Hugur og hönd - 01.06.1985, Síða 13
LÍFIÐ OG
aö er að sjálfsögðu góðra gjalda
vert að halda í heiðri verkum
genginna kynslóða. En ekki má
vanmeta þá kvöð, sem á okkur hvílir
varðandi það, að kynna verk þeirra sem
standa í eldlínunni við skapandi starf í
samtíð okkar hverju sinni. Umræða og
LISTIN
deilur um listir eru alltaf lífsnauðsyn og
þurfa að fara fram sem víðast í þjóðfé-
laginu. Ekki einungis inni í skólum og
stofnunum. Hér á landi er einangrunin
að rofna smátt og smátt á þessu sviði
sem öðrum síðustu áratugi. Þátttaka
okkar í alþjóðlegum listsýningum eykst
stöðugt og verk okkar eru tekin til um-
fjöllunar af fagfólki í erlendum fjöl-
miðlum. Svo er undir hælinn lagt, hvort
nokkuð fréttist af því hér heima eða
ekki. Þó er öllum ljóst, hve fjölmiðlar
hafa mikla og ört vaxandi möguleika
varðandi fræðslu og kynningu í sjón-
menntum og skapandi starfi. Betur má
ef duga skal.
Ég ræddi við Guðnýju Magnúsdótt-
ur, leirlistamann, eina fagra morgun-
stund í ágúst s. 1. á heimili hennar á
Grundarstígnum. Þar var ekki komið
að tómum kofunum, því hún á einnig
auðvelt með að tjá sig í orðum. Eftir að
hafa blaðað í umsögnum um sýningar
hennar erlendis læddist að mér sá
grunur, að útlendingar, og þá sérstak-
lega Finnar, vissu meira um listferil
Guðnýjar Magnúsdóttur en landar
hennar. Finnska sjónvarpið sýndi t. d.
20 mín. heimildarkvikmynd um hana
og vinnu hennar í Finnlandi 22. febrúar
1985, sem nefndist Leirlistamaður. Sýn-
ingar hennar hafa fengið lofsamlega
dóma víða um lönd, en þegar hún hélt
einkasýningu í Listmunahúsinu í
Reykjavík í október 1984 hafði verkfall
lamað alla fjölmiðla.
Guðný Magnúsdóttir er fædd á ísa-
firði árið 1953. Hún stundaði nám í
Myndlista- og handíðaskóla íslands
1970-74 og lauk þá prófi úr keramik-
deild. Hlaut styrk frá finnska mennta-
málaráðuneytinu árið 1981 og hélt þá
til framhaldsnáms við Listiðnaðarhá-
skólann í Helsingfors. Starfaði síðan
sjálfstætt á verkstæði Pot Viapori í Sve-
aborg. Guðný er ein af stofnendum
Leirlistafélagsins hér á landi og núver-
andi formaður þess. Hefur tekið þátt í
starfi Langbrókar frá 1979. Félags-
bundin í finnsku listiðnaðarsam-
tökunum Ornamo frá 1983.
Verk eftir Guðnýju eru í eigu Lista-
safns Háskóla íslands, Borgarlista-
safnsins í Helsingfors og listiðnaðar-
safnsins þar. Guðný hélt einkasýningu í
Djúpinu í Reykjavík 1980. í Artisani í
Helsingfors 1982 og í Kluvin galleri í
Helsingfors 1984. Hún hefur tekið þátt
í fjölda samsýninga á þessum árum, t.
d. Vallauris Biennal 1975, auk fjögurra
samsýninga í Finnlandi. Um þessar
mundir stendur yfir í Listiðnaðarsafn-
inu í Kaupmannahöfn sýningin Danskir
listiðnaðarmenn og norrænir gestir. Þar
er Guðný gestur frá íslandi ásamt Ó-
feigi Björnssyni gullsmið.
Guðný Magnúsdóttir er gift Helga
Guðbergssyni lækni og eiga þau þrjú
börn á aldrinum 4 mánaða til 11 ára.
Kynningu á henni tel ég best lokið með
orðum hennar sjálfrar þar sem hún
segir: „Mér finnst mikilvægt að hlutir í
umhverfi okkar hafi listrænt gildi.
Nauðsynlegir hlutir og áhöld geta verið
HUGUR OG HÖND
13