Hugur og hönd - 01.06.1985, Blaðsíða 22

Hugur og hönd - 01.06.1985, Blaðsíða 22
menntun íslenskra smíðakennara og útskrifað flesta íslenska smíðakennara sem starfa í grunnskólum hérlendis. Starfssaga Gunnars og saga smíða- kennslu er samofin og óaðskiljanleg. Árið 1974 var Gunnar skipaður lektor við Kennaraháskóla íslands, varð hann þar með fyrstur handmennta- kennara til að hljóta þann heiður. Framhaldsmenntun og námsferðir Orlofsárið 1954—1955 dvaldi Gunnar við nám erlendis. Var m. a. á málm- smíðanámskeiði í Steneby í Dalslandi og í Kennaraháskólanum í Notodden á Þelamörk. Hann heimsótti einnig aðra skóla í Noregi, Svíþjóð og Danmörku. Árið 1972 fór hann aftur í námsferð í skóla á Norðurlöndum og Englandi. Nefndarstörf Gunnar hefur unnið í mörgum nefndum sem hafa markað stefnu á sviði list- og verkgreina í skólum landsins. Hér er aðeins minnst á þau störf sem Gunnar hefur unnið í tengslum við námskrárgerð fyrir grunn- skóla landsins, fyrst við námskrá í smíði árið 1946, síðan við endurskoðun þeirrar námskrár 1960. Þá var hann skipaður í Myndíðanefnd 1971-1973. Nefndin gerði úttekt á mynd- og hand- menntarkennslu í skólum iandsins og samdi síðan heildaráætlun um skipulag og innihald þessara greina í grunnskól- um. Að því loknu tók við samning þeirrar námskrár í mynd- og hand- mennt sem nú er í gildi. Leiðbeinandi eldri borgara Ekki hvarflaði það að Gunnari að setjast í helgan stein við verkalok í Kennaraháskóla íslands. Hann hafði lítillega unnið að því að leiðbcina eldri borgurum í Reykjavík við smíðar alls konar og munagerð. Nú helgaði hann störf sín þessu fólki og gerir það ennþá. Þar nýtur Gunnar sín engu síður en sem leiðbeinandi kennaraefna. Þarna er saman komið fólk alls staðar að af land- inu, fólk sem margt hefur mikla og fjöl- breytta verkþekkingu og hæfni. Það starf sem Gunnar vinnur með eldra fólki í Reykjavík er ómetanlegt. Þarna er alls konar íslenskur heimilisiðnaður stundaður, byggður á gömlum merg en þó stöðugt að þróast og breytast. Af þessu öllu má sjá að áhrifa Gunn- ars hefur lengi gætt hvað varðar smíða- kennslu, bæði hjá ungum sem öldnum. í allri sinni kennslu hefur Gunnar stöðugt miðlað öðrum af þekkingu sinni og reynslu. Hann hefur verið óþrjót- andi brunnur hugmynda sem hafa verið nemendum hans hvati í leit og við gerð nýrra viðfangsefna. Þótt hér hafi verið lögð sérstök áhersla á þann þátt smíða- kennslu Gunnars sem lýtur að varð- veislu menningararfs okkar í smíðum og handíðum hefur hann alla tíð fylgst vel með nýjungum á sviði hönnunar í tré og málma. Þannig hefur hann sameinað í kennslu sinni áhrif hönnunar og verk- lags genginna kynslóða og þeirra sem best hafa gert á þessum sviðum á undanförnum árum. Það er vissulega ærin ástæða til að vekja athygli á mikil- vægu og farsælu lífsstarfi Gunnars Klængssonar nú á 50 ára starfsafmæli hans sem kennara. Þórir Sigurðsson 3. f vinnustofu aldraðra á Norðurbrún í Reykjavík. Gunnar Klængsson leiðbein- ir Kristni Sveinssyni. 4. Pappírshnífur gerður af nemanda Gunnars. Ljósmyndir: Karl Jeppesen. 4. 22 HUGUR OG HÖND

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.