Hugur og hönd - 01.06.1983, Blaðsíða 15
silfursmíðar
helga þórðarsonar
Einn hinna högu silfursmiða á 18. og 19. öld var Helgi
Þórðarson á Brandsstöðum í Blöndudal. Um hann er þó
ekki miklar heimildir að finna og hans er næsta sjaldan
getið nema í manntölum og kirkjubókum með stuttorðum
upplýsingum að venju um aldur og hjúskaparstétt.
Helgi mun fæddur snemma árs 1761 að Torfalæk í
Húnavatnssýslu, en þar var faðir hans Þórður Helgason
bóndi og hreppstjóri. 1801 er Helgi leiguliði á Brands-
stöðum fertugur að aldri og býr þar með konu sinni Olöfu
Símonardóttur, sem hann kvæntist ekkju og hafði búið
þar áður. Eru börn þeirra þá tvö og urðu ekki fleiri.
Helgi er í manntalinu það ár kallaður silfursmiður og
einnig er hann meðhjálpari. Arið 1816 er orðið tvíbýli að
Brandsstöðum og búa þau hjónin, Helgi og Ólöf, á öðru
býlinu en á hinu dóttir þeirra Hólmfríður og maður henn-
ar Björn Bjarnason, sá er ritaði Brandsstaðaannál. Helgi
lézt þar á Brandsstöðum 20. apríl 1828, 67 ára.
Helgi Þórðarson hefur verið óvenjuhagur silfursmiður
og mætti ætla af smíðisgripum hans, að hann hafi lært
ytra. - Guðmundur Jósafatsson frá Brandsstöðum hafði
heyrt, að Helgi hefði lært í Danmörku og að þar ytra séu
tveir kaleikar eftir hann í kirkjum, en ekki hefur nafn
hans fundizt í bókum gullsmiðafélagsins í Kaupmanna-
höfn, þar sem mestar líkur eru til að hann hefði lært, og
kaleikar þessir eru óþekktir.
Það sem einkum bendir til, að Helgi hafi lært ytra, eru
auk vandaðs handbragðs sem minnir á lærðan smið, ka-
leikar nokkrir frá hans hendi, en vart hafa aðrir smíðað
kaleika en lærðir silfursmiðir. Svo er og það, að hann
stimplar smíðisgriði sína, en á þessum tíma munu vart
aðrir en lærðir smiðir hafa stimplað hérlendis.
Kaleikar Helga í krikjum eru sjö talsins og fylgja flest-
um þeirra patínur. Helgi hefur númerað kaleikana, þann-
ig er kaleikur í Viðvík nr. 10, á Bergsstöðum í Svartárdal
nr. 11 og á Breiðabólstað í Vesturhópi nr. 12. Neðan á
fæti hans er þessi áletrun: „No. 12 Helge Þórðarson.
1825. Vegur 23 Lod 2. qvint”. Að auki er svo stimpill
Helga, stórt gotneskt H í skrautumgerð og á patínunni er
sami stimpill og ártalsstimpill 1825 og að auki grafið:
„Vegur 6 Lod”.
Patína í Hvammstangakirkju, áður
í Kirkjuhvammskirkju, eftir Helga
Þórðarson. IHS, fangamark Krists,
í eikarlaufakransi, á röndina graf-
ið: Deo Omnipotenti et Salvatori
Jesu Christo Sacrum.
Ljósm. Ole Villumsen Krog.
15