Bændablaðið - 24.08.2017, Qupperneq 14
14 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2017
Myndlistarsýningin Hverfing
í Verksmiðjunni á Hjalteyri
Hverfing / Shapeshifting er
samsýning fjórtán listamanna,
sjö íslenskra og sjö bandarískra,
sem opnuð var í Verksmiðjunni
á Hjalteyri við Eyjafjörð 3.
ágúst og stendur til 3.
september.
Erlendu lista-
mennirnir hafa dvalið
um tíma hérlendis
og unnið verk sín
sem flest eru unnin
sérstaklega inn í hið
hráa og spennandi rými
verksmiðjunnar, og hið
sama gildir um verk
íslensku listamannanna.
Hér er um að ræða
einstakt tækifæri til að sjá verk eftir
heimsþekkta listamenn.
Verksmiðjan, sem var reist af
miklum stórhug á síðustu öld,
myndar svipmikinn bakgrunn við
stórar og kraftmiklar innsetningar
listamannanna, en Verksmiðjan
á Hjalteyri var nýlega tilnefnd
sem einn af 10 áhugaverðustu
sýningarstöðum landsins.
Staðsetning sýningarinnar við
Norður-Íshafið er táknræn fyrir
inntak sýningarinnar; ógnvænlegar
breytingar vegna hnattrænnar
hlýnunar – áhrif og ófyrirsjáanlegar
afleiðingar þess á samfélög,
umhverfi og náttúru
Sýningarstjóri er Pari Stave,
listfræðingur og deildarstjóri
samtímalistar í Metropolitan-
listasafninu í New York.
Listamennirnir eru Alex
Czetwertynski, Anna Eyjólfsdóttir,
Deborah Butterfield, Ragnhildur
Stefánsdóttir, Rúrí, Þórdís Alda
Sigurðardóttir, Gústaf Geir
Bollason, Mary Ellen Croteau, John
Buck, Kristín Reynisdóttir, Hunter
Buck, Emma Ulen Klees, Jessica
Stockholder og Pétur Thomsen.
Sýningin mun standa til 3.
september og opið er frá kl. 14.00
–17.00 þriðjudaga til sunnudaga.
FRÉTTIR
Stefán Bragi Bjarnason, framkvæmdastjóri VB Landbúnaðar, sendi okkur þessa mynd sem tekin var innst í Veiðiley-
Mynd / SBB
Kelfort leikur ágústmánaðar!
DEILA - LÆKA OG KVITTA OG ÞÚ ERT KOMINN Í POTTINN
Vinningur ágústmánaðar
er 20 W Led vinnuljós
með Li-lion 7,4V batteríi.
Vörunúmer 1525139 hjá
www.kelfort.is
www.kelfort.is
S: 7747090
eggert@brix.is
LOKSINS Á ÍSLANDI
HÁGÆÐA BYGGINGAVÖRUR
Myndir / HKr.
Reykjavík Foods framleiðir
hægeldaðan lax í dós
– Unnið er að vöruþróun á niðursoðnu lambakjöti
Reykjavík Foods er nýlegt fyrirtæki
í matvælaframleiðslu á Íslandi,
upprunnið í Sjávarklasanum,
og framleiðir hægeldaðan lax í
dós – í fjórum bragðtegundum.
Vörurnar er framleiddar á Íslandi
úr íslensku hráefni, en um eldislax
frá Arnarlaxi á Vestfjörðum er að
ræða.
Þórdís Wathne er framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins. „Ég var í
Sjávarklasanum fyrir rúmu ári síðan
þegar þessi hugmynd kom upp.
Sjávarklasinn bað mig um að ganga
til liðs við sig og stofna Reykjavík
Foods. Markmiðið var að auka verð-
mætasköpun í sjávarútvegi og búa
til flottar íslenskar vörur í stað þess
að selja bara út hrávöru eins og við
Íslendingar gerum alltof mikið af, á
kostnað þess fyrrnefnda.“
Gæði við hæga eldun
„Við setjum ferskan lax í dósina
nýlega eftir veiðar, söltum með salti
frá Saltverki og einungis náttúruleg
bragðefni eins og ferska basilíku,
hvítlauk og trufflur,“ segir Þórdís um
framleiðsluferlið. „Dósinni er lokað
og þannig fer hún í suðu, við vægt
hitastig. Þar sem hráefnið er soðið
í lokaðri dós verða engar örverur á
kreiki og þannig næst þetta langa
geymsluþol. Þetta er í raun með heppi-
legri geymsluaðferðum matvæla, sér-
staklega þar sem svona ferskt hráefni
fer í dósina og þá verða gæðin fram-
úrskarandi. Við gerðum mælingar á
næringarinnihaldi og þar kom í ljós
að varan tapar ekki næringarinnihaldi
miðað við hefðbundna eldun og í raun
verður hún sérstaklega bragðgóð þar
sem hún eldast í lokuðu ferli í eigin
safa sem kemur af laxinum. Engum
aukaefnum er bætt við.“
Að sögn Þórdísar fást vörurnar í
verslunum Hagkaups, 10-11, Nettó
um allt land, Samkaup um allt land,
Borðinu og Fríhöfninni svo dæmi séu
tekin. „Við erum að fara inn í mun
fleiri verslanir á komandi vikum.
