Bændablaðið - 24.08.2017, Síða 14

Bændablaðið - 24.08.2017, Síða 14
14 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2017 Myndlistarsýningin Hverfing í Verksmiðjunni á Hjalteyri Hverfing / Shapeshifting er samsýning fjórtán listamanna, sjö íslenskra og sjö bandarískra, sem opnuð var í Verksmiðjunni á Hjalteyri við Eyjafjörð 3. ágúst og stendur til 3. september. Erlendu lista- mennirnir hafa dvalið um tíma hérlendis og unnið verk sín sem flest eru unnin sérstaklega inn í hið hráa og spennandi rými verksmiðjunnar, og hið sama gildir um verk íslensku listamannanna. Hér er um að ræða einstakt tækifæri til að sjá verk eftir heimsþekkta listamenn. Verksmiðjan, sem var reist af miklum stórhug á síðustu öld, myndar svipmikinn bakgrunn við stórar og kraftmiklar innsetningar listamannanna, en Verksmiðjan á Hjalteyri var nýlega tilnefnd sem einn af 10 áhugaverðustu sýningarstöðum landsins. Staðsetning sýningarinnar við Norður-Íshafið er táknræn fyrir inntak sýningarinnar; ógnvænlegar breytingar vegna hnattrænnar hlýnunar – áhrif og ófyrirsjáanlegar afleiðingar þess á samfélög, umhverfi og náttúru Sýningarstjóri er Pari Stave, listfræðingur og deildarstjóri samtímalistar í Metropolitan- listasafninu í New York. Listamennirnir eru Alex Czetwertynski, Anna Eyjólfsdóttir, Deborah Butterfield, Ragnhildur Stefánsdóttir, Rúrí, Þórdís Alda Sigurðardóttir, Gústaf Geir Bollason, Mary Ellen Croteau, John Buck, Kristín Reynisdóttir, Hunter Buck, Emma Ulen Klees, Jessica Stockholder og Pétur Thomsen. Sýningin mun standa til 3. september og opið er frá kl. 14.00 –17.00 þriðjudaga til sunnudaga. FRÉTTIR Stefán Bragi Bjarnason, framkvæmdastjóri VB Landbúnaðar, sendi okkur þessa mynd sem tekin var innst í Veiðiley- Mynd / SBB Kelfort leikur ágústmánaðar! DEILA - LÆKA OG KVITTA OG ÞÚ ERT KOMINN Í POTTINN Vinningur ágústmánaðar er 20 W Led vinnuljós með Li-lion 7,4V batteríi. Vörunúmer 1525139 hjá www.kelfort.is www.kelfort.is S: 7747090 eggert@brix.is LOKSINS Á ÍSLANDI HÁGÆÐA BYGGINGAVÖRUR Myndir / HKr. Reykjavík Foods framleiðir hægeldaðan lax í dós – Unnið er að vöruþróun á niðursoðnu lambakjöti Reykjavík Foods er nýlegt fyrirtæki í matvælaframleiðslu á Íslandi, upprunnið í Sjávarklasanum, og framleiðir hægeldaðan lax í dós – í fjórum bragðtegundum. Vörurnar er framleiddar á Íslandi úr íslensku hráefni, en um eldislax frá Arnarlaxi á Vestfjörðum er að ræða. Þórdís Wathne er framkvæmda- stjóri fyrirtækisins. „Ég var í Sjávarklasanum fyrir rúmu ári síðan þegar þessi hugmynd kom upp. Sjávarklasinn bað mig um að ganga til liðs við sig og stofna Reykjavík Foods. Markmiðið var að auka verð- mætasköpun í sjávarútvegi og búa til flottar íslenskar vörur í stað þess að selja bara út hrávöru eins og við Íslendingar gerum alltof mikið af, á kostnað þess fyrrnefnda.“ Gæði við hæga eldun „Við setjum ferskan lax í dósina nýlega eftir veiðar, söltum með salti frá Saltverki og einungis náttúruleg bragðefni eins og ferska basilíku, hvítlauk og trufflur,“ segir Þórdís um framleiðsluferlið. „Dósinni er lokað og þannig fer hún í suðu, við vægt hitastig. Þar sem hráefnið er soðið í lokaðri dós verða engar örverur á kreiki og þannig næst þetta langa geymsluþol. Þetta er í raun með heppi- legri geymsluaðferðum matvæla, sér- staklega þar sem svona ferskt hráefni fer í dósina og þá verða gæðin fram- úrskarandi. Við gerðum mælingar á næringarinnihaldi og þar kom í ljós að varan tapar ekki næringarinnihaldi miðað við hefðbundna eldun og í raun verður hún sérstaklega bragðgóð þar sem hún eldast í lokuðu ferli í eigin safa sem kemur af laxinum. Engum aukaefnum er bætt við.