Ljósmæðrablaðið - dec. 2019, Side 26
26 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - DESEMBER 2019
R I T R Ý N D F R Æ Ð I G R E I N FYRIRSPURNIR: Inga Vala Jónsdóttir
ÚTDRÁTTUR
Bakgrunnur: Vitað er að kynferðislegt ofbeldi í æsku hefur víðtækar
og langvarandi afleiðingar fyrir heilsufar kvenna, en þörf er á aukinni
þekkingu og dýpri skilningi á reynslu þolenda af barneignarferli,
heilsufari og móðurhlutverki.
Tilgangur: Að auka þekkingu og dýpka skilning á reynslu mæðra
sem eru þolendur kynferðislegs ofbeldis í æsku og hvaða áhrif það getur
haft á barneignarferli, heilsufar og móðurhlutverk.
Aðferð: Eigindleg fyrirbærafræðileg aðferð. Tekin voru eitt til tvö
djúpviðtöl við níu mæður á þrítugs- til sextugsaldri, þrjár frumbyrjur og
sex fjölbyrjur, samtals 16 viðtöl. Allar höfðu orðið fyrir kynferðislegu
ofbeldi fyrir átján ára aldur. Viðtölin voru þemagreind.
Niðurstöður: Allar mæðurnar höfðu upplifað erfiðleika og áföll í
barneignarferlinu, ýmist á meðgöngu og/eða í fæðingu sem og í sæng-
urlegu og á fyrstu mánuðum barnsins. Flestar höfðu haft mörg frávik
frá eðlilegu barneignarferli. Meirihlutinn hafði fundið fyrir áhrifum
ofbeldis á heilsufar sitt og þurft mikla þjónustu frá heilbrigðiskerfinu.
Yfirþema rannsóknarinnar er: „Það vantar meiri skilning á manni“
sem lýtur að því að reynsla þátttakenda var að enn vanti skilning, bæði
almennings og heilbrigðisstarfsfólks, á langvarandi áhrifum kynferð-
islegs ofbeldis í æsku á mæður og reynslu þeirra af barneignarferl-
inu, heilsufari og móðurhlutverki. Þrjú meginþemu voru greind: 1)
„Í fæðingunni er maður mest berskjaldaður“ sem lýtur að áhrifum á
meðgöngu og fæðingu, á tilfinningar, reynslu af fæðingarþjónustu,
sérstaklega þjónustu ljósmæðra. 2) „Það er alls konar að mér“ sem
lýtur að líkamlegum og sálrænum áhrifum á heilsufar, almennt og á
meðgöngu. 3) „Þroski litaður sársauka“ sem lýtur að áhrifum á móður-
hlutverkið, áskoranir, líðan og þörf fyrir stuðning og úrvinnslu.
Ályktun: Auka þarf þekkingu ljósmæðra, annars heilbrigðisstarfs-
fólks og almennings á málefninu til að dýpka skilning á því þannig að
hægt sé að bæta þjónustu ljósmæðra, heilbrigðiskerfisins og reynslu
mæðra af barneignarferli og móðurhlutverki.
Lykilhugtök: Kynferðislegt ofbeldi í æsku, barneignarferli, móður-
hlutverk, ljósmóðir, fyrirbærafræði, viðtöl.
ABSTRACT
Background: It is known that childhood sexual abuse (CSA) has
longlasting and profound consequences for womenʼs lives but increased
knowledge and deeper understanding of survivor‘s experiences of the
perinatal period, health during pregnancy and motherhood is needed.
Purpose of the study is to increase knowledge and deepen
understanding of CSA surviors‘ experiences of the perinatal period,
health during pregnancy and motherhood.
Method: A phenomenological study with nine mothers, three prim-
iparas and six multiparas, aged around 20-60, all CSA survivors, were
interviewed in-depth once or twice, sixteen interviews in total. The
interviews were taped, word-processed verbatim and thematically
analyzed.
Results: All the mothers had experienced difficulties and trauma
during pregnancy and/or during birth, postpartum or during their
childrenʼs early life. Most of them reported many deviations
from a normal perinatal period. The majority had experienced
health consequences on their health and used healthcare services
frequently. The overarching theme of the results is: „You need more
understanding“. This indicates a lack of awareness and knowledge
„ÞAÐ VANTAR MEIRI SKILNING Á MANNI“:
Reynsla þolenda kynferðislegs ofbeldis í æsku af barn-
eignarferli, heilsufari og móðurhlutverki
Dr. Sigrún Sigurðardóttir
hjúkrunarfræðingur,
lektor við Háskólann
á Akureyri
Dr. Sigríður Halldórsdóttir
hjúkrunarfræðingur,
prófessor við Háskólann
á Akureyri
Inga Vala Jónsdóttir,
ljósmóðir MS á Sjúkrahúsinu
Akureyri og Heilbrigðisstofnun
Norðurlands
Dr. Sigríður Sía Jónsdóttir
ljósmóðir, lektor við
Háskólann á Akureyri
„YOU NEED MORE UNDERSTANDING“: CSA SURVIORS‘ EXPERIENCES OF
THE PERINATAL PERIOD, HEALTH DURING PREGNANCY AND MOTHERHOOD