Hvað erlenda markaðinn varðar erum
við helst að skoða Mið-Evrópu en þar
eru mjög stórir markaðir fyrir hágæða
sjávarafurðir í dós. Við höfum þegar
fengið pantanir frá keðjum þar ytra en
viljum vanda okkur vel í þeirri útrás
og koma okkur vel fyrir hér á landi til
að byrja með.
„Við Þór Sigfússon, stofnandi
Sjávarklasans, stóðum saman að
stofnun félagsins ásamt hluthöfum.
Við erum því í eigendahópi ásamt
Marinvest og Jóni Osmann. Það er
mikilvægt að hafa áhugasama hluthafa
með í teyminu sem gera vinnuna
auðveldari. Tinna Hrund Birgisdóttir
kom svo inn á fyrstu skrefum, en
hún er markaðsstjóri og hefur mikla
reynslu í útflutningi á laxi. Hún hefur
þegar farið í ferðir til útlanda, kynnt
vöruna og fengið viðbrögð við henni
sem hafa verið langt framar vonum.
Helstu viðbrögðin sem hún fær eru
varðandi gæði vörunnar. Niðursoðnar
sjávarafurðir eru mjög algengar, meðal
annars í Mið-Evrópu, en þar er afar
fátítt að varan fari fersk í dósina líkt
og við gerum. Þar fer hún hins vegar
frosin í dósina og það er í raun allt
önnur vara.“
Niðursoðið lambakjöt í vöruþróun
Þórdís segir að þau einbeiti sér nú
fyrst og fremst að laxinum, en þau
séu þó með fleiri járn í eldinum og
séu með fleiri vörur í þróun. „Það
liggja gríðarleg tækifæri í því að leysa
vandann með offramboð á lambakjöti.
Það væri hægt að vinna á fjallinu
sem nú liggur í frosti og eftir suðu
er geymsluþolið 4 ár í dósunum. Við
erum komin mjög langt í vöruþróun
og gæði vörunnar er langt umfram
væntingar – verulega bragðgóð. Það
vantar aðeins upp á fjárhagshliðina til
að taka það alla leið. Með smá styrk
og samstarfi við þá sem hafa að gæta
hagsmuna sauðfjárbænda eru góð
tækifæri í útflutningi á lambi í dós.
Við erum þegar búin að vinna hluta
af markaðsvinnunni og erum vakandi
yfir áhugasömum aðilum sem sjá
hagsmuni í að aðstoða með að taka
verkefnið alla leið.“
Kostirnir við niðursoðinn lax
Að sögn Þórdísar er lax í dós að ýmsu
leyti fýsilegri vara en sá ferski. „Hann
er afar hentugur í ferðalagið út á land,
til að grípa í til dæmis með sér í fjall-
göngu. Þá er hann sérlega heppilegur
matarminjagripur, þar sem geymslu-
þolið er svo mikið, til að taka með
heim, annaðhvort til að gefa í gjafir
eða til að endurvekja minningar frá
landinu. Svo er það þannig, þótt ótrú-
legt megi virðast, að sumum finnst
hann einfaldlega betri en ferskur fisk-
ur. Við hvetjum þó alla ferðamenn til
að gæða sér á fiski í öllum útfærsl-
um. Hér er framboðið og ferskleikinn
einstakur sem ferðamenn ættu ekki að
láta framhjá sér fara.“
Ein af vörum Reykjavík Foods
er bragðbætt með ítölskum trufflum.
Í öllum okkar vörum er íslenskt
grunnhráefni en í einstaka tilfellum
er hráefni erlent líka ef það er ekki
framleitt á Íslandi. Trufflurnar eru
sérstaklega vinsælar og voru í upphafi
hugsaðar fyrir ítalskan markað en svo
sló varan í gegn hér á landi.“
Þórdís segir að það sé niðurstaða
af ítarlegum bragðprófunum að þess-
ar fjórar bragðtegundir hafi komið
best út; hreinn lax, reyktur lax, lax
með hvítlauk og basilíku og lax með
trufflum. „Við vorum með marga
smakkhópa og þetta var niðurstaðan,
þó svo að við séum með fleiri upp-
skriftir uppi í erminni. Hvað íslenska
eldislaxinn varðar hefur hann einstök
bragðgæði og einnig sérstakur þegar
kemur að öðrum gæðum. Það er ekki
laxalús í honum eins og víða annars
staðar. Við það að vaxa í köldum sjó
verður kjötið þéttara, stinnara og rík-
ara af Omega-3 fitusýrum.“ /smh
-
• FASTEIGNASALA NORÐURLANDS • Sala - verðmat - þjónusta •
GUÐMUNDUR BJÖRNSSON
löggiltur fasteigna- og skipasali662 4704 fastnord.isgummi@fastnord.is