæðan hefur trú- lega verið fundur gamalla muna í uppgreftri bæjar eins á Norðurlandi 1860-61. Onnur orsök og ekki veigaminni var sú, að erlendir menn og söfn leituðu mjög eftir því að fá hér gamla íslenzka muni, bækur og annað. Menningarverðmæti íslenzk streymdu þannig til hins stóra þjóðminjasafns í Danmörku og til Norðurlanda annarra. 1863 Hugmynd Sigurðar fékk fljótt stuðning og 1863 var Forngripasafn íslands stofnað með l'yrstu gjöfinni til þess, 15 gripum frá Sr. Helga Sigurðs- syni, Jörva. Með stofnun Forngripasafns íslands fóru menn að skilja betur gildi hinnar fornu bændamenning- ar og starfs heimilanna og halda til haga góðum gripum og bjarga bókum frá eyðileggingu eða flutningi til útlanda. Einnig að átta sig á vinnuað- ferðum og meta hið gamla handverk. Til þess að kynna þessi sjónarmið og fá sem flesta með var 1883 sýning haldin 1883 á vegunr iðnfélaga í Reykja- vík. Margskonar vörur frá byrjandi iðnaði, áhöld, vélar, jafnvel matvörur, en einnig mál- verk og höggmyndir. Heimilisiðnaðarhlutir áttu þó verulegan þátt í þessari sýningu: vefnaður, saumur, ullarvinna og smíðahlutir. Eftir alda- mótin byrjuðu vinir heimilisiðnaðarins einnig námskeið ýnriskonar, t. d. í vefnaði. 1911 Önnur sýning var haldin í Reykjavík 1911 um sama efni, einnig á vegum iðnfélaga og hand- verksmanna. Þar var þáttur heimilisiðnaðar enn greinilegri. Þessir fáu punktar um forsögu þeirrar þróunar, sem leiddi til stofnunar Heimilisiðnað- arfélags íslands 1913, verða að nægja þó lítið sé, um 50 ára tímabil, þ. e. hugmynd Sigurðar Guðmundssonar málara um fornminjasafn, svo rösklega framkvæmd 1863 og sýningarnar. Fyrstu uppástungur um stofnun Heimilisiðnað- arfélags Islands (H. I.) munu hafa komið fram veturinn 1911-12 í Lestrarfélagi kvenna, svo segja má, að konur standi bak við flest gott. 1913 H. í. var svo stofnað 1913. Fyrsti formaður (hét forseti) þess var Jón Þórarinsson fræðslumála- stjóri og með honum einvalalið í stjórn, þ. e. Matthías Þórðarson fornminjavörður, Rögnvald- ur Olafsson, fyrsti starfandi arkitekt landsins, Ásgeir Torfason, fyrsti efnafræðingur landsins, Ingibjörg H. Bjarnason forstöðukona Kvenna- skólans í Reykjavík, Inga Lára Lárusdóttir og Sigríður Björnsdóttir. Ýtarleg lög voru samin, svo mjög að mörg atriði standa enn og ýmsar hug- myndir hafa ennþá varla komið til framkvæmda. Félagið var landsfélag. Var þegar hafist handa um námskeið og aðra leiðbeiningastarfsemi. Voru þau styrkt af landssjóði og Reykjavíkurbæ. Ýmis smærri heimilisiðnaðarfélög tóku að rísa úti 1920 á landi næstu árin. Var þá, 1920, stofnað Samb- and íslenzkra heimilisiðnaðarfélaga, aðallega til útdeilingar á styrkjum til þeirra úr landssjóði og svo síðar, árið 1927, til þess að vera aðili að Heimilisiðnaðarsambandi Norðurlanda (Nordens Husflidsforbund). Við þessa breytingu varð H. í. meira félag Reykjavíkur, þó það héti ennþá upp- runalegu nafni. Með tilkomu húsmæðraskólanna og verknámsdeilda annarra skóla breyttist verk- svið heimilisiðnaðarfélaganna og þeim tók að fækka. H. í. var að lokum aftur eitt eftir. Sam- bandið var lagt niður 1959 og H. I. gert að landsfélagi á ný. Freistandi væri að nefna nöfn nokkurra þeirra ágætu karla og kvenna, er lögðu starfinu lið á þessum árum. Eg verð líklega að láta nægja að nefna Halldóru Bjarnadóttur, sem lengi var fast- ur ráðunautur ríkisins um heimilisiðnaðarmál eða HUGUR OG HÖND 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.