Hugur og hönd - 01.06.1985, Blaðsíða 32
BÓKAFRÉTTIR
680 gerist ekki á hverjum degi, að út
koma íslenskar bækur um handa-
vinnu, handiðnað og skylt efni. Þó
það af og til. Til glöggvunar fyrir les-
endur Hugar og handar skal hér talið
upp það sem vitað er um að út hefur komið
um þetta efni síðastliðin fimm ár.
TVÍBANDAÐIR VETTLINGAR. Höf.
Kristín Jónsdóttir Schmidhauser. Heimilis-
iðnaðarfélag íslands 1981. 60 blaðsíður.
Verð kr. 200. í bókinni eru yfir 20 uppskriftir
að vettlingum gerðar eftir vettlingum í eigu
Heimilisiðnaðarfélagsins. Gömlu vettling-
arnir eru flestir prjónaðir úr fínu, hand-
spunnu bandi, en uppskriftirnar eru miðaðar
við vélspunnið, íslenskt band sem völ er á
nú.
VEFN AÐUR. Leiðbeiningar fyrir kennara í
fyrstu bekkjum grunnskóla. Höf. Sigríður
Halldórsdóttir. Námsgagnastofnun 1981, til-
raunaútgáfa. 12 blaðsíður. Uppseld.
í ritinu eru leiðbeiningar með teikningum
um vefnað ofinn í einföldum tækjum. Verk-
efnin eru miðuð við getu yngstu grunnskóla-
nemenda.
um. Sniðarkir fylgja, bæði grunnsnið og snið
af einföldum fatnaði í ýmsum stærðum.
Bókin ætti að henta byrjendum í fatasaum,
einnig þeim sem lengra eru komnir.
ÍSLENSKUR ÚTSAUMUR. Höf. Elsa E.
Guðjónsson. Veröld í samvinnu við Iceland
Review 1985. 96 blaðsíður. Verð kr. 1190.
Bókin er yfirgripsmikið verk um íslenskan
útsaum. Hún hefur að geyma yfirlit yfir hefð-
bundin íslensk útsaumsverk, kynningu á
gömlum íslenskum saumgerðum og úrval ís-
lenskra reitamunstra. Með hverri saumgerð
eru skýringarteikningar. Yfir 50 litmyndir
eru í bókinni af útsaumsverkum á Þjóð-
minjasafni íslands og 24 sjónablöð, upp-
drættir gerðir eftir íslenskum útsaumi eða
gömlum sjónabókum.
TRADITIONAL ICELANDIC EMBROI-
DERY. Höf. Elsa E. Guðjónsson. Iceland
Review 1985. 96 blaðsíður. Verð kr. 994.
Þetta er bókin íslenskur útsaumur í enskri út-
gáfu.
Hér skal einnig bent á annars konar útgáfu
um hliðstætt efni.
lokið við gerð myndbands um fjóra íslenska
þjóðbúninga, upphlut, peysuföt, skautbún-
ing og kyrtil. Auk margs konar fróðleiks sem
kynntur er í máli og myndum, er sýnt hvernig
skal klæða sig í og bera einstaka búnings-
hluta.
Námsgagnastofnun Laugavegi 166, annast
dreifingu bæði á litskyggnum og myndbandi.
A Norðurlöndum kemur út mikið af hvers
kyns handíðabókum og berast Heimilisiðn-
aðarfélaginu stundum kynningareintök.
PREGLE, BINDE OG LÆNKE. Höf. Ann
Möller Nielsen. Ann Möller Nielsen, Plan-
tagev. 47, 7000 Fredericia, Danmörk, 1983.
DAMASK AND OPPHÁMTA. Höf. Lille-
mor Johansson. LTs förlag, Stokkhólmi,
1984.
TEXTIL MÁRKNING. Höf. Eivor Fisher.
LTs förlag, Stokkhólmi, 1984.
VÁVA RUTIGT. Höf. Ann-Kristin
Hallgren. LTs förlag, Stokkhólmi, 1984.
VEFNAÐUR SEM VALGREIN. í 7.-9.
bekk grunnskóla. Höf. Elínbjört Jónsdóttir.
Námsgagnastofnun 1984. 24 blaðsíður. Verð
kr. 132.
Efnið erm. a. skriflegarleiðbeiningarmeð
skýringarteikningum um hvernig myndvefn-
aður og fleiri vefnaðargerðir eru ofnar í ein-
földum vefrömmum eða blindrömmum.
FÖT FYRIR ALLA. Höf. Sigrún Guð-
mundsdóttir. Mál og menning 1984. 140
blaðsíður. Verð kr. 900.
Þetta er bók um fatasaum. í henni eru
saumaleiðbeiningar með skýringarteikning-
TÓVINNA, litskyggnur og bæklingur.
Heimilisiðnaðarfélag íslands og Náms-
gagnastofnun 1984. Verð kr. 484.
Litskyggnurnar eru 20 og sýna spuna-
áhöld, kembingu og spuna á þeli og togi. í
lesmáli eru nöfn áhalda, fróðleikur um ull-
ina, ullarvinnuna o. fl., skrifað af Huldu Á.
Stefánsdóttur.
ÍSLENSKIR ÞJÓÐBÚNINGAR, mynd-
band. Samstarfsnefnd um íslenska þjóðbún-
inga 1985. Verð kr. 3955.
Á vegum Samstarfsnefndar um ísl. þjóð-
búninga hefur á haustdögum 1985 verið
BLOMMANDE BRODERIER. LTs
förlag. Stokkhólmi, 1985.
LAPPTÁCKEN. Höf. Anna Kristina Sund-
quist. LTsförlag, Stokkhólmi, 1985.
VÁVA KLÁDER. Höf. Britta Brones og
Marianne Olsen. LTs förlag, Stokkhólmi,
1985.
TRÆ OG TING AF TRÆ. Træbranchens
Oplysningsrád, Kaupmannahöfn, 1985.
HUGUR OG HÖND
Rit Heimilisiðnaðarfélags íslands
Peir sem vilja gerast áskrifendur eða óska eftir að fá eldri árganga (enn eru til 1966-1970 og 1976-1984)
sendi umsókn á eftirfarandi heimilisfang:
HUGUR OG HÖND
Laufásvegi 2
101 Reykjavík
Upplýsingar veittar í síma 17800.
HÖND
32
HUGUR OG HÖND