Hugur og hönd - 01.06.1985, Blaðsíða 4

Hugur og hönd - 01.06.1985, Blaðsíða 4
TÓVINNULIST Fyrstu starfsár verslunar Heimilis- iðnaðarfélagsins bárust öðru hverju vestan af ísafirði afar fal- legir prjónaðir gripir, hyrnur og sjöl og stóðu stutt við. Þessi verk komu frá Þór- dísi Egilsdóttur. Hún var fædd 1878 að Kjóastöðum í Biskupstungum, ung settist hún að á ísafirði með manni sínum og bjó þar til dauðadags 1961. Verk Þórdísar og afköst sýna að henni hefur verið í blóð borin rík list- hneigð. Hún mun hvorki hafa átt kost á að ganga í handavinnu- né listaskóla, frekar en margar aðrar ungar stúlkur af hennar kynslóð. En á æskuheimili sínu vandist hún tóvinnu og saumum og þótti handbragð hennar og vinna snemma bera af. Auk þess lærði hún, að eigin sögn, af því að skoða. Hjá mörgu listhneigðu fólki er sköpunarþörfin afar sterk og krefst að fá útrás. Þórdís hlýtur að hafa notið sín við hina fínu tóvinnu. Hún var afar afkastamikil, þó að mikil og seinleg vinna lægi í hverjum hlut sem hún vann. Hyrnur Þórdísar eru prjónaðar úr örfínu, tvinnuðu þelbandi, stundum 4 eingöngu í sauðarlitum með mörgum samkembdum litbrigðum. Mjög oft notaði hún þó jurtalitað band með sauðarlitum. Allt bandið vann Þórdís sjálf, tók ofan af, hærði, kembdi, spann, tvinnaði og litaði. En hún vann ekki bara þelband. Hún hefur verið snillingur að spinna dregið tog. Til eru eftir hana langsjöl prjónuð úr fínu, tvinnuðu togi, stundum öllu jurtalit- uðu. Þessi togsjöl Þórdísar eru hrein listaverk, áferðin silkiglj áandi, litir í góðu samræmi og handbragðið óað- finnanlegt. Útsaumur Þórdísar er ekki síðri en tó- vinna hennar. Á sýningunni „Með silf- urbjarta nál“, sem stendur yfir í Þjóð- minjasafni íslands (júlí-des. 1985) gefur að líta tvær af þrem útsaumuðum myndum eftir Þórdísi í eigu ríkisins. Á annarri myndinni sér inn í baðstofu á kvöldvöku. Húsbóndinn (?) les upp- hátt við ljós frá lýsislampa, annað heimilisfólk hefur hver sitt verk að vinna og ýmsir búshlutir eru á sínum stað. Á hinni myndinni er útsýni heim að reisulegum, íslenskum sveitabæ með

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.