Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1983, Side 19

Hugur og hönd - 01.06.1983, Side 19
íslensk nútímasöðlasmíð Á Selfossi rekur Skúli Einarsson söðlasmíðaverkstæðið Baldvin og Þorvaldur, en það starfaði áður í Kópavogi og er nafnið komið frá fyrri eigendum. Baldvin Einarsson söðla- og aktygjasmiður stofnaði verkstæðið árið 1905 og rak fyrst einn á Laugvegi 43. Á þeim tíma var talsvert smíðað af aktygjum fyrir Vegagerðina og allt framyfir árið 1940. - Skúli er kornungur maður, hann hóf nám hjá Helga Finnlaugssyni á Selfossi árið 1973, en keypti fyrr- nefnt verkstæði 1981 og með því kom úr Kópavoginum Pétur Þórarinsson og „flutti með sér gott handbragð og vandaða vinnu hingað austur", segir Skúli. Með þeim vinna líka Friðrik Sölvi Þórarinsson og Sigrún Ólafsdóttir, sem er lærlingur. Þau eru nýflutt í gamla bankahúsið á Austurvegi 21 og finnst því gamla húsi hæfa vel þessi gamla iðngrein. Hvað kom þér til að læra söðlasmíði? Afi minn Jón Einarsson bóndi á Tannstaðabakka í Hrúta- firði var jafnframt söðlasmiður. Hann skildi eftir sig gömul handverkfæri svo ég vissi eftilvill meira um þetta fag en ella. Sum þau verkfæri eru enn til í sveitinni fyrir norðan. Geturðu lýst svolítið fyrir okkur söðlasmíði? Grindin sem hnakkurinn er byggður á heitir virki og kem- ur tilbúið frá Englandi, sett saman úr krossvið og járni. Fyrst eru strekktir borðar á virkið, 2 langsum og 4 þversum. Þeir eru úr hör eða hessian, en nú eru þeir einnig til úr næloni. Þegar búið er að strekkja borðana eru settir tveir leður- hálfmánar sitt hvoru megin á sætið aftast. Strekkt tau yfir allt saman en skilin eftir op að framan og aftan svo hægt sé að stoppa með ull. Það er mikill vandi að stoppa sætið þétt og vel svo hvergi verði hnökrar, það er eitt vandasamasta verkið að gera þetta rétt. Nú er tekið grófsniðið sætaleður, bleytt í volgu vatni og strekkt yfir léreftið. Það er síðan látið þorna og sama er gert með svonefnt skaut sem kemur aftaná hnakkinn. Þá eru tekin yfirlöfin og þeim stillt nákvæmlega upp í réttar stellingar sitt hvoru megin á hnakknum. Þegar þau eru komin í stellingar er strikað og merkt fyrir saumnum. Sætaleðrið og skautið er tekið aftur af hnakknum þegar það er orðið þurt og skorið í strikið og síðan saumað eftir merkjum, handsaumað. Strekkt yfir á ný og neglt fast. Nú er löfunum fest á hnakkinn og síðan móttökunum. Þá er hryggskinn strekkt langsum undir miðju hnakksins. Þegar það er búið er farið að sníða niður og sauma þóf- ana (undir dýnurnar). Hnakkólakengir og annað þess háttar er sett síðast. Hafa orðið einhverjar breytingar í söðlasmíðinni? Já, það hafa orðið talsverðar breytingar og þróun á sér stað einmitt núna og fylgir nýjum mönnum. Eftir lægðina miklu í hestamennsku og eftir að farið var að llytja út hesta fóru íslenskir hestamenn að hafa meiri samskipti við erlenda hestamenn og það má segja að það verði skoðanaskipti og umræður um reiðtygin í kjölfar þess að áseta og reiðlagið hefur breyst. Einnig hafa komið nýir þættir inní reiðlistina sem gera breyttar kröfur til reiðtygj- anna. Er það til bóta? Flestar eru breytingarnar af hinu góða, og vil ég hér sér- staklega þakka íslenskum hestamönnum fyrir mikinn áhuga og góðar ábendingar. Án þeirra væri róðurinn erf- iður fyrir innlendu framleiðsluna. Margt gagnlegt hefur komið fram fyrir sýningahestamennsku og hlýðnikeppni. En við gömlu frjálsu útreiðarnar hentar gamli íslenski hnakkurinn vel. Leður og annað efni er betra eftir að far- ið var að flytja inn vönduð reiðtygi og samanburður og samkeppni harðnaði. HUGUR OG HÖND 19

x

Hugur og hönd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.