Hugur og hönd - 01.06.1985, Blaðsíða 24
hvíti í uppistöðu. Munsturbandi í
nokkrum litum er brugðið í vefinn. Það
er fínt S-spunnið eingirni, togkennt,
notað þrefalt. Aðallitir eru fjórir, þeir
sömu í báðum borðunum, rauður,
dökkblár, milliblár og grænn. Á stöku
stað eru litbrigði blá og græn. Auk þess
er á nokkrum stöðum í báðum borðum
gróft, gult band notað sem munstur-
band, en virðist vera saumað í og má
vera að víðar séu saumaðar viðgerðir.
Engin merkjanleg regla er í litaskipan,
ef frá er talið að hirtirnir hafa rauðan
bakgrunn, allir nema einn, hann hefur
dökkbláan.
Áferðin eða vefnaðargerðin er
þannig að vissir munsturhlutar eru ein-
litir hvítir með einskeftubindingu (jafa-
bindingu) þar sem tveir og tveir sam-
hliða uppistöðuþræðir fylgjast að.
Sauðsvörtu þræðirnir liggja óbundnir
undir einskeftubindingunni. Aðrir
hlutar borðanna eru (hafa verið) að
mestu þaktir af brugðna munsturband-
inu. Þar sem það hefur slitnað má sjá
hvernig uppistöðuþræðirnir bindast.
Þar er venjuleg snúruáferð sem þýðir að
3. Altarisklæðið úr Höfðakirkju eins og
það var 1930. Þjrns. 10886 a. Ljósmynd:
Nationalmuseet, Kaupmannahöfn.
4. a og 4. b. Rétta og ranga á smáhluta af
dýraborða. Þjms. 10886 c. Ljósmynd:
Guðmundur Ingólfsson.
ofið hefur verið í einfalt skil í fer-
hyrndum spjöldum og þeim snúið í
hvert sinn um Vi úr hring. í snúru eða
gára frá hverju spjaldi koma þræðirnir í
röð, hvítur, sauðsvartur, hvítur, hvítur,
sauðsvartur, hvítur o. s. frv. Af því
mátti ráða að aðeins 3 þræðir væru í
hverju spjaldi. Milli tveggja hvítra
þráða (og hvítra skálína) myndast svo-
lítil dæld. Það gaf vísbendingu um hvar
auða gatið var í spjöldunum.
3.
Hver uppistöðuþráður liggur ofan á
tveim samliggjandi fyrirdrögum eins og
eðlilegt er í venjulegri snúruáferð. Með
því að láta litina færast til um eitt fyrir-
drag með hverju spjaldi mynda þeir
samhangandi skálínur til hægri og
vinstri. Munsturgerðin er öll byggð á
þessum skálínum. Dökku línurnar eru
mest áberandi, hverri slíkri fylgja tvær
hvítar, ein hvorum megin. Munstur-
bandið liggur yfir tvær samsíða hvítar
24
HUGUR OG HÖND