Hugur og hönd - 01.06.1983, Blaðsíða 61
röndóttur jakki
Efni:
500-600 gr ljósgrár plötulopi prj tvö-
faldur. 400 gr lopi t. d. tveir dökk-
gráir, bleikt, vínrautt.
Prjónar nr 6 og 4 1/2.
Þensla: 15 L = 10 cm. 15 umf = 10
cm.
Fitjið upp 165 L með grunnlit á pr nr
6 og prj garðaprjón í 6-8 umf. Síðan
er prj í hring með tveim litum. Prjón-
ið verður langröndótt, sléttar L eru
prj með grunnlit, hér ljósgráu, en
brugnar L með hinum litunum til
skiptis eftir eigin vali, gott er að
skipta nokkuð oft um lit til að dreifa
þeim sem jafnast. Hver og einn
skiptir röndunum að vild, en betra er
að hafa ekki fleiri en 5 L af sama lit
í senn vegna þess hve gróft er
prjónað. Peysubolurinn er prj í hring
uppúr alls 120 umf = 80 cm, lykkj-
urnar þá dregnar upp á band. Nú
er merkt fyrir handvegum 27 cm síð-
um og saumað í saumavél beggja
vegna við merkinguna, 80 L fara í
bakstykki, 85 L í framstykki. Merkt
er fyrir miðju að framan og saumað
í vél beggja vegna við merkinguna.
Klippt uppúr milli stungna. Prjónið
nú axlir saman frá röngu 24 L hvoru
megin, fellið af. Fitjið upp 20 L fyrir
lista og barmfóðri sem er prj í einu
lagi. Prj 8 L með garðaprjóni (listi)
í grunnlit, en 12 L með sléttu prjóni
og t. d. bleiku. Þetta prj í 144 umf.
Gerið hnappagöt á hægri lista eftir 7
garða og síðan með 16 garða bili.
Fellið garðaprjónslykkjurnar 8, en
geymið 12 bleiku L á prjónanælu.
Þær eru seinna lykkjaðar við innra
borð á kraga. Listarnir eru saumaðir
við brún að framan og barmfóðrið
lagt yfir á röngu og lagt laust niður
við það.
I handveg eru teknar upp 73 L
(öruggara 2 lykkjum innan við
saumavélarstunguna vegna þess hve
gróft prjónið er). Og ermin prj
frá öxl og fram, á hringprjón. Ermin
er með fleyg undir hendi. Hann er
prjónaður í grunnlit en ermin sjálf
prj röndótt eins og bolurinn. Fleygur-
inn er 22 L, yfirermi 51 L. Urtökur
eru allar á fleygnum. Tekið er úr
beggja vegna eftir 7 umf og síðan í
3ju hverri umf 9 sinnum. Þá prj 5
umf og tekin úr ein L og eftir 10 umf
er aftur tekin úr ein L. Þá eiga lyk-
kjurnar í fleygnum að vera búnar.
Vegna þess hve fleygurinn er breiður
er nauðsynlegt að slíta mislita lopann
frá við samskeytin og þarf þá að
ganga frá þeim endum öðru megin,
hinu megin má prjóna saman. Prj
ermina áfram í 26 umf. Skiptið yfir á
pr nr 4 1/2 og prj garðaprjón með
grunnlit í 8-10 umf.
Takið upp lykkjur í hálsmáli, 28 L
af bakstykki og 14 af hvorum
boðang, 56 L alls. Prj sléttan lista
með grunnlit í 9 umf, síðan eina umf
brugðna, líka í grunnlit (brotlína).
Skiptið í bleikt og prj áfram sl í 7
umf. Brjótið listann tvöfaldan og
lykkjið fremstu lykkjurnar við
barmfóðrið. Saumið hinar við
hálsmál. Saumið fremri brún kraga
saman. Festið tölur móti hnappa-
götum. Pvoið. Pressið e. t. v. hornin
niður. V. P.