Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1983, Blaðsíða 27

Hugur og hönd - 01.06.1983, Blaðsíða 27
Eftir 15 ára dvöl í Botni kom Júlíana í kaupavinnu að Kirkjubóli í Önundarfirði til móður minnar, en þær voru systur. Fór svo fram í nokkur ár að hún var á Kirkjubóli á sumrin en í Súgandafirði á vetrum. Svo hætti hún að fara á haustin og settist alveg að hér á Kirkjubóli og því heimili vann hún svo meðan kraftar entust. Þegar Júlíana fluttist hingað var hún hætt hestagerð sinni, en Halldór bróðir minn hvatti hana til að byrja á henni aftur. Hún taldi í fyrstu öll tormerki á því, en Hall- dór var ýtinn, svo hún sagði að lokum: „Komdu þá með spýturnar”. Hún sagði fyrir um lengd og þykkt og lag á höfði og fótum og fékk efnið sagað niður. Síðan tálgaði hún það til og hóf sköpunina. Eg litaði fyrir hana baðm- ullarefni í húðina og svo fæddust hestarnir hjá henni, rauðir, jarpir og leirljósir, brúnir, bleikir, moldóttir og mósóttir, henni sjálfri og mörgum öðrum til ánægju. Ymsir urðu til að panta hjá henni hesta, hún seldi þá við vægu verði og marga gaf hún. I elli sinni fékk Júlíana viðurkenningu frá Heimilisiðn- aðarfélagi Islands fyrir þennan heimilisiðnað sinn, 500 krónur. Það lýsir henni vel, hvernig hún varði þeim peningum. Hún keypti fyrir þá ritsafn Einars H. Kvaran, sem þá var nýkomið út og gaf mér það án nokkurs tilefnis, hún vissi að mér var það kærkomið. Júlíana dó á útmánuðum 1946 á 82. aldursári. Jóhanna Kristjánsdóttir Þennan hest gerði Júlíana handa Guðrúnu G. Jónsdóttur fyrir 55 árum. Hann hefur nú verið leik- fang þriggja kynslóða og má muna fífil sinn fegri. HUGUR OG HÖND
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.