Bændablaðið - 24.08.2017, Side 7

Bændablaðið - 24.08.2017, Side 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2017 MÆLT AF MUNNI FRAM Í síðasta vísnaþætti birtust vísur frá sextugsafmæli Jóhannesar á Gunnarsstöðum. Fari allt fram sem horfir, verður þeirri vísnasmíð varla lokið fyrr en um þriðju göngur í Þistilfirði. Því verður ögn stiklað á helstu efnistökum sem Birgir Sveinbjörnsson lagði fyrir hagyrðingahópinn. Friðrik Steingrímsson var spurður um ástand afmælisbarnsins: Eins og maður sérhver sér sitthvað fór úr böndum. Elli kerling um hann fer ekki mjúkum höndum. Lengi hef ég þrjótinn þekkt svo þrælvel merkin kenni. Ég held´ann verði leiðinlegt og lundillt gamalmenni. Hjálmar læknir Freysteinsson var aftur á móti frekar bjartsýnn á stöðu Jóa: Þessi gáta létt er leyst, lausnin á þann veg að hann hefur ekkert breyst -ekki frekar en ég. Von um bata er veruleg þó varla fjölgi hárunum. Farið geta fleiri en ég fríkkandi með árunum. Björn Ingólfsson á Grenivík gaf svofellda stöðuskýrslu: Ég ímynda mér að sem unglingur álitlegri hann væri að sjá, svona helvíti grár og hrukkóttur hefur‘ann naumast verið þá. Ágúst í Sauðanesi, sveitungi Jóhannesar, telur næsta merkilegt hvað Jóhannes spjarast miðað við lífernið: Á langri ævi drakk oft dramm en dálítið er skrýtið, að mörgu leyti fer‘onum fram, -en hann fríkkar lítið. Björn Ingólfsson á Grenivík er ekki í vafa um framtíð Jóhannesar. Öldrunarheimilið Naust á Þórshöfn verði hans framtíðarlending: Á Naust þegar hann verður síðast sendur þarf sjálfsagt að hafa gát á honum. Hann verður alltaf aðeins kenndur að atast í gömlu kerlingonum. Steingrímur, bróðir Jóa, telur framtíðina bjarta, að uppfylltum nokkrum skilyrðum: Endist drelli dugurinn dags á svelli tíða, og haldi velli hugurinn hann mun ellin prýða. Birgir spyr næst hvar skáldin telji að Jóhannesi líði best. Gústi í Sauðanesi velkist ekki í vafa: Drengnum þykir dauflegast að dæsa og pústa, en honum þykir herlegast að hitta Gústa. Hjálmar telur að Jóhannesi hljóti að líða einna best á hagyrðingakvöldum eins og þessu: Á honum það ekki sést en öruggt mál við höldum, að honum líða hljóti best á hagyrðingakvöldum. Friðrik sér sælustundirnar svona: Ég giska á að girnist flest sá gamli prammi, en flatmaga þó finnist best í Fjóluhvammi. Hér er Fjóla, eiginkona Jóhannesar, nokk- uð dregin inn í yrkisefnið. Pétur er ekki í vafa um hvar Jói nýtur sín best: Dvínar þar lúi og doði í sál, það dregur ei ský fyrir sólu, sá uppáhaldsstaður er einkamál afmælisbarnsins og Fjólu. 184 Umsjón: Árni Geirhjörtur Jónsson kotabyggð1@gmail.com LÍF&STARF Svanhildur Jónsdóttir, sauðfjárbóndi í Krákuvör í Flatey: Þarf að flytja fé til slátrunar alla leið á Sauðárkrók – Ekkert sláturhús í skaplegri fjarlægð en aðaltekjur búsins eru samt af æðardúninum Svanhildur Jónsdóttir er önnur tveggja sauðfjárbænda sem eftir eru í Flatey á Breiðafirði. Hún hefur verið viðriðin búskap í eyjunni frá því hún flutti þangað fyrir um hálfri öld, en líst illa á stöðu greinarinnar í dag. Svanhildur býr ásamt eiginmanni sínum, Magnúsi Arnari Jónssyni, á bænum Krákuvör, sem er ríkisjörð um miðbik eyjunnar. Hún hefur yfirumsjón með búskapnum, en eigin- maðurinn hefur séð um að ferja ferðafólk og farangur þeirra til og frá