“ Að sögn Þórdísar fást vörurnar í verslunum Hagkaups, 10-11, Nettó um allt land, Samkaup um allt land, Borðinu og Fríhöfninni svo dæmi séu tekin. „Við erum að fara inn í mun fleiri verslanir á komandi vikum. Hvað erlenda markaðinn varðar erum við helst að skoða Mið-Evrópu en þar eru mjög stórir markaðir fyrir hágæða sjávarafurðir í dós. Við höfum þegar fengið pantanir frá keðjum þar ytra en viljum vanda okkur vel í þeirri útrás og koma okkur vel fyrir hér á landi til að byrja með. „Við Þór Sigfússon, stofnandi Sjávarklasans, stóðum saman að stofnun félagsins ásamt hluthöfum. Við erum því í eigendahópi ásamt Marinvest og Jóni Osmann. Það er mikilvægt að hafa áhugasama hluthafa með í teyminu sem gera vinnuna auðveldari. Tinna Hrund Birgisdóttir kom svo inn á fyrstu skrefum, en hún er markaðsstjóri og hefur mikla reynslu í útflutningi á laxi. Hún hefur þegar farið í ferðir til útlanda, kynnt vöruna og fengið viðbrögð við henni sem hafa verið langt framar vonum. Helstu viðbrögðin sem hún fær eru varðandi gæði vörunnar. Niðursoðnar sjávarafurðir eru mjög algengar, meðal annars í Mið-Evrópu, en þar er afar fátítt að varan fari fersk í dósina líkt og við gerum. Þar fer hún hins vegar frosin í dósina og það er í raun allt önnur vara.“ Niðursoðið lambakjöt í vöruþróun Þórdís segir að þau einbeiti sér nú fyrst og fremst að laxinum, en þau séu þó með fleiri járn í eldinum og séu með fleiri vörur í þróun. „Það liggja gríðarleg tækifæri í því að leysa vandann með offramboð á lambakjöti. Það væri hægt að vinna á fjallinu sem nú liggur í frosti og eftir suðu er geymsluþolið 4 ár í dósunum. Við erum komin mjög langt í vöruþróun og gæði vörunnar er langt umfram væntingar – verulega bragðgóð. Það vantar aðeins upp á fjárhagshliðina til að taka það alla leið. Með smá styrk og samstarfi við þá sem hafa að gæta hagsmuna sauðfjárbænda eru góð tækifæri í útflutningi á lambi í dós. Við erum þegar búin að vinna hluta af markaðsvinnunni og erum vakandi yfir áhugasömum aðilum sem sjá hagsmuni í að aðstoða með að taka verkefnið alla leið.“ Kostirnir við niðursoðinn lax Að sögn Þórdísar er lax í dós að ýmsu leyti fýsilegri vara en sá ferski. „Hann er afar hentugur í ferðalagið út á land, til að grípa í til dæmis með sér í fjall- göngu. Þá er hann sérlega heppilegur matarminjagripur, þar sem geymslu- þolið er svo mikið, til að taka með heim, annaðhvort til að gefa í gjafir eða til að endurvekja minningar frá landinu. Svo er það þannig, þótt ótrú- legt megi virðast, að sumum finnst hann einfaldlega betri en ferskur fisk- ur. Við hvetjum þó alla ferðamenn til að gæða sér á fiski í öllum útfærsl- um. Hér er framboðið og ferskleikinn einstakur sem ferðamenn ættu ekki að láta framhjá sér fara.“ Ein af vörum Reykjavík Foods er bragðbætt með ítölskum trufflum. Í öllum okkar vörum er íslenskt grunnhráefni en í einstaka tilfellum er hráefni erlent líka ef það er ekki framleitt á Íslandi. Trufflurnar eru sérstaklega vinsælar og voru í upphafi hugsaðar fyrir ítalskan markað en svo sló varan í gegn hér á landi.“ Þórdís segir að það sé niðurstaða af ítarlegum bragðprófunum að þess- ar fjórar bragðtegundir hafi komið best út; hreinn lax, reyktur lax, lax með hvítlauk og basilíku og lax með trufflum. „Við vorum með marga smakkhópa og þetta var niðurstaðan, þó svo að við séum með fleiri upp- skriftir uppi í erminni. Hvað íslenska eldislaxinn varðar hefur hann einstök bragðgæði og einnig sérstakur þegar kemur að öðrum gæðum. Það er ekki laxalús í honum eins og víða annars staðar. Við það að vaxa í köldum sjó verður kjötið þéttara, stinnara og rík- ara af Omega-3 fitusýrum.“ /smh - • FASTEIGNASALA NORÐURLANDS • Sala - verðmat - þjónusta • GUÐMUNDUR BJÖRNSSON löggiltur fasteigna- og skipasali662 4704 fastnord.isgummi@fastnord.is

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.