Hugur og hönd - 01.06.1985, Síða 50
FELAGSFRETTIR
Iáratugi hefur Heimilisiðnaðarfélag
íslands verið aðili að samtökum
norrænna heimilisiðnaðarfélaga.
Norrænt heimilisiðnaðarþing, það 19. í
röðinni, verður haldið í Kuopio í Finn-
landi 1.-3. júlí næsta sumar. Þessi þing
eru haldin þriðja hvert ár, en dagskrá
þeirra undirbúin á tveimur stjórnar-
fundum, sem haldnir eru milli þinga.
Það er orðinn fastur liður, að hvert land
setur upp sýningu á sínum heimilisiðn-
aði. Er óhætt að segja, að sýningarnar
eru sá hluti þinghaldsins, sem flestir
sýna mestan áhuga. Aðalmál þingsins
verður: Vöruþróun í heimilisiðnaði, og
verða sýningarnar einnig byggðar upp
um þetta efni. Á þinginu verða starf-
andi 6 umræðuhópar með ólík efni, og
geta þátttakendur valið sér hóp til að
starfa í, hver eftir sínu áhugasviði.
Hvert þátttökuland verður í forsvari
fyrir einum hóp og sér einnig um fram-
söguerindi um viðkomandi efni. Um-
ræðuefni og skipting þeirra milli landa
verða þessi:
Danmörk: Tímarit.
Finnland: Handiðn.
Færeyjar: Hönnun.
ísland: Kennsla.
Noregur: Ráðunautar.
Svíþj óð: Sala og fyrirmyndar starfsemi.
Á heimilisiðnaðarþinginu í Dan-
mörku 1983 kom fram mikill áhugi á
auknu samstarfi milli þinga. Ýmsar til-
lögur komu fram m. a. að halda heimil-
isiðnaðarviku í löndunum til skiptis.
Sænska sambandið reið á vaðið og bauð
til heimilisiðnaðarmóts í Sáterglántan,
skóla samtakanna, sumarið 1984. Danir
komu næstir og voru með sitt mót í
Kerteminde nú í sumar. Norska sam-
bandið býður næsta sumar en nánari
upplýsingar um stað og stund liggja
ekki fyrir ennþá. Á þessum mótum er
boðið upp á fjölbreytta dagskrá og
mikið úrval af námskeiðum.
Fyrsti almenni félagsfundurinn á
þessum vetri var 8. október í Hafnar-
stræti 3, þar sem Gerður Hjörleifsdóttir
verslunarstjóri kynnti starfsemi versl-
unarinnar og til sýnis voru munir úr
safni félagsins.
Jólafundur var 23. nóvember, að
Hverfisgötu 105. Dagskrá: Jólahug-
vekja og jólaföndur.
Eftir áramót verður fundur á Lauf-
ásvegi 2, þar sem Heimilisiðnaðarskól-
inn verður kynntur, og síðar er ráðgerð
ferð austur að Skógum til að skoða
safnið þar, sennilega í apríl.
Félagsmenn í Heimilisiðnaðarfélagi
íslands eru um 690. Árgjald 1985 er kr.
400 og er í því innifalið ársrit Heimilis-
iðnaðarfélags íslands, Hugur og hönd,
og einnig fá félagsmenn 10% afslátt af
öllum vörum í verslun félagsins, ís-
lenskum heimilisiðnaði.
Heimilisiðnaðarfélag íslands hefur
opnað skrifstofu á Laufásvegi 2,1. hæð.
Síminn er 15500. Skrifstofan er opin á
þriðjudögum frá kl. 16.30-18.30. Þar
liggja frammi tímarit frá norrænu heim-
ilisiðnaðarfélögunum og ýmiss konar
annað fróðlegt lesefni. Það er von
stjórnarinnar að sem flestir gefi sér tíma
til að líta inn og ræða félagsstarfið.
Jakobína Guðmundsdóttir,
formaður
STJÓRN
HEIMILISIÐNAÐARFÉLAGS
ÍSLANDS, FASTANEFNDIR
OG AÐRAR NEFNDIR
Stjórn:
Jakobína Guðmundsdóttir, formaður
Ragna Þórhallsdóttir, varaformaður
Guðbjörg Hannesdóttir, ritari
Kristín Jónasdóttir, gjaldkeri
Ingibjörg Sigurðardóttir
Brynja D. Runólfsdóttir
Heiður Vigfúsdóttir
Varastjórn:
Margrét Kjærnested
Stefán Örn Stefánsson
Matthías Andrésson
Fastanefndir félagsins eru 4 og skipa
hverja þeirra 5 menn:
Verslunarstjórn:
Elín Guðmannsdóttir, formaður
Auður Halldórsdóttir
Jónína Guðnadóttir
Kristjana Sigurðardóttir
Ólöf Pétursdóttir
Verslunarstjóri:
Gerður Hjörleifsdóttir.
Stjórn verslunarinnar er í höndum
verslunarstjórnar og verslunarstjóra.
Skólanefnd:
Elínbjört Jónsdóttir, formaður
Hildur Sigurðardóttir
Ingibjörg Þorvaldsdóttir
Elsa E. Guðjónsson
Þórir Sigurðsson
Skólastjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Stjórn skólans er í höndum skóla-
nefndar og skólastjóra.
Útgáfunefnd:
Sigríður Halldórsdóttir, formaður
Fríða Björnsdóttir
Hulda Jósefsdóttir
Rúna Gísladóttir
Þórir Sigurðsson
Útgáfunefnd sér um efnisöflun og út-
gáfu á ársriti félagsins Hugur og hönd.
Sýningar- og frœðslunefnd:
Hildur Sigurðardóttir, formaður
Ásta Denise Bernhöft
Guðrún Jónsdóttir
Sigrún Axelsdóttir
Sigríður Gísladóttir
Fræðslunefnd undirbýr og boðar til al-
mennra félagsfunda og fræðsluferða.
Reglugerðir fyrir fastanefndir eru í
endurskoðun.
Sýningarnefnd fyrir þingið í Kuopio
1986:
Elínbjört Jónsdóttir, formaður
Hildur Sigurðardóttir
Kristín Jónsdóttir Schmidhauser
Ragna Þórhallsdóttir
Hússtjórn fyrir Laufásveg 2:
Sigríður Halldórsdóttir, formaður
Sigurður Einarsson
Stefán Örn Stefánsson
Safnnefnd:
Kristín Jónasdóttir, formaður
Ingibjörg Sigurðardóttir
Kristín Tómasdóttir
Sigríður Halldórsdóttir
ÞÆGILEGUSTU
HANDYERKFÆRIN
Verslunin Brynja
Laugavegi 29
Sími34320
50
HUGUR OG HÖND