bryggju á dráttarvél. Tvær bújarðir eru á eyjunni, en að öðru leyti er eignarhaldið í höndum fjölmargra einstaklinga auk þess sem hreppurinn á nokkurn hluta. Í raun tilheyra um 40 eyjar og hólmar Flatey. Með nokkrar skjátur Svanhildur segir að þótt hún sé „með nokkrar skjátur“ þá skipti sú sauðfjárrækt ekki sköpum fyrir búið. „Ég er bara með um 50 hausa, enda ekki hægt að vera hér með margt fé. Lengst af minni búskapartíð hér í Flatey var sauðfé flutt í land á sumrin. Því fylgdi göngur á haustin sem var mjög gaman. Fólkinu fór síðan fækkandi og fénu líka og enginn mannskapur var lengur til að flytja féð í land. Nú er um helmingur fjárins hér í eyjunni en svo erum við með beit fyrir fé í Hergilsey, en þangað er ekki langt að flytja féð. Aðaltekjurnar í búskapnum núna eru þó af æðardúninum.“ Dúntekja í mörgum eyjum Hún segir æðarrækt og dúntekju í eyjunum betur setta en víða á fastalandinu vegna þess að æðarfuglinn eigi sér þar færri óvini. „Hér hefur aldrei verið minkur og hefur aldrei verið í vestureyjum þó uppáfallandi hlaupadýr hafi komið í einhverjar eyjarnar. Hér er mikið af æðarfugli og varpið í vor gekk þokkalega. Var það í góðu meðallagi. Þá slapp til varðandi bleytu.“ Margar eyjar fylgja Flatey eins og títt hefur verið með gamlar eyjajarðir og dúnninn í þeim er að sjálfsögðu nýttur. „Það er alltaf talað um heimaeyjuna og svo löndin (heimalönd) sem eru margs konar hólmar og eyjar sem gengt er í á fjöru. Það er alls staðar æðarfugl, en misjafnlega mikið af honum á hverjum stað.“ Svanhildur segir stöðuna í æðar- ræktinni hafa verið ágæta undanfarin ár. Það hafi allavega verið hægt að selja dúninn, sem ekki gekk alltaf vel fyrir nokkrum árum. Hún segir að eflaust muni hátt gengi krónunnar þó eitthvað koma niður á afkomu greinarinnar á þessu ári. Döpur staða í sauðfjárrækt Hvað varðar sauðfjárræktina, þá segir Svanhildur stöðuna dapra, ekki síst hvað varðar slátrun. Sprettan í sumar hafi þó verið með ágætum svo ekki þurfi að kvarta yfir því. „Meðan féð var flutt á land á sumrin var tekið undan ánum í landi og farið strax með lömbin í sláturhús. Við fórum lengst af með lömbin í Króksfjarðarnes. Það var ekki svo mikið mál. Nú fara mín lömb alla leið á Sauðárkrók. Þau eru flutt í land með Breiðafjarðarferjunni Baldri og þaðan með bíl í sláturhúsið á Sauðárkróki. Það er ferlegt að ekki skuli lengur vera eitt einasta sláturhús á Vestfjörðum eða Vesturlandi,“ segir Svanhildur. /HKr. Gamla bátalagið í Þýskuvör og Stórigarður, sem Björn Sigurðsson kaupmaður lét hlaða til skjóls fyrir bátana um aldamótin 1900. Við voginn stendur og þorpið í Flatey, en í baksýn má sjá Höfnina sem er skeifulaga klettaeyja sem var aðalskipalægið við Flatey á fyrri tíð. Myndir / HKr. Svanhildur Jónsdóttir í glampandi sól og logni á veröndinni í Krákuvör. Hún segir gott að vera í eyjunni þegar þannig viðri, en lítið sé hins vegar um skjól á eyjunni þegar blási eins og algengt er. Magnús Arnar Jónsson, eiginmaður Svanhildar, sér um að ferja ferðatöskur og annan varning til og frá skipshlið á dráttarvélinni, en spölkorn er frá bryggju í gamla þorpið í Flatey. Enginn amast við kindunum sem liggja makindalega og jórtra í skugganum undir húsvegg.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.