Hugur og hönd - 01.06.1985, Blaðsíða 15

Hugur og hönd - 01.06.1985, Blaðsíða 15
 pMSSSV: S ■ " í il® \ •#,! 'I • ■ i ■l'ISIll wm »»» ; fy Wm pÉÍ||| ■I . mik • »ti! . . ' • - *a i, ■ , » 1. DORAJUNG AKjarvalsstöðum eru árlega milli þrjátíu og fjörutíu listsýningar af ýmsum toga, innlendar og er- lendar. Þó að íslenskir listamenn sýni þar oft einir, er heldur óalgengt að þar gefi að líta yfirlitssýningar á verkum einstakra erlendra listamanna, þó nafn- togaðir séu. Enn óalgengara er, ef slíkur listamaður hefur haslað sér völl við vefstólinn til dæmis, í stað þess að taka sér pensil eða meitil í hönd. Þetta bar þó til tíðinda í vor og eini erlendi listamaðurinn, sem íslenskum listunn- endum gafst þannig færi á að kynnast all-ítarlega, sameinar það að vera kona og listhönnuður. Dora Jung var finnsk, fædd 1906 og dáin 1980. Nú er það svo, að finnskur listiðnaður og iðnhönnun er orðin heimsþekkt gæðavara. Margir hafa lagt þar hönd á plóginn og auðvelt er að tína fram þekkt nöfn í því sambandi, nöfn, sem hafa borið hróður Finnlands víða. Nafn Doru Jung er kannske ekki eins þekkt erlendis og sumra annarra, en í Finnlandi blandast engum hugur um, að hún var á þessu sviði einn helsti afl- vakinn og einn frjóasti glæðarinn. Því var það, að Listiðnaðarsafnið í Helsinki setti saman þessa sýningu til að lýsa ferli hinnar merku listakonu. Sýningin hefur farið víða í Finnlandi og er nú lögð af stað á flakk um heiminn og þannig var okkur Islendingum auðveldað að kynn- ast Doru Jung. Það er sýnt að Finnum er ljósara en okkur gildi þess að gera út sýningar til kynningar á sínum bestu listamönnum. Dora Jung hafði mikil áhrif á þróun vefnaðar í Finnlandi, og áhrifa hennar gætir langt út fyrir landamærin. Hún fæddist í Helsinki og ólst upp í menn- ingarlegu umhverfi. Faðir hennar var þekktur arkitekt svo og föðurbróðir. Árin 1929-32 nam hún við Lista- og handíðaskólann í Helsinki, textíldeild. Sama ár og hún brautskráðist úr skólan- um, stofnsetti hún sína eigin vefstofu, sem rekin var þangað til árið eftir að hún lést. Jafnframt starfaði hún sem hönnuður áratugum saman fyrir helstu fyrirtæki Finna í textíliðnaði, einkum risafyrirtækið Tampella. Það gerði text- ílframleiðslu þess fyrirtækis þekkta og eftirsótta um allan heim, og það gerði jafnframt Doru Jung fjárhagslega kleift að reka vefstofuna alla ævi. í hálfa öld var vefstofan við Högbergsgatan í Hels- inki miðstöð tilrauna í vefnaði og textíl- hönnun. Dora Jung bjó yfir óvenju djúpri og víðtækri þekkingu á þeim efnum, sem hún gerði listaverk sín úr. Hún blandaði iðulega saman ólíkum efnum og garni af djörfung og sjald- gæfum næmleik, og notagildið gat verið margvíslegt: veggteppi, gluggatjöld, altarisklæði, dúkar, áklæði fyrir hátal- ara hvað þá heldur meira. Hún bjó sér til nýja tækni við vefinn, og sömuleiðis var nýsköpun í því hvernig hún vann í og úr damaski. Á stríðsárunum, þegar erfitt var að fá efni og garn, notaði hún jafnvel pappír í textílverk sín. Lífsverki Doru Jung má skipta í þrjá hluta: listvefnað, kirkjulist og iðnhönn- un. Eins og margur góður listamaður- inn varð Dora Jung fyrir sterkustum áhrifum af náttúrunni, og þaðan sótti hún stöðugt næringu og innblástur. Þessi áhrif tókst henni að umskapa í svo máttugar sýnir, að listvefnaður hennar prýðir nú marga þá staði, sem Finnar eru stoltastir af í dag, - þar má nefna Finlandia-húsið í Helsinki, Mikael Ag- ricola-kirkjuna, ráðhús Helsinki- borgar, svo og erlend menningarsetur eins og Hássélby-höll við Stokkhólm. Þá hefur einu veggklæðanna á sýning- unni verið valinn staður í bústað finnska sendiherrans í Reykjavík. Dora Jung hannaði altarisklæði, hökla og dúka fyrir ótal kirkjur í Finn- landi og finnskar kirkjur víða um heim. 15 HUGUR OG HÖND

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.