Hugur og hönd - 01.06.1985, Blaðsíða 23

Hugur og hönd - 01.06.1985, Blaðsíða 23
FORN SPJALDVEFNADUR Isýningarsal í F’jóðminjasafni íslands liggur í glerborði dálítið safn ofinna borða og banda. Þar á meðal eru tveir afar forvitnilegir spjaldofnir borðar. Þeir eru um 6 cm breiðir og ríkulega munstraðir, hvor með sínu móti, en þó greinilega báðir ofnir með sömu aðferð. Þessir borðar komu á Þjóðminja- safnið árið 1930, festir við refilsaumað altarisklæði, en það hafði verið sent á Þjóðminjasafn Dana 1819. Altaris- klæðið mun upphaflega hafa verið í Höfðakirkju í Höfðahverfi og er til skemmtileg munnmælasaga um tilurð þess. Útsaumurinn sem er krossfesting- armynd, hefur verið gerður í blátt hörlé- reft, en það hefur slitnað. Heillegir hlutar myndarinnar voru þá festir á annan grunn, gulan. Um leið virðast hafa verið saumaðir á það spjaldofnu borðarnir tveir, samhliða við efri brún og einn að auki að neðan. í þeirri mynd fór altarisklæðið til Danmerkur og kom aftur til íslands rúmri öld síðar. Árið 1959 var það sent í viðgerð til Svíþjóð- ar. Þar var útsaumurinn festur á blátt léreft, en efri borðarnir ekki settir á aftur, þar sem talið var víst að þeir hefðu ekki verið upphaflega á klæðinu. Aftur á móti bentu ummerki til þess að neðsti borðinn hafi fylgt því frá fyrstu tíð og þar er hann enn. Altarisklæðið mun vera frá fyrri hluta 16. aldar, en borðarnir eru taldir frá 15. öld eða eldri. Hér verður engum getum að því leitt, hversu miklu eldri þeir gætu verið, aðeins bent á að það sem varð- veist hefur af háþróuðum spjaldvefnaði á Norðurlöndum er, eftir því sem ég kemst næst, varla talið yngra en frá 13. eða 14. öld, ef undan er skilinn tvö- faldur spjaldvefnaður sem ofinn hefur verið á Islandi fram til þessa dags. Lausu borðarnir tveir af Höfðaklæð- inu höfðu lengi vakið aðdáun mína og löngun til að komast að leyndardómum vefnaðarins. Vorið 1982 lét ég af því verða að skoða þá nánar. Ég fann lausn og óf sýnishorn sem óyggjandi höfðu sömu vefnaðargerð og Höfðaklæðis- borðarnir. Síðar kom í ljós að vefnaðar- gerðin næst með fleiri örlítið mismun- andi aðferðum, þ. e. mismunandi inn- drætti og snúningi spjaldanna. Borðinn sem enn er á altarisklæðinu er einnig mjög óvenjulegur. Hann er munstraður á miklu einfaldari hátt en hinir borðarnir, en á þó sitthvað sam- eiginlegt með þeim, eins og síðar kemur fram. Á Þjóðminjasafni hafa allir borðarnir sömu skráningartölu og altarisklæðið eða Þjms. 10886. Hér verða þeir að- greindir með I fyrir dýraborðann, II fyrir hnútaborðann og III fyrir neðsta borðann. Eins og áður er nefnt er sami vefn- aður á borðum I og II, munstrin eru þó ólík. Á borða I eru sjö hjartardýr, sem snúa höfðum saman tvö og tvö, milli þeirra eru stílfærð tré með tigullaga laufi. Á einum stað eru tveir háfættir og hálslangir fuglar í stað hjarta. Hirtirnir eru allir eins, sömuleiðis miðja trjá- stofnanna, að öðru leyti er ekki endur- tekning í munstrinu. í II eru ofnir margs konar hnútar eða bandfléttur, hakar og krókar, sjálfstæð munstur byggð inn í tigulform. Tiglarnir komast ekki fyrir á breidd bandsins, svo að úr verða sex- hyrningar. Þeir eru rúmlega 8Vi á öllu bandinu, hver með sínu munstri. Eina endurtekningin kemur fram í þeim hluta sem fyllir bilið milli tiglanna. Borði I er 6 cm breiður og 1 m að lengd, borði II er aðeins breiðari eða 6 Vi cm og 138 cm langur. Nær allt annað, sem segja má um þessa borða, er þeim sameiginlegt og verður því fjallað um þá í einu lagi hér á eftir. Uppistaðan er fremur fínn S-tvinnað- ur, hvítur (orðinn móleitur) togþráður og heldur fínni sauðsvartur, einnig S- tvinnaður. ívaf í grunni er hvítur S- tvinnaður togþráður, aðeins fínni en sá 1. Hluti af dýraborðanum (I). Þjms. 10886 b. Ljósmynd: Halldóra Ásgeirsdóttir. 2. Hluti af hnútaborðanum (11). Þjms. 10886 b. Ljósmynd: Halldóra Ásgeirs- dóttir. HUGUR OG HÖND 23

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.