Hugur og hönd - 01.06.1983, Side 50
heimilisiðnaðarskólinn
Eins og venja hefur verið frá stofnun Heimilisiðnaðar-
skólans hefst hvert skólaár í byrjun september og stendur
fram í maílok. Á síðastliðnum vetri, 1982 - 1983, voru
haldin samtals 60 námskeið í um 30 mismunandi náms-
greinum og sóttu þau um 500 nemendur. I Hugur og
hönd ’82 er listi yfir öll námskeið sem fyrirhuguð voru
þennan vetur, nokkur þeirra féllu niður af ýmsum ástæð-
um. Á móti var hægt að koma fyrir nokkrum aukanám-
skeiðum og munaði þar mest um námskeið sem stofnað
var til fyrir nemendur í framhaldsdeild í handlistum við
Kennaraháskóla Islands. Námsgreinar sem nemendur
KHI fengu kennslu í voru þjóðbúningasaumur, baldýring,
knipl, tóvinna, jurtalitun og mismunandi bandavefnaður.
Að sumu leyti er Heimilisiðnaðarskólinn betur búinn af
kennslutækjum fyrir handmenntir en margur ríkisskólinn,
auk þess að hafa innan sinna vébanda ágætt kennaralið.
I janúar síðastliðnum voru haldin tvö námskeið í Heim-
ilisiðnaðarskólanum, sem Heimilisiðnaðarfélag Islands
bar kostnað af. Á öðru var kenndur íslenskur glitvefnað-
ur á hinu glitsaumur. Félögum í HI var gefinn kostur á
ókeypis þátttöku og komust 10 nemendur að á hvoru
námskeiði. Þau byrjuðu á því að Elsa E. Guðjónsson hélt
fyrirlestur með litskyggnum um námsefnið, síðan fengu
nemendur að spreyta sig á munsturgerð og flestir útfærðu
svo eigin munstur, ofin eða saumuð. Árangur varð framar
öllum vonum, þegar tekið er tillit til þess að þátttakendur
voru nær allir lítt þjálfaðir í þessum vinnubrögðum. Vond
veður og ófærð settu allar tímaáætlanir úr skorðum, allt
gekk þó upp að lokum, þökk sé fórnfúsu framlagi kennar-
anna Áslaugar Sverrisdóttur og Önnu M. Höskuldsdóttur.
Eins og upphaflega var fyrirhugað, var farið með verkin
sem unnin voru á þessum tveim námskeiðum á norrænt
heimilisiðnaðarþing í Danmörku. Þar kynnti HI íslenskan
glitvefnað og glitsaum. Auk þess mun hluti verkanna
verða með á farandsýningu HI, sem efnt er til vegna 70-
ára afmælis félagsins, og farið verður með út um land á
þessu hausti.
Á komandi skólaári verður á dagskrá svipaður fjöldi
námskeiða og áður, nokkrar námsgreinar bætast við, ör-
fáar felldar niður, aðrar verða hinar sömu. I fimm grein-
um verða námskeið með samfelldri kennslu nokkra daga
í röð, í jurtalitun, munsturgerð, myndvefnaði, uppsetn-
ingu vefja og þjóðbúningasaum. Þessi skipan námskeiða
ætti að gera fólki utan af landi hægara um vik að sækja
nám í Heimilisiðnaðarskólanum.
Um miðjan september bíður Heimilisiðnaðarskólinn
kennurunum að taka þátt í námskeiði í munsturgerð, sem
væntanlega á eftir að koma hverjum og einum til góða við
kennsluna, auka innbyrðis kynningu og efla samstarf.
Þetta er nýbreytni sem vonandi getur orðið framhald á.
Frá því Heimilisiðnaðarskólinn tók til starfa hefur vetr-
ardagskrá verið lögð fram um mánaðarmótin ágúst-sept-
ember og í fyrsta sinn haustið 1981 var dagskráin með
öllum upplýsingum um námskeiðin gefin út í fjölrituðum
bæklingi. Hann kemur nú út í þriðja sinn fyrir skólaárið
1983 - 1984 og er afhentur öllum nemendum skólans og
þeim sem vilja kynna sér hvaða nám er í boði í skólanum.
Innritun á námskeið Heimilisiðnaðarskólans fer fram á
skrifstofu skólans að Laufásvegi 2. Kennslugjöld þarf að
greiða fyrir fram. Skrifstofutíma hefur verið breytt og er
nú þannig: Mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 10
- 16, þriðjudaga kl. 12.30 - 18.30. Upplýsingar eru gefnar
í síma 17800.
í ágúst 1983,
Sigríður Halldórsdóttir
50
HUGUR OG HÖND