Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1983, Blaðsíða 10

Hugur og hönd - 01.06.1983, Blaðsíða 10
semina, fyrst voru settir upp gamlir vefstólar, svo vinnan gæti hafist sem fyrst, en jafnframt pantaðir nýir hjá Trésmiðju Eyrarbakka, sem þeir Bergsteinn Sveinsson og Vigfús Jónsson áttu og ráku. Vefstólarnir voru engin smásmíði, annar skilaði 1,50 m breidd og hinn 2 m. Við Júlíana unnum svo við gólfteppavefnaðinn um veturinn og hluta úr sumrinu, en hún fluttist aftur til Bergen um haustið 1939. Þá komu til vinnu með mér systurnar Olöf og Helga Þorsteinsdætur frá Langholti í Flóa og var hlut- verk mitt að kenna þeim og sjá um vinnustofuna. Fram- leiðslan var áfram gólfteppi, ýmist ofin með röggvarvefn- aði, þráðabrekáni eða krossvefnaði. Pantanir voru af- greiddar og eitthvað selt þar að auki. Þetta urðu vitaskuld dýrir hlutir og ekki á allra færi að eignast. Sumarið 1940 keypti Ragnhildur áhöld, garn og teppalager af Samband- inu, en veturinn eftir vann ég áfram við vefnað hjá henni heima í Háteigi. Stóra vefstólinn gaf síðan ein dóttir Ragnhildar Heimilisiðnaðarfélagi Islands. A efri árum fór Ragnhildur að vefa myndvefnað og hafði af því mikið yndi. Hún vann hugmyndir sínar beint í vefinn. Gaman var að koma í heimsókn í Háteig og hlusta á skýringar hennar á myndtjáningunni, oftast voru þær tengdar gömlum minnum frá Engey. Greininni fylgja myndir af nokkrum verka hennar. Ragnhildur Pétursdóttir andaðist hinn 9. janúar 1961 á áttugasta og fyrsta aldursári eftir gifturíka æfi. Guðrún Jónasdóttir Heimildir: Gjörðabók Heimilisiðnaðarfélags Islands árin 1913 til 1962. Hlín, ársrit kvenna 1931-1941. Afmælis- og minningargreinar úr dagblöðum. Katrín Helgadóttir: Skólaslitaræða Húsmæðraskóla Reykjavíkur 1961. Veggteppi, stærð 60 x 72 cm. ofið úr handspunnu jurtalituðu bandi. 1il NÉ'. ■ 4jf|g&i 10 HUGUR OG HÖND
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.