Hugur og hönd - 01.06.1983, Page 37
léttleiki íslensku ullarinnar
tvær prjónadraktir
— blá
Stærð: 38 (40) 42
Yfirvídd: 88 (92) 97
Efni: Plötulopi (Alafoss), ljósasti lit-
urinn 4—5 plötur 450 gr. Loðband í lit
100 gr.
Hringprjónar: Nr 4 fyrir kant. Nr 5
fyrir bol og pils. Prjónað er úr ein-
földum plötulopa og loðbandi. Ef
lopinn slitnar er hann lagður saman á
misvíxl og teygt örlítið úr honum svo
grófleikinn verði sem jafnastur.
Munstur: Draktin er öll prjónuð með
garðaprjóni og gatasnari, sem er
prjónað á eftirfarandi hátt. Prjónið 2
L saman, bregðið um prjóninn. End-
urt alla umferðina. Prjónað er fram
og til baka, engin regla er um lita-
skipti, þó oftast sé ein umf prjónuð
með loðbandi en 2-5 umf með lopa.
Við litaskipti er ekki slitið frá, en
byrjað við þann enda prjónsins þar
sem bandið er staðsett. Við það fæst
þessi létta áferð, þar sem rétta og
ranga á prjóni er sitt á hvað. Gætið
þess að lausa bandið verði hæfilega
strekt við jaðra.
Þensla prjónsins: 15 L og 36 umf
(mælt á bol) á pr nr 5 eru 10 x 10 cm.
Til að fá rétta stærð á draktina verð-
ur þenslan að vera eins og að framan
greinir. Annars verður að velja
grófari eða fínni prjóna. Prjónið því
sýnishorn. Fitjið upp 25 L á pr nr 5
og prj 45 umf. Reynið að búa til ykk-
ar eigið munstur, ef vill, skoðið þá
skýringarteikningu og prófið sjálf.
Þvoið og strekkið sýnishornið. Mælið
vel fyrir innan jaðra hver þenslan er.
Treyja: Bak- og framstykki eru prjón-
uð í einu lagi fram og aftur upp að
handveg. Fitjið upp með loðbandi á
prjóna nr 4, 160 (168) 176 L. Prjónið
kant með sléttu prjóni 8 umf,
brugðna hliðin snýr út á réttu og
kanturinn hrekkur inn á röngu.
Skiptið yfir á pr nr 5 og prj bolinn
eftir teikningu eða ykkar eigin
munstri, með garðaprjóni og gata-
snari ýmist frá vinstri eða hægri kanti.
Prjónið 12 cm (teygið örlítið á prjón-
inu).
Vasi: Prj 12 (14) 16 L; Prjónið næstu
18 L (vasaop) með loðbandi á prj nr
4, kant slétt prjón, brugðna hliðin
snýr út á réttu 8 umf. Fellið laust af
á röngu. Fitjið upp á aukapr nr 5, 18
L og prj innri vasann 6 cm. Prjónið
þessar lykkjur í vasaopið og prjónið
áfram þar til eftir eru 18 + 12 (14)
16 L á prjóninum. Prjónið vasa á
sama hátt og fyrr. Prjónið upp að
handveg 35 (36) 37 cm.
Handvegur: Prj 35 (37) 39 L. Geym-
ið 10 L á prjónanælu. Prj 70 (74) 78
L. Geymið 10 L. Prjónið 35 (37) 39
L. Prj boðanga og bak hvert fyrir sig.
Gætið þess að munstur á boðungum
og baki verði eins, nema annars sé
óskað. Þegar handvegur mælist 13
(14) 15 cm er fellt af fyrir hálsmáli.
Fellið af í byrjun umf 9 L, 2 L, 1 L.
Prj upp að öxl 23 (24) 25 cm. Geym-
ið lykkjurnar. Prj vinstri boðang á
sama hátt. Prj bak jafnlangt. Lykkið
saman á öxlum.
Ermar: Prj upp lykkjur í handvegi
með loðbandi á prjóna nr 4 frá réttu.
Prj frá og að lykkjum sem geymdar
voru undir handvegi. Prj í fyrstu 2 L,
hlaupið yfir 1 L, endurt allan hand-
veginn. Prj kant með sl prj brugðna
hliðin snýr út á réttu 4 umf. Skiptið
yfir á pr nr 5 og prj munsturprjón
fram ermina, æskilega lengd og endið
á að prjóna kant. Fellið af frá röngu.
Kantur á boðanga og hálsmál: Prj
upp lykkjur með loðbandi á prjóna
nr 4. Byrjið neðst við hægri boðang.
Farið með pr í aðra hverja L í aðra
lykkjuröð frá jaðri. Við horn á boð-
angi og hálsmáli verður að prjóna
upp 4—5 L til að fá nóga vídd í kant-
inn þar. Athugið hvort kanturinn er
hæfilega strekktur, hann á að vera
örlítið fastari en prjónið. Ef ekki,
prjónið þá upp fleiri lykkjur við brún
t. d. prjónið í tvær lykkjur hlaupið
yfir eina lykkju. Prjónið 8 umf slétt
HUGUR OG HÖND
37