Hugur og hönd - 01.06.1983, Blaðsíða 39
— rauð
Treyja: Bak og framstykki eru prjón-
uð í einu lagi fram og aftur upp að
handveg. Fitjið upp með loðbandi á
pr nr 4, 160 (168) 176 L. Prj kant
með sl prjóni 8 umf, brugðna hliðin
snýr út á réttu og kanturinn hrekkur
inn á röngu. Skiptið yfir á pr nr 5 og
prj bolinn eftir munsturteikningu eða
ykkar eigin munstri, með garðaprjóni
og gatasnari ýmist frá vinstra eða
hægra kanti. Prjónið 12 cm (teygið
örlítið á prjóninu).
Vasi: Prj 12 (14) 16 L. Prj næstu 18
L (vasaop) með loðbandi á pr nr 4.
Prj kant slétt prjón brugðna hliðin
snýr út 8 umf, fellið laust af frá
röngu. Fitjið upp 18 L á pr nr 5 og
prjónið innri vasann um 6 cm. Prjón-
III J
• . • • • • • • • : •
r / o / oí/ o / o /0
-
• • • • • • • . • L
n
"i r-^ • * • • • • • • • 1
7.
4 • e / í
/ r -i • • • • • • •
1 • /4
— - - - — — - - “ \ /í
/ i. • • • • • • • • • 1
(r //
/ >. -i
e-j
8 -»
% -> f ~~ — - —
A>.
/ A
y
+- t>
4* * • • • . • . . • •
/, 4. t
i/. / . prp • S ÍVue .
Irr. u™ pr~i ■
i/. 2. p<rj
á/. yí. pyq ryteb /op(L .
ið þessar lykkjur í vasaopið og prjón-
ið umferðina áfram þar til eftir eru
18 + 12 (14) 16 L á prjóninum. Prj
vasa á sama hátt og t'yrr. Prj upp að
handveg 35 (36) 37 cm. Prjónið nú
boðanga og bak hvert fyrir sig. Gætið
þess að munstur á boðungum og baki
verði eins nema annars sé óskað.
Hœgri boðangur: Prjónið 40 (42) 44
L að handvegi, og fitjið upp 18 L fyr-
ir ermi. Prjónið 13 cm þá er fellt af
fyrir hálsmáli. Fellið af í byrjun umf
9 L, 2 L, 1 L. Prjónið upp að öxl 23
(24) 25 cm. Geymið lykkjurnar.
Prjónið vinstri boðang á sama hátt og
bak jafnlangt. Lykkjið saman á
öxlum.
Kantur á boðanga og hálsmál: Prjón-
ið upp lykkjur með loðbandi á prjóna
nr 4. Byrjið neðst við hægri boðang.
Farið með prjóninn í aðra hverja
lykkju í aðra lykkjuröð frá jaðri. Við
horn á boðangi og hálsmáli verður að
prjóna upp 4-5 L til að fá nóga vídd
í kantinn. Athugið hvort kanturinn er
hæfilega strekktur, á að vera örlítið
fastari en prjónið. Ef ekki, prjónið
þá upp fleiri lykkjur við brún, prjón-
ið t. d. í tvær lykkjur hlaupið yfir
eina lykkju. Prjónið 8 umf slétt
prjón, brugðna hliðin snýr út á réttu.
Fellið laust af frá röngu.
Frágangur: Brjótið kantinn að hálfu
yfir á röngu og leggið niður við í
höndum.
Pils í sex dúkum: Þar sem pilsið er
prjónað með garðaprjóni er þægi-
legast að prjóna bak og framstykki
hvort fyrir sig. Prjónið garðaprjóns-
jaðar - takið síðustu L af óprj, en
prjónið alltaf fyrstu lykkju. Þá er
auðvelt að jaðra saman brúnir, svo
garðar stemmi í hliðum. I pilsið eru
prjónaðar rendur, ein slétt umf frá
réttu. Fyrsta rönd er prjónuð eftir 28
garða, síðan eru 14 garðar milli
randa. Byrjað er að prjóna frá mitti
og niður, með því er hægara að
ákveða sídd og vídd.
Strengur: Fitjið upp 72 (80) 88 L á pr
nr 4 með einföldum plötulopa, prj sl
pr 8 umf. Prj 1 garð er myndar brún
strengsins. Prjónið 1 sl 1 br 8 umf og
aukið í 8 L með jöfnu millibili í síð-
ustu umf. Skiptið yfir á pr nr 5 og prj
garðaprjón. Skiptið framstykkinu
niður í 3 dúka, 25 (27) 29 L, 30 (34)
38 L, 25 (27) 29 L, setjið merki þar
við (öryggisnál). Aukið út eftir
hverja 14 garða, 1 L við hvora hlið
og 2 L sitt hvoru megin við miðdúk
(merki) sjá teikn. Ef óskað er eftir
meiri eða minni vídd, má hafa fleiri
eða færri garða milli útaukninga.
Prjónið kant neðst á pilsið með sléttu
prjóni, brugðna hliðin út á réttu,
kanturinn hrekkur inn á röngu. Fellið
laust af frá röngu. Prjónið bakstykki
á sama hátt: Þvoið pilsið og treyjuna
úr mildu sápuvatni, setjið örlítið edik
í síðasta skolvatn ef loðbandið lætur
lit. Leggið á slétta plötu og sléttið
vel, strekkið með ryðfríum títuprjón-
um og fáið fallegt lag á hvorttveggja.
Fóðrið pilsið með þunnu silkifóðri,
sníðið það eftir prjóninu, saumið í
vél. Gangið frá fóðri í höndum við
streng. Setjið teygju í mittisstreng.
K. J.
39